Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 2

Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst Á síðasta ári lést langt um aldur fram Hrafnkell A. Jónsson yfirskjalavörður á Héraðsskjalasafni Austurlands á Egilsstöðum og fyrrum varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins. Hann kom víða við á sínum starfsferli og aldrei var lognmolla í kringum þennan stóra og stæðilega mann. Hann vann til að mynda mikið og óeigingjarnt starf innan verkalýðs- hreyfingarinnar, á vettvangi sveitar- stjórnar- og landsmála, sem og almennt í félagsmálum. Þá eru ótalin þau fræðastörf sem hann sinnti af innri þörf, einkum hin síðari ár. Nú hafa ættingjar og vinir Hrafnkels ráðist í það stórvirki að gefa út bók um hann. Þar verður ævisaga hans rakin í máli og myndum, starfsferl- inum gerð góð skil og ennfremur birtar þær fræðigreinar sem hann ritaði og birtust í ýmsum tímaritum og bókum. Ritstjóri bókarinnar er Smári Geirsson, en aðrir í ritnefndinni eru bræðurnir Aðalsteinn og Ragnar Ingi Aðalsteinssynir. Þessa dagana er verið að safna áskrif- endum að bókinni. Hún mun kosta á áskriftartilboði kr. 5.780,- og er sendingargjald innifalið. Greiða þarf áskriftargjaldið fyrirfram og síðan verður bókin send viðkomandi um leið og hún kemur út, þ.e. í nóvember- byrjun. Nöfn þeirra sem gerast áskrifendur að bókinni verða birt á sérstökum minningarlista (nema annars sé óskað), sem verður fremst í henni og er það von þeirra sem að ritinu standa að hann verði sem lengstur og glæsilegastur. Í seinasta tölublaði Austurgluggans voru birtar opinberar upplýsingar um tekjur ýmissa Austfirðinga úr stað- greiðsluskrá ríkisskattstjóra. Ekki kom nægilega vel fram í umfjöllun að upplýsingarnar eru birtar með fyrirvara um að upplýsingar úr stað- greiðsluskrá séu réttar. Val einstaklinga á listann var í höndum blaðamanns Austurgluggans. Að nokkru leyti réðu tilviljanir því hverjir enduðu á listanum. Þekktir einstaklingar í austfirsku samfélagi voru margir hverjir á listanum, for- stöðumenn stofnana ríkis og sveitar- félaga, stjórnendur, millistjórnendur og einstaklingar í atvinnurekstri sem greiða svokallað vinnukonuútsvar. Listinn var birtur með fyrirvara um að óvæntar tekjur einstaklinga, svo sem óvæntur arður, söluhagnaður og arfur, geta skekkt heildarmynd útreikninga á mánaðartekjum ein- staklinga. Nokkrir einstaklingar hafa haft samband við blaðið sem segja upplýsingar ekki réttar, eða vilja alls ekki vera á umræddum lista. Á það getur ritstjórn Austurgluggans ekki lagt sérstakt mat, en vonar að upp- lýsingarnar gefi heildstæða mynd af tekjum einstaklinga á Austurlandi. Upplýsingar um tekjur Sigurlaugar Jónasdóttur skólastjóra voru rangar. Austurglugginn sagði ranglega að hún hefði haft 40 þúsund krónur í tekjur á mánuði. Hið rétta er að hún er með 400 þúsund samvæmt stað- greiðsluskrá. Um innsláttarvillu var að ræða, á því biðst Austurglugginn velvirðingar. Hvort siðferðilega er rétt að birta upplýsingar af þessu tagi er almennt álitamál, um það hefur meðal annars verið tekist á alþingi Íslendinga. Mat meirihluta alþingis er sem stendur að rétt sé að birta upplýsingar af þessu tagi. Ekki hefur áður verið birtur viðlíka listi fyrir Austurland um tekjur einstaklinga. Einar Ben Þorsteinsson Frá ritstjóra Dans- og tónlistarverkið Draumar eftir Einar Braga Bragason og Irmu Gunnarsdóttur sem frumflutt var á Djasshátíð Austurlands hefur hlotið verðskuldaða athygli listunnenda. Verkið hefur verið kynnt sem forréttur að menningarnótt í Reykjavík og verður sýnt í Gvendarbrunnum föstudaginn 22. ágúst. Forsala er á midi.is. Draumar rætast Ævi og störf Hrafnkels A. Jónssonar Vígsluhátíð á nýjum hestaíþrótta- velli í Fossgerði fer fram helgina 15. til 17. ágúst. Hestamannafélögum á Austurlandi og Norðurlandi hefur verið boðið til hátíðarinnar. Hestamenn munu koma ríðandi víða að. Meðal annars eru fréttir af fimm- tíu hesta hópi á vegum Norðfirðinga sem munu koma ríðandi á föstudags- kvöld. Metnaðarfull dagskrá hefur verið skipulögð og mun formleg vígsla fara fram á laugardag kl. 14:00 þegar Eiríkur Björn Björgvinsson flytur vígsluræðu. Farið verður í hestaleiki, liðakeppni og þrautabraut. Farið verður í útreiðartúr og haldin vegleg kjötveisla. Að sögn talsmanna hesteigendafélagsins er þarna á ferð- inni frábær fjölskylduskemmtun. Dagskrá vígsluhátíðar má nálgast á www.fljotsdalsherad.is. Fossgerðis- völlur vígður Jónas Hallgrímsson talsmaður Norrænu ferðaskrifstofunnar sem er umboðs- aðili fyrir ferjuna Norrænu á Íslandi er yfir sig bit vegna orða Ragnheiðar Björnsdóttur formanns Félags leiðsögu- manna í fjölmiðlum. Ragnheiður sagði í samtali við mbl.is í síðustu viku að stækkun Norrænu væri stærsta slys sem íslensk ferða- þjónusta hafi orðið fyrir. „Ég vil meina að stækkun Norrænu sé eitt stærsta slys íslenskrar ferða- þjónustu,“ sagði Ragnheiður í sam- tali við vefsjónvarp Mbl.is. „Þar koma með stórir bílar, fyrir fjölskyldur og hópa og með þeim erlendir bílstjórar sem ekki þekkja íslenskar aðstæður og erlendir leiðsögumenn eða farar- stjórar sem ekki þekkja til á land- inu,“ sagði Ragnheiður í viðtali við vefsjónvarp mbl.is. Augljós misskilningur Jónas segir Ragnheiði byggja álit sitt á augljósum misskilningi og þekkingar- skorti. “Í kjölfar þess að Norræna var stækkuð hefur fyrst og fremst orðið aukning á umferð húsbíla til Íslands. Ferðafólk í húsbílum er ekki verra ferðafólk. Þetta eru venjuleg- ast sömu hópbifreiðastjórarnir sem keyra með hópa til Íslands. Oft á tíðum er þjónusta íslenskra leið- sögumanna keypt. Reyndar hefur félag leiðsögumanna ekki alltaf getað útvegað leiðsögumenn í verkefnin, ég hef þess vegna stundum þurft að fara í leiðsöguferðir vegna þessa. Það er ofar mínum skilningi hvað Ragnheiði gengur til,” sagði Jónas í samtali við Austurgluggann. Óskiljanleg ummæli Munið

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.