Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 9
Fréttabréf AFLs
4. tbl. 2019
Dreift um allt Austurland
Ábyrgðarmaður: Sverrir Albertsson
Flóknar og margþættar viðræður
um styttingu vinnuvikunnar
eru helsta ástæðan fyrir að
samningaviðræður Starfsgreina-
sambandsins (SGS) við íslenska
ríkið og Samband íslenskra
sveitarfélaga hafa gengið treglega.
Viðræður við sveitarfélögin hafa
gengið sérstaklega hægt. Nokkuð
þokaðist í samkomulagsátt á fundi
í síðustu viku áður en nýtt bakslag
kom í lok vikunnar.
Samningar SGS við bæði ríki og
sveitarfélög hafa verið lausir frá
31. mars síðastliðnum og viðræður
staðið yfir síðan í vor, með hléum
vegna sumarfría. Viðræðurnar
við sveitarfélögin eru komnar til
ríkissáttasemjara en viðræðurnar við
ríkið eru enn á forræði samningsaðila.
„Helsta ástæðan fyrir að
viðræðurnar hafa dregist er að það
næst illa saman um kröfugerðina sem
liggur fyrir. Þar er meðal annars verið
að ræða um styttingu vinnutíma sem
er mjög flókin og umfangsmikil
breyting í því vaktaumhverfi sem
gildir hjá stofnunum ríkis og
sveitarfélaga.
Um leið eru sveitarfélögin,
ríkið og svo Reykjavíkurborg,
sem ekki tilheyrir samninganefnd
sveitarfélaganna, líka að ræða
við BSRB og BHM. Allir þessir
aðilar taka þátt í viðræðum um
styttingu vinnuvikunnar. Þetta
tengist allt saman og það flækir
málið enn frekar að verið sé að
ræða við marga aðila á svipuðum
nótum. Það sést ekki enn móta
fyrir niðurstöðu í þessum málum,“
segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir,
formaður AFLs starfsgreinafélags,
sem situr í viðræðunefnd SGS við
sveitarfélögin.
Hreyfing í rétta átt í
síðustu viku
Fundað var með ríkinu á mánudaginn
í síðustu viku og sveitarfélögunum
daginn eftir. Hjördís segir að heldur
hafi þokast í samkomulagsátt á
fundinum með sveitarfélögunum.
„Það standa þó enn út af borðinu
málefni sem eftir er að ná saman
um.“ Búið var að boða nýja fundi í
byrjun þessarar viku en tíðindi frá
þeim lágu ekki fyrir er fréttabréfið
fór í prentun.
Hins vegar boðuðu nokkur
sveitarfélög umtalsverðar hækkanir
á gjaldskrám sínum eftir fundinn.
Þannig hefur Kópavogur boðað
30% hækkun á leiguverði félagslegra
íbúða og áður hafði verið boðuð
14% hækkun á sorphirðu og
eyðingu á Hornafirði. Þá samþykkti
bæjarstjórn Grindavíkur 18-36%
hækkun á þóknun kjörinna fulltrúa
í síðustu viku. Samþykktin var
dregin til baka daginn eftir í ljósi
kjaraviðræðnanna, en skaðinn virðist
skeður. SGS fordæmdi hækkanirnar
í ályktun og benti á að þær væru í
hróplegu ósamræmi við markmið
lífskjarasamninganna frá í vor um
að halda aftur af gjaldskrárhækkun.
„Þessar hækkanir ekki til þess
fallnar að liðka fyrir samningum.
Þetta er eins og blaut tuska í andlit
launafólks,“ segir Hjördís.
Fleiri málefni eru óleyst í
viðræðunum. Hjá sveitarfélögunum
er verið að ræða málefni
tímavinnufólks og segir Hjördís
það vera að gefnu tilefni því ýmis
mál hafi komið upp varðandi þá
starfsmenn síðustu misseri. Eitt slíkt
liggur fyrir félagsdómi og er beðið
úrlausnar þess.
Skærur við sveitarfélögin
Þótt hægt hafi gengið segir Hjördís
að viðræðurnar við ríkið hafi verið
á vinsamlegum nótum. Það sama sé
ekki hægt að segja um viðræðurnar
við sveitarfélögin. „Okkur hérna
megin við borðið hefur fundist
sveitarfélögin verið frekar erfið.
Þar hafa komið upp ýmis mál
sem ekki hafa auðveldað úrlausn
samninganna.“
Ríkið samþykkti í sumar að
greiða starfsmönnum innágreiðslu
vegna tafa á nýjum samningum.
Sveitarfélögin samþykktu það ekki
strax, að sögn Hjördísar vegna
óánægju með að SGS var þá búið
að vísa viðræðunum til sáttasemjara.
„Við áttum mjög erfitt með að sætta
okkur við það.“
Innágreiðslan var greidd tveimur
mánuðum síðar, eftir að SGS dró
vísun sína til ríkissáttasemjara
til baka. Skömmu seinna vísaði
samninganefnd sveitarfélaganna hins
vegar málinu til ríkissáttasemjara,
meðal annars vegna óánægju
með ályktun þings SGS um
kvennafrídaginn. Í henni var vikið
að stöðu ófaglærða verkakvenna
sem þess hóps sem mest hallaði á í
samfélaginu. Hagsmunir þeirra eru
meðal annars undir í viðræðunum
við ríkið og sveitarfélögin og
sagði í ályktuninni að þeim væri
sýnd takmarkalaus lítilsvirðing í
viðræðunum.
Þá bætti það ekki samskiptin
þegar myndband birtist af kynningu
formanns samninganefndar
sveitarfélaganna um kröfugerð
SGS þar sem gert var grín að
starfsmönnum sveitarfélaganna.
Hjördís vonast þó til að málin séu
á leið í rétta átt eftir fundina í síðustu
viku. „Við höfum verið undir það
búin að fara í aðgerðir til að þrýsta
á um samninga. Til þess þurfum við
fyrst að lýsa yfir árangurslausum
fundi og þar sem málin þokuðust
heldur í síðustu viku er ekki alveg
komið að þeim tímapunkti að lýsa
yfir árangurslausum fundi.“
Kjaraviðræður við ríki og sveitarfélög
Stytting vinnuvikunnar flóknasta
viðfangsefnið
Hjördís Þóra með Birni Snæbjörnssyni og Flosa Eiríkssyni frá Starfsgreinasambandinu á samningafundi. Mynd: Ernir Eyjólfsson