Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Blaðsíða 18
IÐNAÐUR OG VERZLUN
16
jafnvel þótt hin fagra Geirþrúður
kæmi að heilsa upp á mig, er ég svo
þreyttur, að ég býst ekki við, að hún
gæti haldið fyrir mér vöku“.
Rebmann horfði vantrúaraugum á
vin sinn. „Jæja, þá hefir þú breytzt
svo furðu sætir. Fyrir sjö árum síðan
hefði enginn mannlegur máttur getað
fengið þig til að samþykkja að sofa
í gráa herberginu, jafnvel þótt þú
hefðir átt að dvelja þar við þriðja
mann. Hvar hefirðu öðlazt allt þetta
hugrekki?"
„Það var nú allt öðru máli að gegna
fyrir sjö árum“, sagði Blendau og hló
við. „Það breytist margt á skemmri
tíma. Nú er ég orðinn fulltíða maður.
Ég hefi búið í höfuðborginni í fimm
ár, minnstu þess. Þú getur verið sann-
færður um það, að ég veit nú of mikið
til þess að trúa á gamlar þjóðsögur".
„Jæja þá, góði vinur. Ég skal ekki
koma með fleiri mótbárur. Hamingjan
vaki yfir þér í nótt. Bridget, taktu
ljósið og fylgdu herra Blendau inn í
gráa herbergið“.
Blendau bauð vini sínum góða nótt
og fylgdist því næst með Bridget gömlu
til hins alræmda gráa herbergis, sem
var á annari hæð hallarinnar, yzt í
einni álmunni. Gamla konan setti kert-
in frá sér á snyrtiborð, annars vegar
við ávalan spegil í fornfálegum, út-
flúruðum ramma. — Henni virtist
vera órótt innan brjósts í þessu eyði-
lega herbergi. Hún kvaddi í skyndi
og flýtti sér á burt.
Hinn hugrakki ferðamaður stóð um
stund og virti fyrir sér herbergið, sem
hann eitt sinn hafði þekkt svo vel, og
hafði í æsku hans fyllt hugann af hroll-
kaldri hræðslu. Það var að öllu leyti
eins og hann mundi eftir því. Hinn
gríðarstóri járnofn bar ártalið 1616.
Á bak við hann, í horninu, voru þröng-
ar dyr. Efri hluti hurðarinnar var
samsettur af fornum, þykkum gler-
strendingum. Þar inn af lá langur,
skuggalegur gangur, hringinn í kring
um hallarturninn og niður til neðan-
jarðarklefanna.
Húsgögnin voru sex bronslitir stól-
ar, tvö borð úr þungamálmi með fag-
urlega bognum fótum og stór lokhvíla
með grráum tjöldum úr þykku, gull-
bryddu silki. Engu í herberginu hafði
að öllum líkindum verið breytt i meira
en öld, því að frá ómunatíð hafði
kanslaraembættið í þessu litla kon-
ungsríki gengið að erfðum hjá fjöl-
skyldunni Rebmann.
En hallardraugurinn Geirþrúður var
þó elzt af þessu öllu. Hversu oft hafði
Blendau ekki heyrt þá hræðilegu sögu!
Þegar hann var barn, hafði hann heyrt
fólkið pískra saman með hræðslu-
glampa í augunum. Samkvæmt þessum
fornu munnmælum hafði Geirþrúður
þegar í barnæsku strengt þess heit, að
helga guði allt líf sitt. Hún var i þann
veginn að ganga í klaustur, þegar orð-
Ávallt fyrirliggjandi
allskonar efni til
MIÐSTÖÐVARLAGNA
»Natlonal<* — Katla og Miðxtöðvarofna.
Allskonar hreinlætistæki, Baðker, Handlaugar,
W. C. samstæður. Eldhúsvaskar og allt tilheyrandi.
Isleifur Jónsson
Byggingarvöruverzlun
Aðalstræti 9 Reykjavík Sími 4280
í lofti á jörðu
eða sjó.
Hvert og hvar sem þór farið, er nauðsyniegt að hafa regnverjur.
Lang heppílegast er að hafa með sér OLÍUFÖT, kápur og sjóhatta
frá SJÓklœðagerð íslands. Þau eru lótt, hald góð og fara vel. Spyrjlð
því fyrzt eftir beim.
SJÓKL/EÐ AGERÐ ÍSLANDS
Reykjavik — Siml 408S
Sórtu í hálsi hás og þur
hygðu að þessu stefi:
Blöndahls nnenthol-brjóstsykur
er bezta ráð við kvefi.
DDEAB.@ASS!€