Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 7

Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 7
 Fimmtudagur 14. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 7 FJARÐABYGGÐ | þú ert á góðum stað fjardabyggd.is StöðvarfjörðurFáskrúðsfjörðurReyðarfjörður EskifjörðurNeskaupstaðurMjóifjörður Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 tillögu að deiliskipulagi búfjársvæðis austan þéttbýlisins á Eskifirði nefnt Símonartún. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar Hafnarbraut 2, Neskaupstað og Hafnargötu 2, Reyðarfirði, og á heimasíðu Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is frá og með miðvikudeginum 13. ágúst til miðvikudagsins 10. september 2008. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila athugasemdum er til miðvikudagsins 24. september 2008. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal þeim skilað til skipulagsfulltrúa Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. F.h. bæjarstjórnar Fjarðabyggðar Skipulagsfulltrúi. Það eru engar ýkjur þegar sagt er að örugglega hafi aldrei jafn mikið staðið til á Ormsteiti. Hin árlega hverfahátíð fer fram á Vilhjálmsvelli á föstudags- kvöld. Á vegum Menningarmiðstöð var Fljótsdalshéraðs og Ormsteitis, í samstarf i við Menningarráð Austurlands og Vesterålen, hafa verið fengnir írskir meistarar til uppfærslu á Karnival sýningu. Einnig leggur Fáskrúðsfirðingurinn Jónas Steinsson sín lóð á vogarskálarnar við skipulagn- inguna. Austurglugginn leit við á æfingu hjá Karnivalhópnum í Sláturhúsinu á mánudagskvöld en lokaæfing fer fram í kvöld. Karnivalhópurinn er þétt skipaður og í honum eru 120 manns. Gengið verður á stultum, eldi spúið, svifið um loftin á reið- hjólum og svo mætti lengi telja. Jónas Steinsson segist geta fullyrt að þvílík sýning hafi aldrei verið sett upp hér á landi. “Þetta verður ógleymanlegt. Það hefur aldrei verið settur upp eins stór hópur á Íslandi,” segir Jónas sem undanfarna daga hefur staðið sveittur við að kenna börnum, unglingum og fullorðnum hinar ótrúlegustu æfingar. Hinn írski Mark Hill og föruneyti hans kom með þéttpakk- aðan sendiferðabíl frá Írlandi með Norrænu. Bíllinn var sneisafullur af búningum og tækjum til karnivalsýn- inga af þessari stærðargráðu. Mark Hill segist hafa skipulagt marga hátíðina í gegnum tíðina í erlendum stórborgum. “Við ætlum að setja upp magnaða eldsýningu á Vilhjálmsvelli. Svo endar hátíðin með því að gengið verður fylktu liði frá Vilhjálmsvelli niður í Egilsstaðavík. Þar munum við setja upp ógleymanlegt atriði. Fleytt verður stórum lömpum og sjónarspilið verður mikið. Í báta- húsinu höfum við einnig undirbúið tilþrifamikla sýningu,” sagði Mark Hill í spjalli við Austurgluggann. Ormsteiti Stórsýning á Vilhjálmsvelli -Karnivalsýning á heimsmælikvarða 120 manns eru í Karnivalhópnum af öllum stærðum og gerðum. Búningar á mannskapinn komu frá Írlandi. Mark Hill segir að ógleymanleg sýning verði sett upp á Vilhjálmsvelli og í Egilsstaðavíkinni.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.