Fréttablaðið - 03.11.2022, Page 4

Fréttablaðið - 03.11.2022, Page 4
Samtals hafa Íslög feng- ið greiddar tæplega 217 milljónir frá fjár- málaráðuneytinu og Lindarhvoli frá 2016. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP.IS PLUG-IN HYBRID ÓMISSANDI HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmda­ stýra Kvenna­ athvarfsins lovisa@frettabladid.is SAMFÉLAG Í dag hefst í Gallerí Fold uppboð á verkum til styrktar Kvennaathvarfinu. „Kvennaathvarfið er neyðarat- hvarf og þar er ávallt pláss en það er farið að þrengja ansi vel að athvarfinu og aðstaða til að taka viðtöl, sinna hópastarfi og starfs- mannaaðstaða er af mjög skornum skammti. Mest aðkallandi eru þó aðgengismálin, en gamla húsnæðið er ekki aðgengilegt öllum konum og það er eitthvað sem er mjög brýnt að bæta,“ segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Uppboðið hefst klukkan 17 í Gall- erí Fold. Boðið verður upp á veiting- ar og tónlistaratriði. Á heimasíðu Kvennaathvarfsins má lesa meira um söfnunina og hvernig má leggja henni lið. n Kvennaathvarfið safnar fyrir húsi Milljarðar fara í súginn vegna skaðlegrar áfengisneyslu, 3–5 prósent af þjóðarframleiðslu. Á sama tíma og Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin hvetur ríki til að minnka áfengis- neyslu um 10 prósent er áhersla á Íslandi á aukið frelsi og þjónustu, að sögn verk- efnisstjóra hjá landlækni. bth@frettabladid.is LÝÐHEILSA Rafn M. Jónsson, verk- efnisstjóri hjá Embætti landlæknis, gagnrýnir andvaraleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart skaðsemi áfengisneyslu hér á landi. Mót- sagnir séu í áherslum og umræðu um áfengismál. Í erindi sem Rafn f lutti á ráð- stefnu SÁÁ um fíknivanda í gær á Hilton Nordica, þar sem kallað er eftir auknu samstarfi milli aðila, sagði Rafn rannsóknir sýna að sam- félagslegur fórnarkostnaður sem hlytist af neikvæðum afleiðingum áfengisneyslu hér á landi væri 3 til 5 prósent af vergri þjóðarfram- leiðslu. Á sama tíma og stjórnvöld opn- uðu nýjar leiðir til að auka aðgengi að áfengi með lagabreytingum, nú síðast með því að heimila sölu beint frá framleiðendum, ykist nýgengi skorpulifrar um 10 prósent árlega og margt f leira mætti nefna um fórnarkostnaðinn. Stór hluti krabbameina tengist ofneyslu áfengis og alkóhólismi er fjölskyldusjúkdómur sem veldur geigvænlegum skaða, að því er fram kom á ráðstefnunni. Þrjár milljónir manna deyja árlega vegna áfengis- neyslu, langflestir í Evrópu þar sem Fulltrúi landlæknisembættisins gagnrýnir stjórnvöld í áfengismálum Frá ráðstefnu SÁÁ um fíkni­ vanda í gær sem haldin var á Hilton Nordica. MYND/GRÍMUR KOLBEINSSON Ég brýni stjórnmála- menn til að sýna hug- rekki í þessum efnum. Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis olafur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Frá því í ágúst 2018 og út júlí 2022 hafa Íslög, lítil lög- mannsstofa í eigu hjónanna og lögmannanna Steinars Þórs Guð- geirssonar og Ástríðar Gísladóttur, fengið 76,2 milljónir króna greiddar frá fjármálaráðuneytinu fyrir lög- fræðiþjónustu. Þetta eru 55 prósent af öllum lögfræðikostnaði ráðu- neytisins á þessum tíma. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær gerði Sigurður Þórðarson, sem var settur ríkisendurskoðandi til að fylgjast með framkvæmd samn- ings milli fjármálaráðuneytisins og Lindarhvols ehf. sem falið var að selja eignir sem ríkið fékk í stöðug- leikaframlag frá þrotabúum föllnu bankanna, alvarlegar athugasemdir við starfsemi Lindarhvols. Meðal þess sem Sigurður gagn- rýndi í greinargerð voru mjög mikil umsvif Steinars Þórs á vegum stjórnar Lindarhvols. Á þeim tveim- ur árum sem félagið starfaði greiddi Lindarhvoll tæpar 120 milljónir til lögmannsstofu Steinars Þórs. Frá því að starfsemi Lindarhvols var Háar fjárhæðir án útboðs til lítillar lögmannsstofu mest er drukkið að sögn Rafns. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- in, WHO, hefur lagt til við aðildar- ríki að þau bregðist við vaxandi meðvitund um skaðsemi drykkju. WHO hvetur lönd til að setja stefnu sem hafi að markmiði að minnka áfengisneyslu um 10 prósent. Á sama tíma bendir Rafn á að Íslendingar auki aðgengi að áfengi sem aldrei fyrr og sé beint sam- band milli aukins vanda og aukins aðgengis. Frumvarp liggur fyrir Alþingi um að ÁTVR verði heimilt að selja áfengi á sunnudögum. „Þegar Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin spyr mig sem ráðgjafa íslenskra stjórnvalda hvert við stefnum, þá svara ég: Við erum ekki að standa okkur,“ sagði Rafn í erindi sínu. Til marks um aukningu í neyslu má nefna að Íslendingar drukku um fjóra lítra af hreinu alkóhóli árið 1989 en núna átta. Á sama tíma og drykkja eykst er minna fé varið til forvarna en áður. „Ég brýni stjórnmálamenn til að sýna hugrekki í þessum efnum. Það er ekki nóg að einblína bara á frelsi og þjónustu, við þurfum heildar- myndina,“ segir Rafn. n hætt í febrúar 2018 hefur félagið greitt lögmannsstofunni röskar 20 milljónir, samtals 140,5 milljónir. Samtals hafa Íslög fengið greiddar tæplega 217 milljónir frá fjármála- ráðuneytinu og Lindarhvoli frá 2016. Eru þá ótaldar greiðslur frá Seðlabankanum en Steinar Þór hefur sinnt ýmsum verkefnum fyrir Eignasafn Seðlabanka Íslands. Samkvæmt reglugerð fjármála- ráðuneytisins um vöru- og þjónustu- kaup ber opinberum aðilum að fara í opið útboð sé verðmæti verkefna meira en 18,5 milljónir króna. n olafur@frettabladid.is STJÓRNMÁL Stuðningsmenn Guð- laugs Þórs Þórðarsonar í Kópavogi og Reykjavík eru æfir út í Bjarna Bene- diktsson og stuðningsmenn hans vegna þess sem þeir kalla bolabrögð. Í samtali við Fréttablaðið sakaði rótgróinn trúnaðarmaður flokksins Jón Gunnarsson um að hafa gengið fram með ógeðfelldum hætti við að bola 30 fulltrúum úr Kópavogi út af landsfundi á tækniatriði. Brynjar Níelsson, formaður kjör- bréfanefndar, segir ýmis vandamál hafa komið upp varðandi kjörbréf. Verið sé að reyna að leysa úr þeim til að sem flestir verði sáttir. Erfitt sé hins vegar að gera öllum til hæfis. Einnig hefur verið fullyrt að verið sé að dusta rykið af aflögðum Sjálf- stæðisfélögum og kjósa frá þeim fulltrúa andstætt reglum flokksins. Brynjar segir ýmis álitamál vera uppi og tíminn naumur. „Þetta er ekkert nýtt í f lokknum í kringum lands- fundi og prófkjör,“ segir hann. n Ásakanir um bolabrögð Bjarna 4 Fréttir 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.