Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 6
6 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst
É
g á ástralskan vin sem ákvað,
eftir að hafa dvalið á Íslandi
vegna álversframkvæmd-
anna, að prófa að setjast hér að.
Hann fann sig síðan knúinn til að
hafa samband við mig í gær vegna
þess að hann var viss um að það væri
verið að svindla á honum.
Vinurinn hafði fengið símtal frá
afnotadeild RÚV þar sem hann
var spurður hvort hann væri með
sjónvarp. Hann játti því en sagðist
reyndar bara nota það sem auka-
skjá fyrir tölvuna sína. Honum var
sagt að það skipti engu máli og að
hann þyrfti að borga 36.000 kr. á ári.
Þetta fannst Ástralanum auðvitað
furðulegt, sérstaklega í ljósi þess að
engu skipti þó hann væri ekki einu
sinni með loftnet til að geta horft á
RÚV. Hann skyldi bara hundskast
til að borga.
Þegar hann hafði samband í gær var
hann fullviss um að þarna væru á
ferðinni einhverjir svikarar sem hefðu
ákveðið að reyna að gabba “heimska
útlendinginn”. Þegar ég hugsa um
það, þá er ég eiginlega ekkert hissa
á að hann hafi haldið þetta.
Hann ákvað í framhaldinu að losa
sig við sjónvarpið sem hann keypti
notað á 5.000 kr. í fyrra til að sleppa
við að borga 36.000 kr. af því á ári.
Gott sparnaðarráð.
Nýsköpun er orð sem mörgum
finnst gott að nota þegar skapa á ný
tækifæri. Oftast er þetta orð notað
í tengslum við viðskiptahugmyndir
hvers konar sem ætlað er að skapa
fleiri störf og ný tækifæri.
Til er verkefni um vöxt Austurlands
sem hefur verið auglýst sem
Austurland tækifæranna. Það er
von að hugsandi fólk staldri við og
velti fyrir sér hvar þessi tækifæri
liggja. Já það vita flestir að tæki-
færin liggja víða ónotuð.
Hið sanna tækifæri er hins vegar
hugur okkar mannanna. Hvað
dettur okkur í hug, og það sem
mikilvægara er, hvað framkvæmum
við af okkar hugmyndum?
Landbúnaður stendur á brauð-
fótum á Austurlandi. Þrátt fyrir
að víðast hvar sé landið okkar
tilvalið til landbúnaðar. Nokkrir
kúabændur hafa að vísu fjár-
fest með hjálp fjármálastofnana
í nútímalegri og tæknivæddari
fjósum. Sauðfjárrækt er orðin að
aukastarfi hjá mörgum bændum.
Nautakjötsframleiðsla er lítil
sem engin. Grænmetisrækt er í
lágmarki. Svínakjötsframleiðsla
er engin. Ekkert kjúklingabú er
á Austurlandi. Kaupfélag bænda
á Héraði ákvað á síðasta ári að
leggja meira traust á fyrirtæki í
mannvirkjagerð heldur en eigin
atvinnugrein. Árin á undan lagði
félag bænda niður alla starfsemi
sem stutt getur við þeirra atvinnu-
grein. Það hlýtur að vera best lýs-
andi dæmi fyrir stöðu austfirsks
landbúnaðar. Hafi bændur ekki
trú á eigin atvinnugrein, þá getur
enginn haft trú á henni.
Á sama tíma hefur búskapur á of
mörgum jörðum lagst af. Ein jörð
sem fer úr búskap, jafngildir því
að lítið fyrirtæki leggi starfsemi
sína af. Höfum við efni á að leggja
fyrirtækin okkar niður, einungis
til þess að fjárgreifar geti baðað
á sér magann í sólinni? Hvor er
mikilvægari austfirsku samfé-
lagi, fjárgreifi í sólbaði eða bóndi
sem framleiðir vörur og skapar
tekjur?
Er Austurland tækifærana á
hjara veraldar? Hvað varðar
sköpun nýrra tækifæra erum
við Austfirðingar eftirbátar. Við
sveimum yfir eins og hrægammar
og bíðum eftir að ljónin hendi í
okkur hræi sem við getum ráð-
ist á og kroppað í. Við eigum að
stefna hærra. Við eigum að auka
framleiðslu í fjórðungnum. Rækta
meira kjöt, rækta meira grænmeti.
Markaðasetja okkar framleiðslu-
vörur, sem væru framleiddar í
okkar fullvinnslustöðvum.
Við höfum skapað okkar eigin for-
tíð. Við hana verður ekki átt úr
þessu. Framtíðin er hins vegar í
okkar höndum og þar liggur okkar
eina og sanna tækifæri. Við eigum
að gera þá kröfu á okkur sjálf, að
við séum sjálfum okkur nóg. Ef
okkur auðnast það verða okkur
allir vegir færir. Að auki eigum
við að gera þær kröfur að fjármála-
stofnanir sem sjá sér fært að starfa
á okkar svæði hafi trú á atvinnu-
greininni, og bjóði fram lánsfé til
fjárfestinga í arðbær verkefni. Við
búum á arðbæru landi. Hugsum
við arðbært?
Leiðari
Að hafa ekki trú
á sjálfum sér
Póstfang: Brekkugata 9, 730 Reyðarfjörður
Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf.
Umbrot & prentun: Héraðsprent
Auglýsingast.: Erla S. Einarsdóttir 477 1571 - 891 6484 - erla@austurglugginn.is
Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Einar Ben Þorsteinsson 477 1750 - 896 5513 - frett@agl.is
Blaðamaður: Gunnar Gunnarsson 477 1755 - 848 1981 - gunnar@austurglugginn.is
Fréttaritari á Vopnafirði - Bjarki Björgólfsson 854 9482 - kompan@vortex.is
Fréttaritari í Neskaupstað: Áslaug Lárusdóttir - 695 8498 - aslaugl@gmail.com
Aðalsími: 477 1571
Fréttasímar 477 1750 - 477 1755
www. austurglugginn.is
Esther Ösp Gunnarsdóttir kynningarfulltrúi hjá Skóg-
ræktinni og íbúi í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum bloggar á
www.raudhausar.is/esther. Að þessu sinni bloggar hún
um ástralskan vin sinn.
ENN AF AFNOTADEILD RÚV
Miðvikudagur 6.08.2008
klippan
Blogg
Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði
síðasta fimmtudag að venju. Um borð
voru rúmlega eitt þúsund farþegar
og um fjögur hundruð farartæki.
Skipið fór frá landi með rúmlega
ellefu hundruð farþega og meira
en fjögur hundruð farartæki. Um
er að ræða einhverja fjölmennustu
ferð sumarsins að sögn Sigurjóns
Hafsteinssonar, forstjóra Norrænu
Ferðaskrifstofunnar. Norræna kom
til Seyðisfjarðar í morgun og var
mikið bókað í þá ferð þótt farþega-
tala liggi ekki fyrir. Laus pláss eru á
Norrænu í næstu viku.
Pakkfull Norræna
Ferðamálastjóri Íslands Ólöf Ýrr
Atladóttir heimsótti Djúpavog á
dögunum.
Andrés Skúlason oddviti og for-
maður ferða- og menningarmála-
nefndar Djúpavogshrepps og Albert
Jensson kynntu hinum nýja ferða-
málastjóra ágæti Djúpavogs og
nágrennis í ferða- og menningar-
málum og helstu viðfangsefni sveit-
arfélagsins í þessum efnum.
Andrés Skúlason segir frá því á
heimasíðu Djúpavogshrepps að
ferðamálastjóri var afar ánægð með
kynninguna á svæðinu þótt ekki gæf-
ist tími til að skoða allt. Taldi hún
marga góða og spennandi hluti vera
að gerast.
Ferðamálastjóri
heimsótti Djúpavog