Austurglugginn


Austurglugginn - 30.04.2010, Blaðsíða 1

Austurglugginn - 30.04.2010, Blaðsíða 1
ISSN1670-356116. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 30. apríl Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is ,,Það er enginn vafi í mínum huga á að styrkur þessa svæðis verður betur nýttur með auknu samstarfi,“ segir Helga Jónsdóttir, bæj- arstýra í Fjarðabyggð í samtali við Austurgluggann. Hún lýkur störfum fyrir Fjarðabyggð í júní nk.og margt bendir til að næsti bæjarstjóri komi úr röðum heimafólks. Nánar bls. 2. Ellefu framboðslistar hafa litið dagsins ljós á Austurlandi, en óðum styttist nú í sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 29. maí nk. Frestur til að tilkynna framboð rennur út 8. maí. Framboðin hafa sig lítt í frammi enn sem komið er og því von á stuttri og snarpri baráttu. Nánar bls. 8-9 Konan sem nútímavæddi Fjarðabyggð Ellefu framboð og flest ennþá værukær Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-18:00. Nýja heimilisfangið er: Landflutningar-Samskip Nesbraut 10 · 730 Reyðarfjörður Sími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin www.svn.is Með hákarl á síðunni Bræðurnir Björgvin og Heiðar Sveinssynir á trill- unni Sæfara NK 100, fengu þriggja og hálfsmetra langan hákarl í netin hjá sér er þeir voru á grá- sleppuveiðum við Dalatanga í Mjóafirði nú á dög- unum. Hákarlinn var allt of stór til að hægt væri að ná honum um borð, auk þess sem hann sat fastur í netinu. Þurfti því að sigla í land með hann hang- andi á síðu trillunnar nokkurn spöl og fylgdi sög- unni að þegar í land var komið hafi hákarlinn enn verið lifandi. Þeir bræður eru duglegir að verka og selja hákarl og voru þetta því óvænt uppgrip í gráslepputúrnum, en heldur hefur verið rólegt á þeim vettvangi enda margir um hituna þetta árið. Grásleppukarlar fengu óvæntan en heldur stórkarlalegan glaðning í netin hjá sér í vikunni. Mynd/Þóra Elísabet Valgeirsdóttir.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.