Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 22
Lífsstílstímaritið GQ tók
nýlega saman lista yfir þá
leikmenn NBA-deildarinnar
sem þykja skara fram úr í
klæðaburði.
starri@frettabladid.is
NBA-deildin í körfubolta hófst um
miðjan októbermánuð og hefur
spennan sjaldan verið meiri enda
deildin óvenju jöfn þennan vetur-
inn. Eins og með fleira íþróttafólk
fylgist tískupressa heimsins með
klæðaburði körfuboltastjarnanna
en margir leikmenn deildarinnar
eru þekktir fyrir afar litfagran og
skrautlegan fatastíl. Nýlega tók
líf sstílstímaritið GQ saman lista
yfir þá leikmenn deildarinnar sem
þykja búa yfir svalasta fatastílnum.
Lítum á nokkra leikmenn af listan-
um. n
Vel klæddar
körfuboltastjörnur
Jordan Clarkson hefur leikið með
Utah Jazz undanfarin ár. Hann er
óhræddur við að klæða sig með
fjölbreyttum hætti og þykir jafn
flottur í „baggy grunge“ fötum
eða pilsum og flestu þar á milli.
Russell Westbrook, leikmaður Los Angeles Lakers, hefur
lengi verið einn skrautlegasti leikmaður deildarinnar
þegar kemur að klæðaburði og ekki síst skærum litum.
Hér er hann á tískuvikunni í sumar.
P.J. Tucker er fjórði
elsti leikmaður
deildarinnar en
þó meðal þeirra
svalari þegar
kemur að klæða-
burði. Hann safnar
íþróttaskóm og á
um 5.000 pör.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Shai Gilgeous-
Alexander,
leikmaður
Oklahoma City
Thunder, þykir
hafa mjög frjóan
fatastíl og er
óhræddur við að
blanda saman
ólíkum stílum.
Jalen Green, leikmað-
ur Houston Rockets,
átti ekki bara gott
tímabil innan vallar á
sínu fyrsta ári heldur
vakti klæðaburður
hans líka athygli.
Jayson Tatum er ekki
bara skærasta stjarna
gamla stórveldisins
Boston Celtics heldur
líka best klæddi
leikmaður liðsins að
flestra mati.
Í vefverslun okkar á ggsport.is má finna meira úrval af öllu sem þarf í ævintýrið þitt!
Smiðjuvegur 8, græn gata • 200 Kópavogi • Sími: 571-1020 • ggsport.is
Opnunartími: Virkir dagar 10:30-18, laugardagur 11-15
ERT ÞÚ KLÁR
Í VEIÐINA?
Stingum af…
Við hjálpum þér að
velja rétta búnaðinn!
6 kynningarblað A L LT 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR