Viljinn - 01.12.1958, Blaðsíða 13

Viljinn - 01.12.1958, Blaðsíða 13
-13 JÓL.AL3ÖÐ Lyftum hug til hæða á helgu Jólakveldi, finnum fegurð lífsins,fædda af kærleiks eldi. Brenna ljúfir logar,líður skuggi af hránum, vænstu hjartans vonir,vermast heitu þránum. Kæri Jesús Kristur,kveiktu í hjörtu manna eld,sem ætíð vermir,allt hið góða og sanna, lát oss kunna að krjúpa klökk við náðarstólinn beztar verða bænir barnanna um jólin. Guðrún Jóh.frá Brautarh. ORÐ LIFSINS 1 upphafi var orðið,og orðið var hjá Guði,og orðið var var Guð.Það var í upphafi hjá Guði.Allir hlutir eru gjörðir fyrir það,og án þess varð ekkert til,sem til er orðið. 1 því var líf og lífið var ljós mannanna. Og ljósið skín í myrkrinu,og myrkrið hefur ekki tekið á móti því. Hið sanna ljós,sem upplýsir hvern mann,var að koma theiminn. Hann var í heiminum,og heimurinn var orðin 1 fyrir hann,og heimurinn þekkti hann ekki. Hann kom til eignar sinnar,og hans eigin menn tóku ekki við honum. En öllum þeim,sem tóku við honum,gaf hann rétt til að vera Guðsbörn,þeim sem trúa á nafn hans. Og orðið varð hold - og hann bjó með oss,fullur náðar og sannleikaþog vér sáum dýrð hans,dýrð,sem eingetins sonar frá föður. - Engin hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eingetni,sem hallast að brjósti föðurins,hann hefir veitt oss þekking á honum.Jóh.l. \

x

Viljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.