Austurglugginn


Austurglugginn - 26.04.2013, Síða 9

Austurglugginn - 26.04.2013, Síða 9
 Föstudagur 26. apríl AUSTUR · GLUGGINN 9 Undanfarið hef ég rætt við fjöl- skyldufólk, atvinnurekendur, eldri borgara og ungt fólk á Austurlandi. Við í Dögun (xT) höfum heimsótt nær alla þéttbýlisstaði á Austfjörðum auk Fljótsdalshéraðs áður en haldið var norður á Akureyri þar sem ég er upp alinn. Formleg kosningabarátta, þar sem öllum flokkum var boðin þátttaka, hófst í Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað; á Norð- firði er faðir minn, Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari MA, sem skipar heiðurssæti Dögunar í kjör- dæminu, fæddur eins og föðuramma mín, Fanny Kristín Ingvarsdóttir. Afi minn, Gísli Kristjánsson, var fæddur í Mjóafirði en var útgerðarmaður á Norðfirði og Akureyri. En hvert er erindi mitt – og Dögunar – við íbúa Austurlands? Auðlindaarðurinn renni ekki suður... Í Íslandsbyggðastefnu Dögunar [http://xdogun.is/stefnan/islands- byggdarstefna-dogunar/] er áréttað að fjármagn til uppbyggingar og þjónustu sé veitt til allra landshluta. Dögun vill að arður af sameigin- legum auðlindum þjóðarinnar renni í auknum mæli til lands- hluta – sem stjórni sjálfir verkefnum og almanna- þjónustu þar. Með því er sagt skilið við það úrelta fyrirkomulag að þingmenn fari með betlistaf suður til Reykjavíkur eins og Íslend- ingar sendu áður bænaskrár til danska kóngsins. Stjórnkerfis- breyting – heimastjórn í héraði – er tímabær. Til þess þarf stjórnarskrár- breytingu eins og Dögun hefur stutt. ...heldur séu tekjur og völd í héraði Í stefnu Dögunar segir: „Verkefni og rekstur á sviði heil- brigðisþjónustu, félagsþjónustu og grunn-, framhalds- og háskóla verði framvegis skipulögð í landshlutum/kjördæmun og stjórn þeirra færð til aukins sjálfstæðis og frá miðstýringu ráðuneytis í Reykjavík.“ Á fundi tíu flokka í Menntaskólanum á Egils- stöðum orðaði ég þessa hugsun þannig að tekjur og völd ættu að vera í höndum fólks í héraði – „og á ég þá ekki bara við Fljótsdalshérað.“ Opinber þjónusta á landsbyggðinni Samkvæmt stefnu Dögunar á að meta hvort staðsetja beri höfuðstöðvar og meginstarfsemi ríkisstofnana á lands- byggðinni. M.a. í þessu skyni þarf að bæta innviði – svo sem samgöngur og fjarskipti – á Austurlandi ekki síst, þar sem grunnþjónusta og öryggi íbúa líður fyrir fjárskort, manneklu og erfiða fjallvegi. Á Austfjörðum var mikið rætt um bætta heilbrigðisþjónustu í heima- byggð og jafnræði til menntunar frá heimili – upp að 18 ára aldri; fram kom að hátt í 100 þús. kr. á mánuði kosti að senda ungling í framhalds- skóla frá heimili. Aðstöðumunur- inn er víða. Þess vegna vil ég fjölga kjördæmum í 8 auk þess að koma á heimastjórn. Umbætur í auðlindamálum Austfirðingar ræddu einnig mjög um sjávarútvegsmál – sem er meðal 3ja helstu umbótamála sem Dögun berst fyrir auk áðurnefndra stjórnkerfis- breytinga og umbóta í lánamálum og afnáms verðtryggingar. Stefna Dögunar í sjávarútvegs- málum [http://xdogun.is/stefnan/ sjavarutvegsstefna-dogunar/] kveður á um þjóðareign á auðlindum, sjálf- bæra þróun og almannahag auk þess að hámarka verðmætasköpun nytjastofna. Byggðatenging aflaheimilda Þar er einnig kveðið á um jafn- ræði í aðgengi að veiðiheimildum, að auðlindagjald renni til ríkis og sveitarfélaga og að framsal, fram- leiga og veðsetning veiðiheimilda verði óheimil. Þá segir: „Að aflahlutur sjávarbyggða sé tryggður og hluti veiðileyfa svæðisbundinn.“ Aukið frelsi til handfæraveiða Sjávarútvegsstefna Dögunar (xT) gerir ráð fyrir að öllum nýtanlegum afla sé landað og enginn hvati verði til brottkasts. Þá segir um þetta hags- munamál margra Austfirðinga: „Að handfæraveiðar verði frjálsar. Loks skal „stuðla að endurnýjun, sjálfbærni og notkun umhverfisvænni veiðarfæra og aðferða við veiðar.“ Í niðurlaginu segir: „Dögun er opin fyrir þeim leiðum í fiskveiðistjórn sem samrýmast ofan- greindum markmiðum.“ Heimastjórn og handfæra- veiðar í þágu Austurlands Þorkell Ásgeir Jóhannsson Flugmaður Fjórða sæti í NA Tillögur stjórnlagaráðs eru um margt góðar. En stjórnarskráin á ekki að stuðla að fullveldisafsali. Fullveldi er ein dýrmætasta eign hverrar þjóðar. Það er grundvöllur þeirra lífskjara sem við njótum í dag. Gísli Tryggvason ISSN1670-3561 40. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 15. október Áskriftarverð kr. 1.400 á ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Landflutningar-Samskip Nesbraut 10 · 730 Reyðarfjörður Sími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is www.svn.is Sjá nánar á bls. 6. Austurglugginn og Þekkingarnet Austurlands eiga samstarf um útgáfu Austurgluggans þessa viku. Í blaðinu er sérstök áhersla lögð á þekkingarsamfélag Austurlands. Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilb Einungis 2 af 10 þingmönnum norðausturkjördæmis styðja óbreytt fjárlagafrumvarp. Enginn þingmaður Samfylkingarinnar. Fellir landsbyggðin ríkisstjórnina? Umfjöllun bls. 6 mánuð Fjölmenn mótmæli l d nýjus oði ISSN1670-356138. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 1. október Áskrift ÞÚ ERT Á GÓÐUM STAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er: Landflutningar-Samskip Nesbraut 10 · 730 Reyðarfjörður Sími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is www.svn.is Sjá nánar á bls. 2 Sjá nánar á bls. 12 Steingrímur J. á SSA aðalfundi Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú fæ tilboðin send beint til þín í tölvupó Skoðaðu bonus.is og nýjustu Breið samstaða SSA á Breiðdalsvík bls. 6-7 AÐ arverð kr. 1.400 á mánu rð ný sti. tilbo ALF U ISSN1670-3561 39. tbl. - 9. árg. - 2010 - Föstudagur 8. október ÞÚ ERT Á GÓÐUMSTAÐ Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður Mjóifjörður Neskaupstaður FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is Sjá nánar á bls 2. Aðalfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga Fréttablað Austurlands Ný og betri afgreiðsla á Reyðarfirði Landflutningar á Reyðarfirði hafa flutt sig um set í stærra og betra húsnæði. Er afgreiðslan opin virka daga frá 9:00-16:00. Nýja heimilisfangið er:Landflutningar-SamskipNesbraut 10 · 730 ReyðarfjörðurSími 458 8840 landflutningar@landflutningar.is Skráðu þig á póstlistann á síðunni og þú færð nýjustu tilboðin send beint til þín í tölvupósti. Skoðaðu bonus.is og nýjustu tilboðin www.svn.is Sjá nánar á bls. 5. Vinavika Vopnafjarðar - fengu kveðju frá biskupi Íslands Tillögur að fjárlögum næsta árs bitna harkalega á landsbyggðinni og munu koma niður á starfsemi HSAÍtarleg yfirferð um fjárlagafrumvarpið í opnu blaðsins Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði - Verð í lausasölu kr. 450 Fer svona fyrir fjárfestingum fyrri ára í heilbrigðisþjónustu á Austurlandi? Ert þú með fréttaskot eða viltu koma viðburði á framfæri? Hringdu í fréttasíma Austurgluggans 867-2151

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.