Austurglugginn


Austurglugginn - 14.11.2014, Side 4

Austurglugginn - 14.11.2014, Side 4
4 Föstudagur 14. nóvember AUSTUR · GLUGGINN Ritstjóraspjall Í síðastu viku var fjallað mál grunn- skólans á Stöðvarfirði og baráttu íbúa þar fyrir því að halda kennsl- unni á staðnum. Í leiðara kom fram að slík mál yrðu væntanlega meira áberandi á landsbyggðinni á komandi árum. Víða um land bíða erfið mál úr- lausnar – og þau eru erfið ekki síst fyrir það að þau verða gerð persónu- leg enda munu þau oftar en ekki snúa að persónulegum hagsmunum fólks og jafnvel öryggi og afkomu. Margir standa í þeirri trú að heim- urinn breytist lítið – eða þá að flest- ar breytingar séu til hins verra og því sé betra að halda fast við fyrri háttu. Það er og í eðli mannsins að finna öryggi í hinu þekkta en að hræðast það óþekkta og framandi. Þess vegna eiga nýjar hugmyndir sem kollvarpa þekktum gildum oft erfitt uppdráttar. En lífið stendur ekki kyrrt – held- ur er samfélagið allt á hraðferð í örum breytingum og flestir þættir dagslegs lífs hafa tekið stórfelldum breytingum á liðnum áratugum – en oft er það þannig að við sem lifum í breytingunum miðjum, tökum ekki eftir þeim fyrr en við reynum að stíga út fyrir og horfa yfir sviðið. Eðli og mikilvægi einstakra byggða- kjarna á landsbyggðinni hafa breyst verulega með breytingum í atvinnu- háttum, samgöngum og breyttri samfélagsskipan. Það að einn eða fleiri einstaklingar stappi niður fótum og neiti að aðlagast breyting- unum hefur engan tilgang annan en þann að lífið heldur áfram á hámarkshraða – en sveigir og fer framhjá. Þeir þrjósku sitja þá og horfa á eftir. Nú er þetta ekki skrifað til að rétt- læta það að grunnskóla sé lokað á einum stað til að ná hagræðingu – heldur til að vekja athygli á því að það eru erfið viðfangsefni fram- undan og einhvern tíma verða menn að hafa kjark til að fara að ræða þau og komast að einhverri sameiginlegri lausn – sem hefur stuðning og tiltrú meirihluta íbúa. Við þurfum að horfast í augu við að hagsmunir einstaklings þurfa ekki að vera þeir sömu og hags- munir allra í þorpinu. Og við þurfum líka að horfast í augu við að hagsmunir eins tiltekins þorps þurfa ekki að vera þeir sömu og hagsmunir fjórðungsins Lokun pósthúsa og bankaúti- búa hefur valdið uppnámi víða á Austurlandi og menn hafa lokað bankareikningum sínum og flutt viðskipti sín af því að banki sér sér ekki lengur hag í því að starfrækja útibú á tilteknum stöðum. Lok- un bankaútibúa er ekki sjálfstæð ákvörðun sem tekin er af mann- vonsku – heldur eitt birtingarmerki breytinga í samfélaginu – og þessar breytingar munu halda áfram. Við þurfum öll að taka afstöðu til þess hvernig við viljum verja því fé sem við höfum til ráðstöfunar í heilbrigðismálum, öldrunarmálum, dagvistarmálum og skólamálum svo fá dæmi séu nefnd. Peningarnir sem við höfum eru takmörkuð auðlind – og peningum sem eytt er á einum stað verður ekki eytt annars staðar. Þess vegna verður forgangsröðin að vera klár. Það er ekkert sjálfgefið að eftir 10 ár eða 20 verði skólar þar sem þeir eru í dag eða hjúkrunarheimili. Þessar stofnanir, rétt eins og bankaútibú og pósthús, þurfa „viðskiptavini“ til að vera rekstrarhæfar einingar. Þetta vita allir innst inni hvort heldur menn viðurkenna það eða ekki. Það verða miklar breytingar í búsetu fólks á næstu áratugum – breytingarnar verða hvort sem við viljum eða ekki. En málið er þetta - ef við ekki erum með í að skipu- leggja framtíðina, þá gerir einhver annar það fyrir okkur og jafnvel að okkur forspurðum. Á þessum miklu breytingatímum er að komast í vana hjá mér að minna fólk á orð Darwins – sem reyndar eru oft höfð rangt eftir - en Darwin taldi grundvöll þróunar tegundanna byggjast á því að þau hæfustu lifðu af. Oft er talið að átt sé við hina sterkustu – en það er rangt. Darwin taldi þá sem best aðlaga sig breytingum hafa mestu möguleikana til að lifa af. Við ætt- um að hafa það í huga. Salb Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Sverrir Mar Albertsson • Fréttir: 477 1750 / frett@austurglugginn.is Auglýsingar: 696 6110 / auglysing@austurglugginn.is • Áskriftarsími: 477 1571 • Umbrot og prentun: Héraðsprent. Efnisvinnsla og auglýsingasala: Austurfrétt ehf. • Gunnar Gunnarsson blaðamaður • Sigríður Lund Hermannsdóttir blaðamaður • Stefán Bogi Sveinsson auglýsingastjóri • Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf., Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Dagar myrkurs standa nú yfir og er hægt að njóta viðburða af ýmsu tagi um allt Austurland. Robyn Vilhjálmsson leikskólakennari var ein af þeim sem tók þátt í dagskrá hátíðarinnar í Neskaupstað. Þar var hún með kynningu bók sinni Píla í sveitinni sem hún gaf út árið 2012. Bókin var hluti af útskriftarverkefni Robyn en hún lauk leikskólakenn- aranámi frá Háskólanum á Akur- eyri sama ár. Robyn Elisabeth Vilhjálmsdóttir er fædd og uppalin í Ástralíu. Hún er 58 ára gömul og kom til Íslands fyrir tæpum þrjátíu árum til að vinna í fiski. „Ég hafði ferðast víða og var búin að vera að vinna í Bretlandi, Írlandi, Frakklandi og fleiri stöðum. En ég var stödd í Mexíkó og átti 200 dollara í vasanum þegar mér bauðst að fara til Íslands að vinna í fiski. Mig langaði alls ekki heim svo ég dreif mig í Neskaupstað og þar hef ég verið síðan,“ sagði Robyn þegar Austurglugginn heyrði í henni á dögunum til að forvitnast aðeins um hana og bókina. Það var ástin sem varð til þess að Ro- byn snéri ekki aftur til Ástralíu, en í frystihúsinu í Neskaupstað kynntist hún manninum sínum, Sigurði Þór Vilhjálmssyni, sem þá var þar verk- stjóri. „Hann gerði mér það alveg ljóst í upphafi, þegar við vorum að byrja að vera saman, að hann ætlaði aldrei að fara frá Neskaupstað, þannig ef við ætluðum að vera saman þá yrði ég að vera hér. Síðan eru liðin tuttugu og átta ár. Hann er svo mikið æði þessa elska og ég sé ekki eftir neinu.“ Píla í sveitinni En segðu okkur frá bókinni. „Bókin var hluti af útskriftarverkefni mínu í leikskólafræðum. Ég valdi að taka fyrir sjálfbærni. Ég velti því fyrir mér hvernig ég gæti kennt leikskólabörn- um þetta hugtak, enda er sjálfbærni stórt orð. Ég ákvað að lokum að taka fyrir landbúnaðinn og kenna krökk- unum um húsdýrin. Aðalsöguhetjan er hundurinn Píla sem er fjárhundur. Píla var til og var fjölskylduhundur- inn okkar til margra ára, en hún er farin núna. En Píla kemst í kynni við kindur, hesta, kýr og hreindýr og í gegnum hana er lært um dýrin, húsakynni og lífshætti þeirra. Ég komst að því í rannsóknum mín- um að krakkar eru ekki svo mikið í tengslum við sveitina, og kannski ekki skrýtið því að barnabækur fyrir börn á aldrinum 3-4 ára um húsdýr eru mest innfluttar og íslenskaðar. Erlendis er veruleikinn öðruvísi en hér heima,“ segir Robyn. Robyn myndskreytti bókina sjálf enda mikill listamaður til margra ára. „Já,ég myndskreytti bókina sjálf enda hef ég teiknað og málað allt mitt líf. Bókin er tvískipt þannig að það er hægt lesa textann og skoða myndirnar um leið. Ég er sátt við útkomuna.“ En er önnur bók á leiðinni? „Ég er löngu komin með hugmynd, mig vantar bara tíma. Ég er byrjuð að gera teikningarnar og ætli ég noti ekki jólafríið til að vinna í textanum,“ segir þessi fjölhæfa kona að lokum. Píla í sveitinni fæst í Húsi hand- anna á Egilsstöðum og í Kaffihús- inu Nesbæ í Neskaupstað. SL Píla í sveitinni - Barnabók ætluð leikskólabörnum

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.