Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Síða 6

Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Síða 6
 IÐNAÐUR OG VERZLUN 4 Húsmæður! Flest af þessu fæsi i næsfu verslun: KREMKEX matarkex PIPARKÖKUR MARIE CREAM CRACKERS BLANDAÐARKÖKUR Frón er orðið, fil þess að fá réffa kexið á borðið en þær eru ekki tæmandi um þessi efni, því að eins og fyrr var getið, skortir mjög á, að fullkomnar upplýsingar séu fyr- ir hendi um iðju- og iðnaðar- störf í landinu. Til þess þó að gefa einhverja hugmynd um, hve iðnreksturinn er orðinn mikill með þjóðinni, skulu hér birt nokkur atriði úr skýrslum um árið 1934. Þá voru í Reykjavík 147 iðn- fyrirtæki, sem greinast þannig: 10 prentsmiðjur, 4 smjöidíkis- gerðir, 9 sælgætis- og efnagerð- ir, 3 brugg, 20 bakarar, 3 skipa- smíðastöðvar, 5 járnsmiðjur, 5 blikksmiðjur, 16 klæðskerar, 8 ýmsar fatagerðir, 2 efnalaugar, 21 trésmiðja, 3 þvottahús, 2 gufu pressanir, 7 saumastofur, 7 hár- greiðslustofur, 3 kemisk iðnfyr- irtæki, 2 kassagerðir, 5 veiðar- færagerðir, 5 ýmiskonar verk- smiðjurekstur og 12 smærri verk- stæði. Þessi fyrirtæki greiddu í laun kr. 3.195.857,77. Utan Reykjavíkur voru 79 fyr- irtæki, sem greiddu í laun kr. 853.220,67. Auk þess 5 ríkisfyrirtæki, í Reykjavík og utan hennar, sem greiddu í laun kr. 609.119,32. Alls greiddu þessi fyrirtæki í laun árið 1934 kr. 4.658.177,76. í þessari skýrslu er þó ekki byggingariðnaður', nema verk- stæðisvinna, og ekki heldur hand- iðnir. En þetta ár var flutt inn byggingarefni fyrir um 7 mill- jónir króna, og það er talið svara til þess, að byggt hafi verið fyr- ir um 14 milljónir króna. Og at- vinnutekjur iðnaðarmanna við byggingar í Reykjavík eru tald- ar hafa verið um kr. 2153180. Þessar tekjur skiptast þannig: 20 húsagerðarmenn (byggingar- meistarar) kr. 113500, 108 múr- arar kr. 394200, 290 trésmiðir kr. 976720, 82 málarar, krónur 277980, 21 rörlagningamaður kr. 78750, 78 rafvirkjar kr. 269022, 16 veggfóðrarar, kr. 43008. Atvinnutekjur handiðnamanna í Reykjavík voru 1934 ltr. 605891 og skiptast þannig: 31 bílavið- gerðarmaður kr. 111259, 13 söðlasmiðir kr. 35256, 50 skó- smiðir kr. 139900, 27 gullsmiðir kr. 82592, 27 bókbindarar kr. 88642, 31 rakari kr. 148242. Islenzkur iðnaður á mikla framtíð fyrir höndum. Skilning- ur á gildi hans í þágu þjóðar- innar eykst hraðfara. Ötulir menn eru þar yfirleitt að verki, og augu hins opinbera eru að opnast fyrir því, að einmitt á þessu sviði eru stórkostlegir at- vinnumöguleikar handa komandi kynslóðum. I i3

x

Iðnaður og verzlun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaður og verzlun
https://timarit.is/publication/1725

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.