Austurglugginn - 05.12.2019, Qupperneq 11
Fréttabréf AFLs Starfsgreinafélags
Sjúkrasjóður AFLs greiddi 170 milljónir
á síðustu 12 mánuðum
Síðustu 12 mánuði hefur
Sjúkrasjóður AFLs greitt út yfir
1.800 styrki – stóra og smáa – alls
að upphæð 37,2 milljónir króna. Að
auki hefur sjóðurinn greitt út um
130 milljónir í sjúkradagpeninga.
Sjúkrasjóður AFLs er vel
settur og hefur síðustu ár bætt í
réttindi félagsmanna. Sjóðurinn
greiðir nú eitt hæsta hlutfall af
meðallaunum sjóðsfélaga – eða
85% af meðallaunum síðustu 6
mánaða. Frá þeirri upphæð eru
dregnir frá sjúkradagpeningar frá
Sjúkratryggingum Íslands – um 53
þúsund krónur. Sjóðurinn er þó með
hámark og geta sjúkradagpeningar
ekki orðið hærri en 933 þúsund
krónur á mánuði (upphæð breytist
með launavísitölu tvisvar á ári).
Réttur félagsmanna til
sjúkradagpeninga er allt að 120
dagar fyrir félagsmenn á almenna
markaðinum, 60 dagar fyrir
starfsmenn sveitarfélaga og 90
dagar fyrir starfsmenn ríkisstofnana
– enda er veikindaréttur lengri hjá
þessum félagsmönnum og framlag
launagreiðanda til sjúkrasjóðs lægra.
Í sérstökum tilfellum er unnt að
sækja um framlengingu á greiðslum
í 1-2 mánuði en það er aðeins gert
í sérstökum tilfellum. Starfsfólk
AFLs reynir að beina þeim sem
glíma við langvinn veikindi til
ráðgjafa Virk og aðstoða við að
sækja um endurhæfingarlífeyri eða
tímabundna örorku þar sem það á
við.
Greiðslur úr sjúkrasjóðum
verkalýðsfélaganna eru mikilvægar
til að fjölskyldur haldi fjárhagslegu
sjálfstæði sínu við veikindi eða
slys – en sjúkrasjóðirnir eru ekki
ýkja gamlir og fyrir 1960 var ekki
óalgengt að fjárhagur launafólks
hryndi algerlega við alvarleg
veikindi.
8 millj.
7 millj.
6 millj.
5 millj.
4 millj.
3 millj
2 millj
1 millj
0
600
500
400
300
200
100
0
Dán
arb
ætur
Fe
rðast
yrk
ur
Upphæðir
Hjar
tav
ernd
Sjú
kra
þjál
fun
Fjöldi styrkja
Heilsu
eflin
g
Glerau
gu
Heyrn
art
æki
La
serað
ge
rð
Tæ
kn
ifrj
óvg
un
Krab
bam
einsko
ðun
Sá
lfræ
ðiþjónusta
Styrkir sjúkrasjóðs AFLs síðustu 12 mánuði
1.800 félagsmenn fengu 52 milljónir
Félagsmenn AFLs hafa aðgang
að sjö starfsmennasjóðum sem
styrkja félagsmenn til margvíslegrar
endurmenntunar og fræðslu. Á
síðustu tólf mánuðum fengu tæplega
tvö þúsund félagsmenn samtals
rúmar 50 milljónir í þrjú þúsund
styrkafgreiðslum. Meðalstyrkur á
hvern félagsmann er um kr. 60.000.
Langstærsti menntasjóðurinn
sem AFL á aðild að er Landsmennt
-menntas jóður a lmennra
starfsmanna á almenna markaðnum
utan höfuðborgarsvæðis. Styrkir
Landsmenntar síðustu 12 mánuði
nema um 30 milljónum króna og
dreifast á 560 félagsmenn. Næstur
hvað varðar fjölda er Sveitamennt
með tæpa 200 styrki samtals að
upphæð um 8 milljónir króna.
Nánast allir styrkir menntasjóða
fara til námskeiða sem flokka
má sem starfstengd, annað hvort
í núverandi starfi félagsmanns,
eða hann vinnur að því að auka
menntun sína og færni. Þannig eru
tómstundastyrkir aðeins um tuttugu
talsins og að upphæð um 500.000,
eða 1% af heildarstyrkjum.
Stærsta styrkflokkur þvert á alla
sjóði er styrkur vegna háskólanáms,
eða um 20% allra styrkja og 25%
heildarstyrkupphæðarinnar. Þannig
fá yfir 200 einstaklingar styrk
til háskólanáms, samtals yfir 13
milljónir króna.
Fjöldi
Tegundir styrkja og upphæðir
Annað
Aukin
öku
réttin
di
Fe
rða-
og d
va
lar
sty
rku
r
Fra
mhald
sn
ám
-fj
arn
ám
15 millj.
12 millj.
9 millj.
6 millj.
3 millj.
0
250
200
150
100
50
0
Hásk
ólan
ám
Ísle
nska
fy
rir
útle
ndinga
Sta
rfs
tengt
nám
/n
ám
ske
ið
Tó
mstu
ndan
ám
ske
ið
Fjöldi
Menntasjóðir - fjöldi styrkja og upphæðir
Landsmennt Sveitamennt Verslunar- og
skrifstofufólks
Ríkismennt Sjómennt IMA
35 millj.
30 millj.
25 millj.
20 millj.
15 millj.
10 millj
0
600
500
400
300
200
100
0