Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Side 11

Austurglugginn - 14.08.2008, Side 11
 Fimmtudagur 14. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 11 Héraðshátíðin Ormsteiti hefst annað kvöld og stendur í tíu daga. Hátíðin hefst með risakarnivali og Héraðsleikum á Vilhjálmsvelli. Á laugardag verður Norður-Héraðsdagur með mikilli hátíð í Möðrudal og Hallormsstaðadagur á sunnudag. Dagskráin heldur áfram næstu níu daga. Nánari upplýsingar um hátíðina eru á www.ormsteiti.is. GG Ormsteiti Frá hverfaleikum í fyrra. Mynd: GG Dagur Jóns Guðmundssonar lærða í Hjaltastaðaþinghá sunnudaginn 10. ágúst fór fram samkvæmt dagskrá og tókst með miklum ágætum. Um 60 manns hlýddu á erindi í félagsheim- ilinu Hjaltalundi þar sem farið var yfir litríka ævi og störf Jóns lærða, fræðastörf hans á ýmsum sviðum, myndverk og teikningar í handritum svo og skáldskap hans. Hjörleifur Guttormsson náttúru- fræðingur setti samkomuna fyrir hönd undirbúningsnefndar og Óðinn Gunnar Óðinsson formaður Menningarráðs Austurlands stýrði fundinum og kynnti ræðumenn. Rússneski rithöfundurinn Leonid Korablev flutti ávarp og útgefnar bækur hans sex talsins lágu frammi til sýnis. Allar eru þær með einum og öðrum hætti tengdar Íslandi, íslenskum þjóðfræðum og kemur Jón lærði þar víða við sögu. Ævisaga hans sem Leonid hefur tekið saman liggur fyrir í handriti. Hjónin Sigursveinn Magnússon tónskólastjóri og Sigrún Valgerður Gestsdóttir söngkona léku á forn hljóðfæri eins og langspil og sungu vísur og stemmur við mjög góðar undirtektir. Eftir samkomuna í Hjaltalundi fór fram minningarathöfn um Jón lærða og konu hans Sigríði Þorleifsdóttur í Hjaltastaðakirkju. Hildigunnur Sigþórsdóttir for- maður sóknarnefndar greindi frá sögu og viðgerðum á kirkjunni sem senn er að ljúka, en hún var byggð af timbri upp úr 1880 í stað torf- kirkju. Guðmundur Rafn Sigurðsson framkvæmdastjóri Kirkjugarðaráðs lýsti lagfæringum á kirkjugarðinum og Hjörleifur Stefánsson arkitekt sagði frá hönnun legsteins yfir þau hjón framan við inngang kirkj- unnar og minningartöflu í forkirkju. Prófasturinn Jóhanna Sigmarsdóttir stýrði helgistund í þéttsetinni kirkj- unni og blessaði minningu Jóns og Sigríðar. Í dagslok gekk um tylft manna að Dalaseli þar sem Jón og Sigríður síð- ast bjuggu skammt innan við Dali í Útmannasveit. Þar eru skýrar rústir og garðlög sem bíða frekari rann- sókna. (fréttatilkynning) Frá „Degi Jóns lærða í Hjalta- staðaþinghá 10. ágúst 2008“ Jón Benjamínsson, jarðfræðingur, afhenti skýrslu sína “Jarðhiti í Fljótsdalshreppi” á sveitarstjórnar- fundi Fljótsdalshrepps 5. ágúst síðastliðinn. Skýrsluna vann hann í verkefnavinnu sem styrkhafi Verkefna- og rannsóknarsjóðs síð- astliðið ár. Fengist hefur styrkur úr Orkusjóði til áframhaldandi rannsóknarvinnu. Auk þess er gert ráð fyrir mótfram- lagi sveitarfélagsins. Jón lagði fram lista yfir þau atriði sem hann telur æskilegt að vinna í sumar og haust. Sveitarstjórn samþykkti að greiða kostnað við sýnagreiningar sem nú er um 300 þúsund krónur. Einnig var samþykkt að standa straum af þeim kostnaði sem hlýst af uppihaldi, sýnagreiningum og öðrum útlögðum kostnaði Jóns á yfirstandandi ári. Komi til þess að tilraunaholur verði boraðar á árinu greiðist sá kostnaður úr sveitarsjóði. Fjármagn til verkefn- isins verður tekið af óráðstöfuðu fé frá síðasta ári. Jarðhiti í Fljótsdal Hið árlega Einarsstaðamót fór fram um helgina. Keppt var í öllum ald- ursflokkum í gæðingakeppni, auk tölts. Félagar úr Hestamannafélaginu Freyfaxa og Blæ létu sig ekki vanta á mótið. Hinir síungu Þórður Júlíusson úr Blæ og Ármann Örn Magnússon kepptu þar meðal annars með góðum árangri. Ármann varð annar á hesti sínum Blæ frá Egilsstaðabæ í öld- ungaflokki og í sjötta sæti í tölti, en þar atti hann kappi við marga af bestu hestum Norðurlands. Linda Hrund Káradóttir úr Freyfaxa náði bestum árangri Austfirðinga. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði unglingaflokk á hesti sínum Fálma frá Fremri Hálsi. Endurtók hún þar með leikinn frá því í fyrra, og var vel að sigrinum komin eftir að hafa verið hársbreidd frá úrslitum á Landsmóti fyrr í sumar. Í forkeppni má segja að ljóst var í hvað stefndi því Linda reið hesti sínum af miklum krafti, og ljóst að erfitt var fyrir aðra keppendur að komast með tærnar þar sem hún var með hælana. Hestaíþróttir Ekkert hálfkák hjá Lindu og Fálma

x

Austurglugginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.