Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Page 4

Austurglugginn - 14.08.2008, Page 4
4 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst Mál knattspyrnuvalla á Seyðisfirði voru tekin fyrir á síðasta fundi bæjar- ráðs. Farið var yfir bréf frá bæjarstjóra og svarbréf frá stjórn knattspyrnu- deildar. Umræður fóru fram og óskað eftir að því byggingarfulltrúi kostn- aðarreikni þann möguleika sem bæjarráð og knattspyrnuforystan eru sammála um að sé vænlegastur. Líklegt er talið að lyfta þurfi vellinum sem stendur á móhellu. Jafnframt þykir æskilegt að setja undir hann drenandi efni. Völlurinn hefur þótt ýmist of blautur eða of þurr. Að auki kom hann illa undan vetri í ár eftir að hafa kalið illa. Seyðisfjörður Knattspyrnu- völlurinn endurbættur Franskur ferðamaður missti stjórn á bifreið sinni við bæinn Brú á Jökulsá á Dal á sunnudagskvöld. Bíllinn fór fram af átta metra hárri klettabrún og sökk í um 7 metra djúpan hyl. Maðurinn missti stjórn á bílnum í krappri beygju stuttu áður en hann kom að brúnni. Mun betur fór en haldið var í fyrstu. Maðurinn var ekki alvarlega slasaður og var fluttur á fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Hann hafði komist út úr bílnum og synt að klettasyllu af eigin ramm- leik. Hjón sem fóru um brúna tóku eftir bakpokum á floti í ánni. Þá litu þau á aðstæður og heyrðu mann- inn hrópa á hjálp undir brúnni og komu honum til hjálpar. Hann var þá orðinn kaldur. Ferðamaður í Jökulsána Björgvin Karl Gunnarsson körfu- boltamaður úr liði Hattar lítur á það sem svo að hann hafi verið rekinn frá félaginu. Hann var mótfallinn því að þjálfari síðasta vetrar, Jeff Green, yrði endurráðinn. “Ég var búinn að segja þeim að ég vildi ekki spila undir hans stjórn. Þeir létu líta út fyrir að hann kæmi ekki aftur og í þeirri trú útvegaði ég tvo nýja leikmenn sem munu spila með liðinu í vetur,” segir Björgvin Karl sár og reiður. “Þeir vissu að með ráðningu Green þá væru þeir að ýta mér frá klúbbnum. Mér hefur einfaldlega verið sparkað í burtu. Ég lýsi frati á stjórnina fyrir að koma svona fram. Ég hef lagt pen- inga, tíma og vinnu til körfuknatt- leiksdeildarinnar. Ég var burðarás í liðinu, og á að hafa eitthvað um þetta að segja. Tölfræði mín sem leikmaður undanfarin ár staðfestir það. Kannski hef ég það sterkar skoðanir að þeir vilja mig í burtu.” Björgvini Karli er greinilega illa við að Green stjórni liðinu. “Mér líkar ekki við þjálfunaraðferðir Green og árangur liðsins undir hans stjórn. Tuttugu manns voru í hóp þegar hann byrjaði að þjálfa í fyrra. Sex manna hópur stóð eftir í lok vetrar. Hann skilaði slakasta árangri Hattar frá því ég kom til liðsins. Ég sagði þeim í stjórninni að ég liti á það þannig að þeir vildu losna við mig frá liðinu. Ég þakkaði pent fyrir mig. “ Björgvin Karl segist vera búinn að leggja skóna á hilluna í bili að minnsta kosti. “Það er erfitt fyrir mig að spila körfubolta á Austurlandi. Höttur er eina körfuboltaliðið hér. Ég er því hættur í bili og samkvæmt þessu er ég ekki lengur leikmaður körfuknattleiksdeildar Hattar.” sagði Björgvin Karl í samtali við Austurgluggann. ”Ég lýsi frati á stjórn körfu- knattleiksdeildar Hattar„ Þegar allt lék í lyndi. Björgvin Karl í leik með Hetti gegn Ármanni/Þrótti á síðasta ári. Fjarðabyggð Líkamsræktar- tæki innleyst Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkti á síðasta fundi sínum að innleysa búnað frá fyrri rekstraraðila líkams- ræktarstöðvanna á Eskifirði og Reyðarfirði samkvæmt tillögu æskulýðs- og íþróttafulltrúa. Ekki kemur fram hvernig búnaðurinn verði notaður. Ákvörðun um leiksvæði ekki tekin Þann 5. ágúst var tekið til umfjöll- unar bréf í fasteigna- og þjónustu- nefnd Fljótsdalshéraðs frá íbúum í Selbrekku á Egilsstöðum vegna leiksvæðis hverfisins. Jafnframt kom fram ábending um slæma umgengni. Í umsögn nefnd- arinnar kemur fram að í fjárhags- áætlun fyrir árið 2008 er ekki gert ráð fyrir fjármunum til uppbygg- ingar umrædds leiksvæðis þar sem hverfið var enn í uppbyggingu. Nefndin mun við gerð fjárhags- áætlunar 2009 taka afstöðu til upp- byggingar nýrra leiksvæða. Í milli- tíðinni skal bent á leiksvæði sem þegar er frágengið í neðri hluta Selbrekku segir í fundargerð. Nýtt bygg- ingarland á Egilsstöðum? Skipulags- og þjónustunefnd Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt að fá ráðgjafafyrirtækið Alta til að gera frumdrög að deiliskipu- lagi fyrir byggingarland norðan Selbrekkusvæðis og austan Seyðisfjarðarvegar. Eskifjörður Hafnað í grenndar- kynningu Frestur til að skila inn athuga- semdum vegna tillögu að breyt- ingu á deiliskipulagi vegna Dals 2 á Eskifirði er runninn út. Tvær athugasemdir komu fram í grenndarkynningu. Umhverfis- og skipulagsnefnd taldi framkomnar athugasemdir réttmætar og hafn- aði breytingum á skipulagi vegna Dals 2.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.