Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 1
Allar mælingar sýna
mikinn stuðning
Íslendinga við líffæra-
gjafir.
Tómas
Guðbjartsson,
hjarta- og
lungna-
skurðlæknir
2 4 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 3 . N Ó V E M B E R 2 0 2 2
Airwaves á
fullum krafti
Skáldaðar
minningar
Lífið ➤ 26Menning ➤ 24
Krónan
mælir með!
Mmm ...
Sætar og safaríkar
perur eru bestar
núna!
Alls hafa 24 Íslendingar
gengist undir hjartaígræðslu.
Á þessari öld hefur hjarta-
gjöfum hér fjölgað langt
umfram innlenda eftirspurn.
ser@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Íslendingar gefa
nú næstum tvöfalt f leiri hjörtu
en þeir þiggja samkvæmt nýrri
rannsókn vísindamanna Háskóla
Íslands og Landspítala sem sagt
er frá í nýjasta hefti Læknablaðs-
ins. Ástæðuna má rekja til þess
að hjartagjöfum hér á landi hefur
fjölgað umtalsvert á síðustu tveim-
ur áratugum.
Það sem af er öldinni hafa 42
hjörtu verið gefin frá Íslandi. Hefur
þeim fjölgað úr tæplega einu hjarta
á ári á fyrri hluta tímabilsins í þrjú
hjörtu á ári á síðari hlutanum.
„Allar mælingar sýna mikinn
stuðning Íslendinga við líffæra-
gjafir,“ segir Tómas Guðbjartsson,
hjarta- og lungnaskurðlæknir, sem
vann að rannsókninni ásamt Atla
Steini Valgarðssyni, sérnámslækni
í skurðlækningum í Texas. Tómas
segir að nýjar reglur um ætlað sam-
þykki sjúklinga frá 2019 hafi skipt
sköpum í þessum efnum.
Ma rk mið ra nnsók na r inna r
var að birta heildstætt yfirlit um
tíðni og árangur af hjartaígræðslu
á Íslendingum en einnig kanna
þann fjölda hjarta sem gefinn er
til ígræðslu erlendis og bera saman
við nágrannalöndin. Meðal niður-
staðna er að lífslíkur og lífsgæði
Íslendinga eftir hjarta ígræðslu eru
ágætar og sambærilegar við það sem
best gerist í nágrannalöndunum.
Hjartaígræðslur eru ekki gerðar
hérlendis, en alls hafa 24 Íslendingar
gengist undir slíka aðgerð ytra frá
fyrsta aðgerðinni í Bretlandi 1988,
flestir á Sahlgrenska-háskólasjúkra-
húsinu í Gautaborg. Rannsókn á
afdrifum hópsins sýnir að meðal-
líftími eftir aðgerð var 24,2 ár og
var 91 prósent sjúklinga á lífi einu
ári frá aðgerð og 86 prósent fimm
árum síðar, sem er á pari við stærri
ígræðslusjúkrahús nágrannalanda.
„Ég á ekki von á því að við hefjum
hjartaígræðslur á Íslandi, svo sér-
hæfðar sem aðgerðirnar eru og eftir-
meðferðin flókin,“ segir Tómas Guð-
bjartsson sem hefur ásamt öðrum
íslenskum hjartaskurðlæknum
tekið þátt í ígræðslum erlendis. n
Gefum fleiri hjörtu en við þiggjum
Velkomin í glænýja
verslun á Selhellu
í Hafnarfirði
Bæjarstarfsmenn settu upp jólatré við Fífuhvammsveg í gær. Þó að enn sé ekki byrjað að snjóa er vetur konungur byrjaður að minna á sig og veður fer kólnandi í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SLYSAVARNIR Síðastliðinn áratug
hefur banaslysum sjómanna fækkað
verulega og hefur ekkert banaslys
orðið síðustu fimm ár.
„Okkur hefur tekist að koma að
þekkingu hjá sjómönnum sem þeir
eru að nýta sér, en þetta snýst um
breytt viðhorf,“ segir Hilmar Snorra-
son, skólastjóri Slysavarnaskóla sjó-
manna. „Það er eitt að kenna, en
annað hvernig sjómaðurinn vinnur
úr því.“ Samgöngustofa kynnti í gær
nýtt skráningarkerfi þar sem hægt
er að tilkynna slys rafrænt. SJÁ SÍÐU 8
Alvarlegum
sjóslysum fækkað
Hilmar Snorra-
son, skólastjóri
Slysavarnaskóla
sjómanna