Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 14. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 13
Keppnin Austfjarðatröllið 2008 fer
fram á Austfjörðum um helgina.
Keppni hefst rétt fyrir hádegi
í dag á Vopnafirði en lýkur á
Breiðdalsvík seinni part laugardags.
Meðal keppenda eru margir sterk-
ustu menn landsins, meðal annars
Stefán Sölvi, Páll Logi og Grétar
Guðmundsson. Um helgina fara
líka fram Breiðdalsvíkurdagar.
Kraftakeppnin á laugardag er hluti
þeirra en á sunnudag verður diskótek,
pylsupartý, strandblak, reipitog og
dorgveiðikeppni.
GG
Austfjarðatröllið 2008
Tröllin koma
Dagskrá:
Fimmtudagur 14. ágúst
11:30 Vopnafjörður
17:00 Egilsstaðir
Föstudagur 15. ágúst
11:00 Borgarfjörður
14:30 Reyðarfjörður
17:00 Seyðisfjörður
Laugardagur 16. ágúst
11:00 Fáskrúðsfjörður
14:30 Djúpivogur
17:00 Breiðdalsvík úrslitagreinar
Trukkadráttur á Egilsstöðum í fyrra. Mynd: GG
Sigurður Álfgeir Sigurðarson,
endurskoðandi hjá Deloitte
Verði ykkur að góðu. Ég sendi boltann yfir á
Stefán Boga Sveinsson framkvæmdastjóra UÍA.
Aðferð
Steikið kjúklinginn og kryddið með
salti og pipar. Þegar kjúklingurinn er
orðinn hvítur er BBQ sósan sett yfir
og látið malla uns kjúklingurinn er
gegnumsteiktur.
Setjið snakkið í eldfast mót og myljið
aðeins. Slettið salsasósunni og osta
salsasósunni yfir hér og þar (eftir
smekk). Setjið nokkrar rjómaosta
klípur yfir sósurnar. Hellið kjúk-
lingnum yfir þetta þegar hann er
steiktur og dreifið honum jafnt yfir
fatið. Gratínost yfir allt saman. Hitað
í ofni (ca. 180 C°) þar til osturinn er
orðinn vel bráðinn.
Berið fram með helling af salati.
Aðferð
Setjið marensbotninn í form (sem
hægt er að setja lok á).
Hrærið saman egg og flórsykur
þar til það verður ljóst og létt.
Blandið saman Nescafé og smá
vatni og bætið út í eggjahræruna.
Þeytið rjómann og myljið Daim
súkkulaðið. Blandið öllu saman
með sleikju. Setjið gumsið ofan á
marensbotninn og í frysti. Frábær
ísterta með kaffi.
Óhollur kjúklingaréttur með mexíkósku ívafi.
Salat
Daimtertan hans Þórs
4 kjúklingabringur,
skornar í teninga
BBQ sósa
Osta Doritos snakk
(appelsínugult)
Salsasósa
Osta salsasósa
Rjómaostur
Gratínostur
Iceberg, gúrka, paprika, rauðlaukur,
fullt af vínberjum, fetaostur og rist-
aðar furuhnetur..... allt sem þig
langar í.
Marensbotn (brúnn)
3 egg
175 gr. flórsykur
¾ l rjómi
1 tsk. Nescafé og smá vatn
4 Daim súkkulaðistykki
er matgæðingur Austurgluggans að þessu sinni.
Hann býður upp á kjúklingarétt með mexíkósku
ívafi og Daimtertu.
Gott að fara svona
10 sinnum í ræktina
eftir þessa rétti!
Árleg útimessa í Valþjófsstaðar-
prestakalli var haldin um helgina
við Sandá. Sóknarpresturinn Lára
G. Oddsdóttir, prédikaði og þjónaði
við messuna en Gylfi Björnsson lék
undir sálmasöng á harmónikku.
„Það mættu um þrjátíu manns og
veðrið var þokkalegt. Við fengum
kuldahryðjur en það var þurrt og sólin
skein líka. Eftir messu tóku menn
upp kaffi og buðu með sér,“ segir
Lára. Hún hélt útimessuna í níunda
skipti en hún er haldin til skiptis
austan og norðan við Jökulsá á Brú.
„Ég valdi Sandá því það er auðvelt að
komast að staðnum og umhverfið er
fallegt,“ segir Lára sem meðal ann-
ars hefur messað við Snæfellsskála, í
Víðidal og Sænautaseli. Hinir lifandi
steinar voru umræðuefni dagsins. „Ég
minnti á að við erum hinir lifandi
steinar í kirkju Krists.“ GG
Messugestir taka undir við undirleik Gylfa Björnssonar. Mynd: Lára G. Oddsdóttir
Messað undir berum himni
„Við erum hinir
lifandi steinar“