Iðnaður og verzlun - 01.12.1937, Page 19
IÐNAÐUR OG VERZLUN
17
rómurinn um fegurð hennar barst til
eyrna greifa nokkrum, Hugo að nafni.
Nótt eina brauzt hann inn í herbergi
hennar, og það var einmitt þetta gráa
herbergi. Með ofbeldi svifti hann hana
æru og hreinlejka.
Geirþrúður sór við krossinn, að hún
hefði kallað á hjálp, en hver gat heyrt
neyðaróp þessarar saklausu stúlku? —
Hún var svo einmana í gráa herberg-
inu, sem var svo langt frá öðrum í-
veruherbergjum hallarinnar.
Þessi svívirðilegi glæpur greifans
hafði engar þær afleiðingar, sem komið
gætú upp um hann, en hin ógæfusama
Geirþrúður trúði skriftaföður sínum
fyrir leyndarmálinu, og það hafði þær
afleiðingar, að henni var synjað um
leyfi til þess að ganga í klaustrið.
Hinn helgi staður var henni lokaður
æfilangt. En þar sem hún hafði ætlað
að leyna þessu og gerast nunna, þrátt
fyrir það, sem komið hafði fyrir, og
freista þannig guðs, sagði skriftafað-
irinn henrii, að hún yrði að þola þá
hegningu að vera útlæg frá allri bless-
un og friðlaus í þrjú hundruð ár.
Hræðileg örvænting greip vesalings
stúlkuna. Hún tók inn eitur og dó í
gráa herberginu, aðeins nítján ára
gömul. Hegningartímabilið var ekki
úti og átti að vara enn í fjörutíu ár.
Þangað til átti Geirþrúður að birtast
á hverri nóttu í gráa herberginu.
Blendau hafði oft heyrt þessa sögu,
og hann hafði jafnvel átt tal við ýmsa,
sem þóttust reiðubúnir að vinna eið að
því, að þeir hefðu séð hana með eigin
augum í gráa herberginu. Þeim bar
öllum saman um, að hún hefði rýting
í annari hendi, líklega til þess að reka
í hjarta hins ástleitna ódrengs, og hún
bæri kross í hinni hendinni, vafalaust
í þeim tilgangi, að reyna að bjarga
sálu þessa afbrotamanns frá tortím-
ingu með því að bjóða honum tákn
frelsarans, sem dó til þess að frelsa
heiminn frá allri synd.
Vofan kom hvergi í ljós nema í gráa
herberginu, og af þeirri orsök hafði
það lengst af verið mannlaust og autt.
En þegar Kebmann hafði erft höllina
og orðið kanslari, hafði hann breytt
þessu draugaherbergi í gestaherbergi
til þess að sýna hve gjörsamlega hann
væri trúlaus á allar siíkar þjóðsögur
og munnmæli.
Blendau horfði stöðugt í kring um
sig í herberginu. Þó hann hefði gortað
af því, að trúa ekki lengur á drauga,
var honum alls ekki rótt innanbrjósts.
Hann læsti dyrunum, sem hann hafði
komið inn um og einnig dyrunum með
glerhurðinni, sem lágu út að langa,
dimma ganginum. Hann slökkti á ööru
kertinu, en setti hitt rétt hjá hvílunni,
afklæddi sig, smeygði sér inn fyrir
hvílutjöldin og undir sængina og fól
sálu sína guði á vald. Því næst slökkti
hann á hinu kertinu, lagðist með höf-
Hinir vandlátu vita
hvað þeir vilja ---
Aldrei annað en
öll búsáhöld
BEZT FRÁ
H. Bieri ng
Laugaveg 3 Sími 4550
TIL JÓLANNA!
Alikálfakjöt. Nautakjöt. Dilkakjöt. Hangikjöt. Gæsir.
Rjúpur. •— Bökunaregg.
Væntanlega eitthvað af grænmeti.
Margar teg. niðursuðuvörur. Áskurður á brauð fl. teg.
Ostar og Smjör frá Mjólkursamlagi Borgfirðinga, o. m.
f 1., sem of langt yrði upp að telja.
Kaupfélag Borgfirðinga
Laugaveg 20. Sími 1511.
| Til jólagjafa:
[ Spænskar gmásögur.