Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 29
Eitt Sett Sörur Krem 3 eggjarauður 100 g vatn 100 g sykur 300 g Eitt Sett rjómasúkkulaði 100 g smjör við stofuhita Botnar 3 eggjahvítur tsk. salt 50 g sykur 200 g flórsykur 200 g möndlumjöl Hjúpur 400 g 56% Síríus Barón súkkulaði HráefniFjöldi 60 kökur 1. Takið smjörið útúr ísskáp svo það nái að mýkjast fyrir skref 4. 2. Byrjið á því að útbúa kremið. 3. Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit. 4. Bræðið Eitt Sett súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við. 5. Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana. 6. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, yfir- og undirhita. 7. Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast. 8. Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og blandið varlega saman við með sleikju. 9. Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút. 10. Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa allavega 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í bakstri. Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna. 11. Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum. Kælið kökurnar í stutta stund. 12. Bræðið loks Barón súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið. Hér er tilvalið að dunda sér við að tempra súkkulaðið en ekki nauðsynlegt. 13. Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar. Bakað úr því besta 1/3

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.