Fréttablaðið - 03.11.2022, Page 26
Sóknarlína
liðsins er
svo hrika-
lega spenn-
andi, þar
sem við
erum með
Bayern-
þríburana.
Hrafnkell Freyr
Ágústsson
Til að
íþróttin
vaxi og
dafni þurfa
allir að róa
í sömu átt.
17
HM KARLA
Í FÓTBOLTA
DAGAR Í
Heimsmeistaramótið 2022: E-riðill
Innbyrðis viðureignir
23. nóv.
27. nóv.
27. nóv.
23. nóv.
1. des.
1. des.
Leikjadagskrá
Heimild: FIFA Mynd: Getty © GRAPHIC NEWS
Leikmaður til að fylgjast með:
012
014 220
001
988 001
Kosta Ríka Þýskaland Japan
Spánn
Japan
Þýskaland
TapJafnt.Sigur
Ferran Torres SPÁ
Ákall um að taka Heims-
meistaramótið í fótbolta af
Katar bar engan árangur,
aðbúnaður verkamanna,
mannréttindabrot og annað
hefur verið harðlega gagn-
rýnt og krafa verið uppi um
að Katar fengi ekki að halda
þetta stærsta íþróttamót í
heimi. Mótið fer af stað eftir
sautján daga og í E-riðli eru
tveir risar mættir til leiks.
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Spánverjar koma brattir
inn í Evrópumótið enda spilaði
liðið frábæran fótbolta á Evrópu-
mótinu síðasta sumar. Liðið er
með marga unga og spennandi
leikmenn sem hafa öðlast mikla
reynslu síðustu 18
mánuði. Búist
er við miklu
af spænska
liðinu undir
stjórn Luis
E n r i q u e .
Tveir risar í E-riðli en Japanir gætu valdið usla
Eftir erfiða tíma í spænskum fót-
bolta hefur þjóðin trú á liði sínu
sem fer til Katar.
„Ég er alltaf spenntur fyrir
spænska liðinu fyrir stórmót, núna
er kannski mesta spennan hjá þeim
í kringum það hver verður í mark-
inu. Þeir eru með marga mjög svip-
aða markmenn og þó margt benti
til þess að Unai Simon verði þarna
þá eru f leiri góðir kostir. Þetta er
kannski ólíkt þeim spænsku liðum
sem við þekkjum frá fyrri tíð þar
sem mikið var um stjörnur, þetta er
mikið af mörgum jafn góðum leik-
mönnum. Ég hef
mestar áhyggjur
af hjarta varn-
a r i n n a r hjá
þeim, þar hefur
Pau Torres átt
fast sæti en síðan
hefur verið mikið
rót í k r ing u m
hann og það á
líka við um bak-
varðarstöður nar,“
segir Hrafnkell Freyr
Ágústsson, sérfræð-
ingur Fréttablaðsins, um
Heimsmeistaramótið.
„Miðsvæðið er áhugavert en
þar mun Luis Enrique eflaust skipta
mínútum á milli Rodri hjá Man-
chester City og Sergio Busquets hjá
Barcelona. Það er ljóst að Busquets
getur ekki spilað svona þétt og það
verður fróðlegt að sjá hver endar
ofan á þegar líður á mótið. Þarna
eru líka Pedri og Gavi sem eru að
verða þekktar stærðir. Þá vantar að
vera með framherja í stuði, auðvitað
er Alvaro Morata frábær leikmaður.
Hann fær alltaf gagnrýni en hann
hefur spilað fyrir fjölda stórliða,
það gerist ekki nema að gæði séu til
staðar. Hann fór hins vegar illa með
færin á Evrópumótinu í fyrra og þarf
að gera betur þar. Ferran Torres er í
miklu uppáhaldi hjá Enrique þrátt
fyrir að vera aukaleikari í Barcelona.
Það verður fróðlegt hvernig hann
stillir upp sóknarlínunni.“
Þýska stálið
Hansi Flick er undir pressu að koma
þýska liðinu aftur í fremstu röð eftir
mögur ár. Í Þýskalandi eru gerðar
kröfur á árangur og þýska liðið
gæti látið til skarar skríða í Katar.
Nokkur kynslóðaskipti hafa átt sér
stað í liðinu en Flick hefur þó haldið
í reynslumikla menn. Spennandi
verður að sjá hvernig Jamal Musiala
tekst til en hann hefur verið frábær
með FC Bayern undanfarið. „Ég sé
alveg að þetta þýska lið geti farið
langt ef allt smellur saman en ég á
mjög erfitt með að sjá þá fara alla
leið,“ segir Hrafnkell um þýska stálið.
„Þetta er lið í uppbyggingu eins og
Spánn en þeir eru bara ekki komnir
eins langt í henni. Nico Schlotter-
beck og Niklas Süle hafa spilað mikið
saman í Dortmund og það ætti að
hjálpa varnarleik liðsins þar sem
Antonio Rudiger er fyrir og er límið
í þessu öllu saman. Bakvarðarstöð-
urnar hafa verið smá vandræði og
þar hafa bæði kantmenn og miðju-
menn þurft að hlaupa í skarðið. Það
verður fróðlegt að sjá hvort Thomas
Muller fái traustið í hópnum, Flick
hefur aðeins verið að sækja í reynsl-
una sem Joachim Löw hafði hent
á haugana. Hann mun eflaust ekki
kalla til Jerome Boateng en hann
gæti leitað í smá reynslu til að fá jafn-
vægi í hópinn. Sóknarlína liðsins er
svo hriklega spennandi, þar erum
við með Bayern-þríburana, Leroy
Sana, Serge Gnabry og Jamal Musi-
ala, til að búa til hluti. Timo Werner
með þýska landsliðinu er svo allt
önnur skepna en það sem við þekkj-
um frá Chelsea. Miðsvæðið er svo vel
mannað þar sem Ilkay Gundogan og
Joshua Kimmich ráða ríkjum.“
Ekki góðir kostir
Ekki eru margir góðir kostir í liði
Kosta Ríka en Keylor Navas, mark-
vörður PSG, er stjarna liðsins.
Þarna má einnig finna Joel Camp-
bell en hann var lengi vel í her-
búðum Arsenal. Bryan Ruiz er svo
fyrirliði liðsins en hann hefur átt
f lottan feril bæði í Hollandi og svo
með Fulham. Báðir eru þó komnir
yfir sitt besta skeið á ferlinum.
„Bryan Ruiz virðist ódauðlegur,
hann er með mikil gæði. Þetta er
svo bara liðið hans Keylor Navas
en annars er fátt um fína drætti.
Ég hef enga trú á þessu liði,“ segir
Hrafnkell.
Léttleikandi Japanir
Takehiro Tomiyasu, varnarmaður
Arsenal, er leiðtoginn í liði Japan
en liðið hefur marga leikmenn í
Evrópu. Takumi Minamino, fyrr-
verandi leikmaður Liverpool, er
svo stjarna liðsins en hann hefur í
mörg ár gert vel í Evrópu en er nú í
herbúðum Monaco. „Japanir hafa í
mörg ár gert vel í Þýskalandi. Í vik-
unni sáum við bara Daichi Kamada
með Frankfurt þar sem hann var
hetja í Meistaradeildinni. Takefusa
Kubo er öflugur þarna en hann var
vonarstjarna og fór 18 ára til Real
Madrid. Þar lenti hann í brekku en
er nú að vakna til lífsins eftir að hafa
verið seldur til Real Sociedad, hann
er bara 21 árs. Minamino er skærasta
stjarnan í þessu, hann er í stóru hlut-
verki hjá Monaco í ár eftir að hafa
verið í vandræðum með spilatíma
hjá Monaco.
Japan á alveg að horfa til þess
að stríða Þýskalandi og Spáni, þeir
gerðu vel á Heimsmeistaramótinu
í Rússlandi og við munum eftir
frægum leik við Belgíu þar sem þeir
voru agalegir klaufar. Þeir leika sér
að Kosta Ríka og þá þarf bara einn
sigur til viðbótar. Ég hef trú á að það
gætu orðið óvænt úrslit í þessum
riðli,“ segir sparkspekingur Frétta-
blaðsins. n
Alvaro Mor
ata, framherji
Spánar, er um
deildur en fær
alltaf traustið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Hrafnkell Freyr
Ágústsson,
sérfræðingur
n Utan vallar
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Íslandsmóti karla í knattspyrnu
er lokið en í fyrsta sinn í sögunni
voru 27 leikir á lið. Fyrir tímabilið
var ákveðið að lengja mótið og tví-
skipta deildinni eftir 22 umferðir.
Lengi hefur verið kallað eftir fjölgun
leikja í efstu deildum, bæði karla og
kvenna. Karlarnir fóru af stað í ár og
stefnt er að því að lengja mótið hjá
konunum á allra næstu misserum.
Því miður fyrir þetta nýja fyrir-
komulag var engin spenna á toppi
deildarinnar þetta tímabilið, það
hefði verið ákjósanlegt til að aug-
lýsa ágæti deildarinnar. Það má þó
halda því til haga að engin spenna
hefði verið í 22 leikja móti enda
voru yfirburðir Breiðabliks gríðar-
legir allt frá upphafi móts.
Spennan var hins vegar mjög
mikil á botni deildarinnar og
það var ekki fyrr en í næstsíðustu
umferð sem ljóst var að stórveldið
FH væri ekki að falla úr deildinni,
Leiknir féll úr deildinni í næst-
síðustu umferð og ÍA féll svo úr
deildinni á lokadegi mótsins þó að
fyrir leik hafi verið ljóst að það yrðu
örlögin. Þá var það ekki 100 prósent
öruggt fyrr en á síðasta laugardag.
Um er að ræða vel heppnaða
breytingu að mínu mati, auðvitað
Döpur umræða áhrifafólks í fótboltanum
er ekki allt fullkomið í fyrstu til-
raun en það er afskaplega dapurlegt
að sjá hvernig áhrifafólk í fótbolt-
anum reynir að tala mótið niður.
Knattspyrnusamfélagið hefur ekki
efni á því að tala eigin vöru niður,
það er því dapurt að heyra og lesa
þegar áhrifafólk innan leiksins fer
ófögrum orðum um breytinguna.
Notuð hafa verið stór lýsingarorð,
margir röf la undan lengd tíma-
bilsins en enginn leikmaður röflar
þegar hann tekur við launum í 12
mánuði á ári.
Staðreynd málsins er nú ein-
faldlega sú að gríðarlegt launa-
skrið hefur verið í efstu deild karla
síðustu ár og stærstur hluti leik-
manna fær verulegar upphæðir
greiddar í hverjum mánuði. Það er
því hálf dapurt að kvarta undan því
að þurfa að sinna vinnunni sóma-
samlega í sjö mánuði á ári. Íslensk
félagslið hafa átt í vandræðum í Evr-
ópu og eitthvað þurfti að gera. Fleiri
leikir er augljós fyrsta breyting.
Ekki var allt fullkomið á fyrsta
ári Bestu deildar karla, þá hluti
þarf að laga en til að íþróttin vaxi
og dafni þurfa allir að róa í sömu
átt og tala fótboltann upp en ekki
niður. n
18 Íþróttir 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR