Austurglugginn


Austurglugginn - 26.10.2012, Síða 12

Austurglugginn - 26.10.2012, Síða 12
Jeppaklúbburinn 4x4 á Austurlandi hélt í sína árlegu ferð með fatlaða sl. laugardag. Þetta er annað árið í röð sem félagið fer í slíka ferð. Skemmtunin, gleðin og eftirvæntingin gerir það að verkum að félagið hefur ákveðið að hafa þennan viðburð árlegan. Eftirvæntingin og spennan skein af andlitum einstaklinganna í ferðinni og allir skemmtu sér konunglega. Lagt var af stað frá Egilsstöðum um kl. 10:00 laugardagsmorguninn og haldið inn Fljótsdalinn, yfir Hallormsstaðaháls og á Arnhólsstaði þar sem boðið var upp á vöfflur, pönnukökur, kakó og alls- kyns góðgæti sem kvenfélag Bláklukkna aðstoðaði við. Hópurinn skilaði sér svo til baka á Egilsstaði rétt fyrir klukkan 15:00 á laugardeginum. Björgunarsveitin á Héraði og Brunavarnir Austurlands lánuðu 4x4 jeppaklúbbnum bíla í ferðina og Samfélagssjóður Alcoa styrkti félagið við verkefnið. Skemmtu sér vel með 4x4 klúbbnum Hópurinn virti fyrir sér glæsilegt útsýni í fallegu veðri á Hallormsstaðahálsi. Miklar samræður áttu sér stað í gegnum talstöðvarnar. Sagðir voru brandarar, sögur og Matti fór í hlutverk flugþjóns og gaf iðulega upp áætlaðan komutíma og var duglegur við að ítreka mikilvægi þess að spenna beltin, huga að útgönguleiðum og hafa sætisbök upprétt. Um 30 einstaklingar fóru í ferðina með 4x4. Hér er hópurinn fyrir utan Arnhólsstaði eftir vel lukkað kaffisamsæti. Lagt á ráðin. Þau höfðu beðið þessarar ferðar með mikilli eftirvæntingu og voru aldeilis ekki svikinn enda skemmtu allir sér mjög vel.

x

Austurglugginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.