Austurglugginn - 15.04.2021, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 15. apríl AUSTUR · GLUGGINN
Sagan er það góð að hana verður að
segja fyrst. Hún fjallar um hvernig
pilturinn Stefán Eiríksson, fæddur
að Fremraseli í Hróarstungu en
alinn upp á heiðarbýlum á þar
síðustu öld, varð maðurinn sem
rannsóknarprófessorinn Goddur
segir að hafi… „lagt grunninn að
íslenskum sjónmenntum á seinni
tímum.“
Sagan hefst á veiðiþjófnaði. Eiríkur,
faðir drengsins sem var góð skytta,
hafði „lent í því“ að skjóta fimm
hreindýr á heiðinni eftir áramót.
Á þeim tíma, um það leyti sem
stjórnarskráin barst okkur frá
Kristjáni 9. Danakóngi var bannað
að skjóta hreindýr eftir áramót. Vitað
var að veiðivörðurinn, prófasturinn á
Valþjófsstað, vildi kæra verknaðinn.
Stefán, ungur að árum, tekur sig
til, smíðar og sker út kistil, fer síðan
um vorið til eiginkonu prófastsins,
Soffíu Emilíu Einarsdóttur, og gefur
henni gripinn. Vonast þannig til að
geta mildað málsmeðferðina í máli
föðurs síns.
Prófasturinn sjálfur er lítt hrifinn
af þessu tiltæki en frú hans sér strax
hvaða hæfileika strákurinn hefur
að bera. Enda hefur hún búið um
skeið í Cambridge hjá eldri systur
sinni, Sigríði, og á þeim tíma verið
ein besta vinkona dóttur William
Morris sem var stofnandi breska
Verkamannaflokksins og ötull
talsmaður þess að hefja alþýðulist
til vegs og virðingar.
Soffía tekur sig til og safnar fé
fyrir Stefán svo hann geti komist
í nám í útskurði og teikningu í
Kaupmannahöfn. Hann fer til
Kaupmannahafnar 1890, klárar
námið og er strax ráðinn til starfa
hjá versluninni og fabrikkunni C.B.
Hansen við Kongens Nytorv.
Á þessum tíma var C.B. Hansen
svipuð verslun og Magasin du Nord í
nútímanum. Þar komu ekki aðrir inn
en aðallinn og stóreignamenn sem
höfðu efni á þeim munum sem voru
í boði. Þar sat Stefán og skar út hluti
eftir teikningum. Þegar hann fékk
sjálfur að ráða notaði hann mikið
forn norrænar fyrirmyndir.
Hannaði fyrstu hlutabréf
Eimskips
Goddur, eða Guðmundur Oddur
Magnússon, er einn af þekktustu
listamönnum landsins og þó
einkum sem grafíker. Hann hélt
nýlega athyglisverðan fyrirlestur á
Óbyggðasetrinu í Fljótsdal. Efnið
var m.a. áhrif heiðarbýlanna á
Jökuldal á sjónmennt Íslendinga frá
upphafi tuttugustu aldarinnar og allt
fram á vora daga.
Við hittum Godd á núverandi
vinnustofu/heimili hans í gömlu
áburðarverksmiðjunni í Gufunesi.
Húsið sem um ræðir heitir Sýruhúsið
og var eitt sinn mikilvægur hlekkur
í árburðarframleiðslukeðjunni
í Gufunesi. Goddur bendir á
listaverkin sem hanga um alla veggi
og segir: „Þú sérð að öll verkin hér
eru í stíl við nafnið á húsinu,“ segir
hann og brosir.
Nágrannar hans eru heldur
ekki af verri endanum eða
kvikmyndafyrirtæki á borð við Kukl,
Baltasar er með stúdíó þarna og
nýlega var sett á fót sköpunarmiðstöð
í næsta húsi á vegum borgarinnar.
Goddur telur að 50 til 60 ungmenni
séu þegar mætt þar til leiks.
Þegar við ræðum við Godd
um Stefán Eirksson, strákinn frá
heiðarbýlinu, er greinilegt að hann
hefur ástríðu fyrir viðfangsefninu.
Meðan á samtali okkar stendur er
Goddur með fartölvuna sína opna
og bregður þar upp ýmsum myndum
og upplýsingum sem hann hefur
safnað saman um verk Stefáns. Ef
við ættum að fara í gegnum það allt
væri verið að skrifa þessa grein fram
á vor.
Eitt af verkum Stefáns eftir
heimkomuna frá Kaupmannahöfn
var að teikna og hanna fyrsta
hlutabréfið sem Eimskip gaf út 1914.
Bréfið sem slíkt er afar fallegt miðað
við tíðarandann og ef glöggt er gáð
má sjá forn norræn áhrif um allt,
ekki bara gömlu goðin heldur ýmis
drekamótív og fleira.
Eitt af verkum Stefáns eftir að
hann kom heim frá Kaupmannahöfn
og settist að í Reykjavík árið 1898
var að stofna skóla til að kenna
útskurð og teikningu (hagnýta
grafík). Hann kom að vísu ekki
beint til Reykjavíkur því fyrst þurfti
hann að sækja sér konu að bænum
Fossi í Hofsárdal. Og það gekk ekki
þrautalaust.
Ekki mann sem tálgar
spýtur
Goddur segir að meðan Stefán
dvaldi í Kaupmannahöfn, og síðar
í Leipzig og Berlín, hafi hann
verið í bréfaskriftum við Sigrúnu
Gestsdóttur, heimasætuna á Fossi.
Stóðu þau bréfaskipti í sjö ár. Stefán
var ákveðinn í að hún yrði konan sín.
„Það vill svo til að hvernig þetta fór
kemur fram í tveimur skáldverkum
Gunnars Gunnarssonar, Heiðar-
harmi og Sálumessu“ segir Goddur.“
En í þessum verkum eru allar
persónurnar undir dulnefnum að
sjálfsögðu.“
Til að gera langa sögu stutta varð
bóndinn, Gestur á Fossi (Brandur á
Bjargi hjá Gunnari), lítt hrifinn af
bónorði Stefáns (Nonna á Litlalæk).
Sagði að hann ætlaði ekki að fara
að gifta dóttur sína einhverjum
dúdda sem tálgaði spýtur fyrir
lifibrauð. Eða eitthvað á þann hátt
er samskiptunum lýst. Dóttirin,
með hjálp móður sinnar sem taldi
að Stefán hefði lykla að hurðum
himmnaríkis í fingum sínum, stóð
hinsvegar fast á sínu og brátt voru
þau orðin hjón.
Stefán kemur heim árið 1897
og þau Soffía setjast að í húsi í
Grjótagötunni í Reykjavík sem
stendur enn. Á neðri hæð húsins
kom Stefán sér upp skóla en hann
var einnig fengin til að kenna í
Iðnskólanum og Kvennaskólanum.
Skóla sinn rak hann fram í andlátið
1922.
Goddur um Stefán Eiríksson
Lagði grunninn að íslenskum
sjónmenntum
Mynd: FRI