Nesfréttir - 01.08.2021, Side 9

Nesfréttir - 01.08.2021, Side 9
Nesfrétt ir 9 þátttöku. Þetta ættum við að gera líka og vonast ég til að bæjarstjórn snúi þessum niðurskurði við svo að börnin okkar fái tækifæri til að alast upp í sama öfluga og skapandi félagsstarfi eins og við sem eldri erum fengum að kynnast. Hóf sinn pólitíska feril í Sjálfstæðisflokknum Þegar Guðmundur Ari starfaði sem forstöðumaður í Selinu hélt hann utan um valáfanga í Valhúsaskóla sem heitir félagsmálafræði. Eftir að hafa haldið fyrirlestur um mikilvægi þess að krakkarnir taki virkan þátt í nefndum og félagslífi skólans fann hann að hann þyrfti að vera virkur þátttakandi sjálfur. „Þegar ég labbaði úr þessari kennslustund hugsaði ég hversu mikill hræsnari ég væri þar sem ég var sjálfur ekki virkur í neinum ákvörðunum í mínu nærumhverfi. Ég ákvað því að mæta á fund hjá Sjálfstæðisfélaginu á Seltjarnarnesi þar sem ég var ekki búinn að móta pólitískar skoðanir mínar og Sjálfstæðismenn voru við völd svo ég hugsaði að þar væri hægt að hafa áhrif. Það þurfti svo reyndar bara einn fund þar sem fjallað var um skóla- og tómstundastarfið á Nesinu að ég gerði mér grein fyrir því að mín sýn um öflugt menntakerfi rúmaðist ekki á fundinum þar sem megininntak í umræðunum var um hvernig mætti skera niður þjónustuna.“ Eftir þetta stutta stopp hjá Sjálfstæðismönnum mætti Guðmundur Ari á fundi hjá Samfylkingunni, þar var honum stillt upp í annað sæti á lista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2014 sem skilaði sæti í bæjarstjórn Seltjarnarness. „Það var ótrúlega skemmtileg upplifun að taka þátt í kosningum í fyrsta skipti árið 2014. Í Samfylkingunni var ótrúlega samheldinn og skemmtilegur hópur sem Margrét Lind Ólafsdóttir leiddi. Það var mjög lærdómsríkt að sitja með Margréti Lind í bæjarstjórn enda var hún mjög öflugur sveitarstjórnarmaður og er hún hin Maggan sem kenndi mér svo margt, studdi vel við bakið á mér og hvatti mig áfram.“ Í sveitarstjórnarkosningunum 2018 leiddi Guðmundur Ari lista Samfylkingarinnar og fékk framboðið aftur tvö menn kjörna í bæjarstjórn.“ Innkoma í landsmálin Guðmundur Ari hefur einnig haft afskipti af landsmálum. Hann er nú í fjórða sæti á framboðslista Samfylkingarnar í Suðvestur kjördæmi eða kraganum eins og það er oft kallað. „Ég er mjög spenntur fyrir kosningunum framundan og vonast ég eftir að fá góðan stuðning svo að ég fái tækifæri til þess að stíga inn á Alþingi sem varaþingmaður til að berjast fyrir málefnum ungs fólks, umbótum í menntamálum ásamt stórum skrefum í umhverfis- og heilbrigðismálum. Maður hefur rekið sig á það í bæjarstjórninni og ekki síður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga að það þarf öflugri talsmenn sveitarfélaga inn á Alþingi. Á Alþingi er sífellt verið að setja lög sem auka kröfur á sveitarfélög um kostnaðarsama þjónustu án þess að fjármagn fylgi. Þetta verður til þess að svigrúm sveitarfélaga til þess að veita íbúum sínum öfluga þjónustu minnkar sem verður til þess að fleiri íbúar falla á milli kerfa sem endar svo sem stór kostnaðarliður á ríki og sveitarfélög í framtíðinni.“ Úr ungmennastarfi á Seltjarnarnesi. Bílastuð Eignaumsjónar - þrjár þjónustuleiðir í boði: » Bílastuð 0 - úttekt á hleðsluaðstöðu og framkvæmdaáætlun » Bílastuð 1 - sérhæfð innheimta fyrir húsfélög vegna rafbílahleðslu » Bílastuð 1+1 - heildarumsjón með rafbílahleðslu í húsfélögum Er hleðslukerfi rafbíla hausverkur í húsfélaginu? STUÐ 1 Við aðstoðum við að leysa málin með hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi! Allt frá úttekt á fyrirkomulagi til heildarumsjónar með rafbílahleðslukerfi húsfélagsins. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is 2x14 = 99 m x 140 m STUÐ 0 U m h v e r f i s v æ n í s l e n s k h ö n n u n

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.