Flug : málgagn Flugmálafélags Íslands - 01.03.1939, Blaðsíða 20
leiðangursins, Baumann, lét svo um mælt, að
ísland væri gullland svifflugsins. Veðráttan,
landslagið og umfram allt andstæðurnar í
jarðvegi og lit landsins orsaka framúrskarandi
góð vind- og hitauppstreymi. Að vísu verða
hér sennilega aldrei sett heimsmet í svifflugi.
Til þess að setja langflugsmet er fsland of lít-
ið og sennilega er það of norðarlega til þess að
hægt sé að fara upp fyrir 8600 m. eins og met-
ið er nú. En til þess að iðka svifflug svifflugsins
vegna, burtsjeð frá öllu metabrjálæði, býr fs-
land yfir ótæmandi möguleikum.
Aldrei hefir maðurinn komist nær því að
fljúga, — fljúga frjáls eins og fuglinn, borinn
á vængjum vindanna, án notkunar vélrænna
hjálparafla, en í svifflugu. Svifflug er íþrótt
loftsins. Sá undraheimur, sem maðurinn hefir
þráð frá ómunatíð er að verða leikvöllur
hinnar íslenzku æsku.
MODELFLUOFÉLAGIÐ
Fyrir tæpu ári síðan var lagður grundvöllur-
inn að starfi hinna yngstu flugbrautryðjenda,
með flug-modell sýningunni og stofnun flug-
modell félags í Rvík. Áhugi æskulýðs þessa
bæjar sýndi sig að vera svo mikill, að vita
ómögulegt reyndist að veita hinum tæpl. 200
unglingum æskilega aðstoð, vegna þess hve
málið var lítið undirbúið. Það ráð var tekið að
fresta kennslu hinna mörgu félaga, en mennta
í þess stað flokk manna, sem síðar gæti tekið
að sér leiðbeinendastarf.
Flokkur þessi hefir nú um langt skeið unnið
að þessu í ágætu húsnæði, undir stjórn Helga
Filippussonar svifflugmanns en hann hefir
manna mest starfað að undirbúningi þessara
mála. Er því að vænta að fullur skriður verði
kominn á þetta mikilvæga atriði flugmálanna,
þegar næsta haust. A. E. K.-H.
Þar sem segja má, að flugöld okkar íslend-
inga sé nú að hefjast, þykir tímabært að ræða
hinar ýmsu greinar flugmála. Ég mun í stuttu
máli gera grein fyrir því atriðinu, sem telja
má grundvöll og byrjunarþátt í flugi yfirleitt,
en það er ,,Modelflug“. Meðal þeirra þjóða,
sem lengst eru komnar í þessum málum er haf-
Sýning Modelflugfélagsins í sýningarskálanum
ið skipulagsbundið kennslustarf í nefndri grein
og stofnuð félög henni til eflingar víðsvegar
um löndin. Hér heima hefir eitt slíkt félag ver-
ið stofnað, „Modelflugfélag Reykjavíkur“,
fyrir atbeina flugmálaráðunautar og Flug-
málafélags fslands. f því sambandi þykir skylt
að þakka sérstaklega flugmálaráðunautnum
fyrir hans framtaksemi í þessu sem öðru, er að
flugmálum lýtur. Félagið telur aðeins 20 með-
limi, en þess skal getið, að hin lága meðlima-
tala stafar af óviðunandi skilyrðum, en ekki af
áhugaleysi unglinga. Verkefni þessa félags og
annara hliðstæðra er að byggja fluglíkön af
ýmsum gerðum. Þar kynnist unglingurinn fyrst
þeim leyndardómum, sem liggja til grundvall-
ar fyrir því, að hægt er að hefja sig frá jörð-
unni og svífa um loftin frjáls eins og fuglinn.
Á þennan hátt öðlast hann traustan og varan-
legan grundvöll, sem hann getur byggt á síðar
í lífinu, ef hann hyggst að hefja sig til flugs.
FLITG