Austurglugginn


Austurglugginn - 30.04.2010, Qupperneq 4

Austurglugginn - 30.04.2010, Qupperneq 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 30. apríl BARÁTTAN UM BRAUÐIÐ Það er þungbært að vera bjargarlaus. Það er þyngra en tárum taki að geta ekki unnið fyrir sér, annað hvort vegna þess að enga vinnu er að hafa, eða vegna heilsuleysis. Það er samt andstyggilegt að vita af fólki sem virðist hreinlega vilja vera á atvinnuleysisskrá og gerir allt mögulegt til að forðast að vera ráðið í vinnu. Við vitum af slíku fólki og erum ekki hrifin af því. Það spillir fyrir þeim sem raunverulega þurfa á atvinnuleysisbótunum og bráðnauðsynlegri þjónustu Vinnumálastofnunar og fleiri stoðstofnana að halda. Hátt í sautján þúsund manns eru atvinnulaus á Íslandi. Næstum helmingur allra á atvinnuleysisskrá er ungt fólk, undir 35 ára aldri. Næstum níu þúsund manns hafa verið atvinnulaus í meira en hálft ár. Tuttugu og fjögur þúsund íslensk heimili eru í greiðsluvanda vegna skulda og langflestar þeirra fjöl- skyldna eru með börn. Ástandið er skást á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og svo á Austurlandi, þar sem tæplega fjögur hundruð manns eru atvinnulaus, þar af ívið fleiri konur. Verkalýðsfélögin gegna lykilhlutverki í því ástandi sem nú ríkir á Íslandi. Verkalýðsfélaganna er að verja hlut þeirra lægst launuðu, að verja kjör launa- fólks. En við, fólkið í þessu landi, þurfum að skilja að þessi félög eru ekki neitt nema við, launþegarnir sem á bak við þau stöndum. Ef við erum ekki tilbúin til að standa á kröfum okkar, láta í okkur heyra og sverfa til stáls ef með þarf, er verkalýðshreyfingin aðeins hlægilegt bákn og minnismerki horf- ins tíma þegar samtakamáttur var til einhvers og gat raunverulega knúið fram breytingar. Sanngirni er vissulega þörf nú sem endranær og ekki jarðvegur til að gera annað en hófstilltar kröfur. En það er kristaltært og svo ákaflega sorglegt að íslensk alþýða, sjálft hryggjarstykkið í samfélaginu, horfir fram á mörg mögur ár vegna þess að siðblindingjar og ójöfnuðarmenn töldu sig geta blóðmjólkað þjóð okkar og innviði að vild. Og nú skulu þessir sömu aðilar horfast í augu við þær fjölskyldur sem eru að missa allt sitt og skammast sín, skammast sín út yfir gröf og dauða. Það er þungbært að vera bjargarlaus. Steinunn Ásmundsdóttir. Búðareyri 7, 730 Reyðarfjörður Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Steinunn Ásmundsdóttir frett@austurglugginn.is Auglýsingastjóri og þjónusta við áskrifendur: Erla Sigrún Einarsdóttir Fréttasími: 477 1750 frett@austurglugginn.is • www.austurglugginn.is Auglýsinga- og áskriftasími: 477 1571 & 891 6484 - auglysing@austurglugginn.is Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir s. 695 8498 - aslaugl@gmail.com Fréttaritari á Vopnafirði: Bjarki Björgólfsson s. 854 9482 - kompan@vortex.is Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. Umbrot og prentun: Héraðsprent. Áskrifendur Austurgluggans eru beðnir velvirðingar á því að greiðsluseðlar með rangri áskriftarupphæð voru sendir til þeirra í lok síðustu viku. Þeim seðlum má fleygja og vonandi hafa nú þegar borist greiðsluseðlar með réttri upphæð til áskrifenda. Rétt er og skylt að árétta að áskriftargjaldi fyrir blaðið er stillt í hóf svo sem frekast er kostur og er það fjórtánhundruð krónur á mánuði. Arion banki efndi til námskeiðs um fjármál heimilanna á Egilsstöðum í síðustu viku. Breki Karlsson, forstöðu- maður Stofnunar um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík, fjallaði þar um ýmsa þá þætti sem lúta að fjár- málum heimilisins, svo sem vexti, verðtryggingu, verðbólgu og áhrif hennar, sparnað og um mismunandi tegundir lána. Um 20 manns nýttu sér námskeiðið á Egilsstöðum. Ágústa Björnsdóttir, útibússtjóri Arion banka á Egilsstöðum, segir mikilvægt að fólk efli með sér fjár- málalæsi svo það geti sjálft lagt mat á stöðu fjármála sinna, svo sem með því að skilja áhættu í lántökum og ávöxt- unarleiðir fyrir sparifé. Námskeiðið um fjármál heimilanna sé hluti af fyr- irlestraröð og fræðsluátaki á vegum bankans, sem hugsað er til að koma til móts við brýna þörf viðskipta- vina fyrir haldgóðar upplýsingar og fræðslu um nýtt efnahagsumhverfi. Stofnun um fjármálalæsi við HÍ var stofnuð fyrir hvatningu ríkisins eftir hrunið. Arion banki er aðalstyrkt- araðili stofnunarinnar. Bankinn gerði samstarfs- og styrktarsamning við hana, sem m.a. felur í sér að stofn- unin leiðir fræðslufundi Arion banka um fjármál. Sjá www.fe.is. Vegna aðsendra greina: Talsvert af efni bíður nú birt- ingar í Austurglugganum og eru lesendum þakkaðar forvitni- legar greinar og ljósmyndir, sem munu birtast á síðum blaðsins innan tíðar. Að gefnu tilefni er þó vert að minna fólk á að lengd lesendabréfa verður að takmark- ast við 700 orð, ekki síst nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga. Innsendar greinar fara í birtingarröð. ritstj. Alþjóðlegi hláturdagurinn er hald- inn hátíðlegur fyrsta sunnudag í maí á hverju ári. 2. maí í ár munu tugir þúsunda hláturklúbbafélaga vítt og breitt um heiminn, fjölskyldur þeirra og félagar, koma saman á torgum, görðum og samkomusölum, hlæja innilega saman og biðja fyrir heims- friði. Allur almenningur er hvattur til að nýta þennan dag sérstaklega til að hlæja hvar og hvenær sem því verður við komið. Alþjóðlegi hláturdagurinn er sprottinn úr hláturjóga, jógaaðferð sem á rætur sínar að rekja til indverska læknisins Madan og ársins 1995. Hláturjóga hefur breiðst út um allan heiminn og eru nú yfir sex þúsund hláturklúbbar í 65 löndum. Í hláturjóga hlæja menn án sérstakrar ástæðu, kímni, brand- ara eða gríns. Litið er á hlátur sem líkamsrækt, hún er iðkuð í hóp og byggt á augnsambandi og barnslegri leikgleði. Það sem byrjar ef til vill sem þvingaður hlátur breytist undurfljótt í raunverulegan hlátur og gerir lík- ama og sál einkar gott. Hláturjóga og hláturklúbbar hafa vakið mikla athygli og þykja raunveruleg aðferð til aukinnar velsældar fólks. Alþjóðlegur hláturdagur haldinn hátíðlegur 2. maí 2010 Fjármálalæsi eflt Afsökunarbeiðni vegna rangra greiðsluseðla Sorphirða | Fjarðabyggð og Íslenska gámafélagið hafa gert með sér sorp- hirðusamning til næstu sex ára. Breyta á áherslum frá núverandi fyrirkomu- lagi og auka þjónustu við íbúa. Auka á endurvinnslu, draga eftir mætti úr úrgangi til urðunar og lengja með þeim hætti endingartíma urðunarstaðar Fjarðabyggðar í Þernunesi í Reyðarfirði. Söluskálar | List án landamæra er listahátíð fatlaðra og ófatlaðra og er haldin víða um land. Egilsstaðir er eini staðurinn á Austurlandi sem er þátttakandi að þessu sinni. Dagskrá hefst 1. maí kl. 14 í sláturhúsinu - menningasetri á Egilsstöðum, með opnun þriggja sýninga og ,,geðveiks“ kaffihúss Kvenfélagsins Bláklukkna. Kl. 19 hefst dagskrárliðurinn Svangar skálar - einstakt súpukvöld, sam- vinnuverkefni Anne Kampp leirlistakonu og Bláklukkna. Fólki gefst þá kostur á að kaupa sér súpu og brauð og fær að eiga súpuskálina fyrir 3.500 krónur. Aðeins eru fjörtíu skálar í boði og engin eins. Þetta kvöld ætlar Fljótsdalshérað að heiðra Ernu Friðriksdóttur fyrir frábæran árangur og ástundun á skíðum. Reikningsskil | Alþingi samþykkti í vikunni breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum. Með þessari breytingu á að tryggja að ráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðrir opinberir aðilar og Samband íslenskra sveitarfélaga geti fylgst betur með framvindu og þróun fjármála sveitarfélaganna. Landsliðsúrtak | Tvær stúlkur frá fimleikadeild Hattar eru að fara í lands- liðsúrtak í hópfimleikum 1. maí í Reykjavík. Þetta eru þær Valdís Ellen Kristjánsdóttir og Sara Þöll Halldórsdóttir, báðar reyndar fimleikakonur hjá Hetti. Fimleikasamband Íslands er að mynda fyrsta unglingalandsliðið í hóp- fimleikum sem mun keppa fyrir Íslands hönd á næsta keppnistímabili. Bjarni fundar | ,,Þegar við gengum til kosninga síðasta vor, var Sjálfstæðisflokknum refsað,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, á stjórnmálafundi á Reyðarfirði á þriðjudag. ,,Ég get sagt við hvern þann sem hefur einhverjar efasemdir um það, að við heyrðum skilaboð kjósenda á síðasta ári. Við gerum okkur mjög vel grein fyrir því að fólki fannst að Sjálfstæðisflokkurinn hefði brugðist og það þyrfti að gera upp þennan tíma og koma fram með sýn um hvernig menn ætluðu að draga af þessu lærdóm.“ Nánar í Austurglugganum í næstu viku

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.