Íslenzk fyndni - 01.06.1938, Page 2
Þessi mynd er af JUNE-MUNKXELL DIESEL MÓTOR, sem
ætlaður er trillubátum. Vélin er sett i gang köld, og þarf
hvorki lampaþrýstiloftsgeymi, rafkveikju né patrónu. öll eld-
hætta því útilokuð. Brennsluolíueyðsla aðeins ca. 185 gr. á
hestaflstímann af HRÁOLlU. Þrýstismurning yfir allt.
Skrúfublöðin hreyfanleg. Skrúfuöxull úr kopar. Vélin gengur
öll, bæði á aðallegum og stimpilbolta í SKF legum, og hefur
lögvemdaðan miðflótta gangráð, og BOSCH olíudælur. Þyngd
kringum 300 kg. á 10 hestaflavél.
Verðið er hið alkunna JUNE-MUNKTELL sanngjarna verð,
og greiðsluskilmálum er reynt að haga sem mest að óskum
kaupenda.
Þeir, sem vilja tryggja sér traustan, olíusparan og gang-
vissan mótor, hvort heldur er I „trillubát" eða stærra skip,
kaupa allir JUNE-MUNKTELL, enda er hann notaður af
bátumun, sem fiska mest ag ganga bezt.
Leitið allra upplýsinga hjá umboðsmanninnm:
Gísla J. Johnsen
Símar 2747 & 3752. Reykjavík.