Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Page 5

Austurglugginn - 14.08.2008, Page 5
 Fimmtudagur 14. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 5 Múlastofa, sýning og sögustofa til- einkuð bræðrunum Jóni Múla og Jónasi Árnasonum, var opnuð á efri hæð Kaupvangs á Vopnafirði á laugar- dag. Bræðurnir fæddust á Vopnafirði og hús foreldra þeirra, Kirkjuból, stendur þar enn. Dóttir Jóns Múla segir aðstandendur einstaklega ánægða. „Ég þori að fullyrða fyrir hönd fjöl- skyldna bræðranna að við erum stolt og ánægð með Múlastofu á Vopnafirði. Það er vel að öllu staðið. Við þökkum Vopnfirðingum fyrir að sýna þeim þennan heiður. Ég er viss um að Kúddi og Lóli, eins og þeir voru kallaðir þegar þeir áttu heima hér, hefðu verið ánægðir líka,“ sagði Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, dóttir Jóns Múla, í samtali við Austurgluggann. Haldið áfram Hugmyndir um Múlastofu hafa lengi verið uppi en aukinn kraftur var settur í að framkvæma þær árið 2002. „Hugmyndir um setur til minningar um þá og til að halda verkum þeirra á lofti höfðu lengi verið í gangi. Við réðumst í að fleyta hugmyndinni áfram og könnuðum hug aðstandenda þeirra. Við náðum tali af Jóni Múla sem tók vel í hugmyndina og sagði að Vopnafjörður ætti ávallt stað í hjarta sínu,“ sagði Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps við opnunina. Hann sagði að starfsemin í Múlastofu yrði efld. „Ég er sann- færður um að hún verður mikil lyfti- stöng fyrir ferðaiðnað og menningar- mál á Vopnafirði. Við munum halda áfram, taka nýja áfanga í notkun og stefnum að ráða sérstakan starfskraft að stofunni.“ Þrír fætur alþýðunnar Björn G. Björnsson hannaði sýn- inguna. Hann hóf mál sitt á gátu. „Af hverju smíðaði alþýða manna stóla sína með þremur fótum en aðall- inn með fjórum? Svarið er augljóst - því gólfið hjá alþýðunni var svo óslétt að fæturnir þrír stóðu betur. Múlastofa stendur þremur fótum í jarðvegi alþýðunnar,“ sagði hann og vísaði til setursins, sýningarinnar og tónlistarhátíðarinnar, Einu sinni á ágústkvöldi sem haldin var um helgina í fyrsta sinn. Bæði hljóð- og myndmiðlun er ríkulega beitt á sýningunni. „Það munaði minnstu að við spiluðum á öll skilningarvitin því Ragnheiður Ásta ætlaði að lána mér rakspírann hans Jóns Múla.“ Beðinn um að syngja lægra Kristján Möller, samgöngumála- ráðherra, var nýkominn heim af ráðstefnu norrænna sveitarstjórna ráðherra í Finnlandi. „Ég hlustaði á Papana flytja lög bræðranna í flug- vélinni á leiðinni heim. Flugfreyjan kom til mín og bað mig um að syngja lægra því fólkið aftur í væri að reyna að fara að sofa,“ sagði Kristján. Hvert land lagði fram þrjú lög í kvöld- skemmtun. Einu sinni á ágúst- kvöldi var meðal þeirra laga sem Ísland lagði fram. „Það var hressi- lega tekið undir og gaman að heyra þessa perlu íslenskra sönglaga flutta svo fjarri heimabyggð. Ég held að lagið hafi verið tekið fimm sinnum um kvöldið og Finnarnir voru orðnir déskoti góðir í íslenskunni.“ Myndir og texti: GG Múlastofa opnuð á Vopnafirði „Kúddi og Lóli hefðu verið ánægðir líka“ Kristján L. Möller, samgöngumálaráðherra, kom frá Finnlandi kvöldið fyrir opnunina. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, eftirlifandi eiginkona Jóns Múla, klippti á borða og opnaði Múlastofu formlega. Glatt á hjalla. Einar Már Sigurðarson og Helga Steinsson skemmtu sér ásamt öðrum gestum.Þingmaðurinn horfir á bræðurna. Björn G. Björnsson leiðsegir Steingrími J. Sigfússyni um sýninguna.

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.