Viljinn - 01.12.1958, Page 16

Viljinn - 01.12.1958, Page 16
-16 Eg fer upp til Tómasar. Og hann tók koddann sinn og gekk upp á loftið til drengsins. Hann opnaði hurðina hægt til þess að vekja hann ekki,ef hann svæfi,og hann fór eins hægt og hann gat til Tómasar. En hann lá - vakandi. - Rúmið hans var vætt af tárum. Faðirinn lagðist við hliðina á honum,og þeir grétu háðir. Svo féllu þeir í svefn. Næsta kvöld sagði faðirinnt Eg fer upp til Tómasar aftur. Og hann svaf einnig þá nótt u'ppi hjá honum. Þriðja kvöldið sagði hann við konu sína:Eg fer upp til Tómasar aftur. Yður mun ekki furða á því,er eg segi yður frá því, að Tómas nú sem fullorðinn maður hoðar Jesúm Krist í Kí na. Faðir Tómasar er hesta myndin,sem eg nokkurntíma hef fundið af Guði,vorum himneska föður. Syndin varð að hafa sínar afleiðingar,það,sem gjört var,gat ekki orðið aftur tekið„ Það var einnig af kær- leika til mannanna,að Guð ekki leysti manninn undan þjáningu|i þeim,sem syndin hefir í för með sér,því þjáningin segir frá því,að eitthvað illt er gjört. En Guð hefir í Kristi sjálfur komið til vor og her höl vort með oss og fyrir oss.Þetta er guðdómlegur fö ðurkærleikur. M Ó Ð I R I N (Frh. af bls.10) hvað annað. Smásaman hætta köllin, gráturinn hættir, allt er^ hljátt - barnið er sofnað án þess að vera falið í hendi Guðs,^F hún mamma mátti ekki vera að þvx. Ef til vill virðist þetta ekki alvarlegt, en það er það, það sýnir framtíð barnsins seinna. Og þessvegna, kæru mæður, ef til vill minnist þið ekki lengi þessarra daga, þeir hverfa ef til vill x dagsins önn, sem bíður heima, en eg.bið af öllu mínu hjarta: Minnist þess, sem eg hefi sagt hár í kvöld. Byggiö framtíð barnanna ykkar á hamingjunnar grundvelli með því að sleppa hversdagsleikanum smástund í kyrrð og r<5 við litla rúmið. Það veitir ykkur einnig hamingju og gleði, sem mun lýsa fram á elliár. Hulda Jensdóttir.

x

Viljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.