Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.11.2022, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 25.11.2022, Qupperneq 52
Nú styttist óðum í aðvent- una og flestir eiga sínar hefðir og siði sem tengjast henni. Anna Björk Eðvarðsdóttir, formaður Hringsins, er mikill sælkeri og lífskúnstner og elskar aðventuna. Hefðir á aðventunni eru nátengdar Hringnum og veit hún fátt skemmtilegra en að taka þátt í Jólabasar Hringsins. sjofn@frettabladid.is „Aðventan er skemmtilegur tími. Þá hefst fjáröflun hjá okkur. Við vorum að koma jólakortum í búðir og Jólabasarinn var í byrjun nóvember. Núna erum við á fullu að undirbúa Jólakaffi og Jóla­ happdrætti Hringsins, sem verður haldið í Hörpu 4. desember næst­ komandi. Við erum mjög spenntar, það eru nærri þrjú ár síðan Jóla­ kaffið var haldið síðast. Ein af mínum hefðum er hurðar­ kransinn á útihurðina mína og lengi gerði ég kransinn sjálf. Þá hittumst við nokkrar vinkonur og gerðum stóra og bústna hurða­ kransa, en svo hættum við því. Síðan þá hefur góður vinur minn, Sigþór í Hlín blómahúsi í Mosó, gert geggjaða hurðarkransa fyrir mig. Önnur hefð er að bjóða fjöl­ skyldunni í Jólakaffið í Hörpu. Það er sérstaklega gaman eftir að ég eignaðist barnabörnin, en ég á fjögur, Jólakaffið er fyrsta alvöru aðventustemningin,“ segir Anna full tilhlökkunar. „Við hjónin reynum yfirleitt að fara á einhverja tónleika, sem setur mann í góðan jólagír. Svo fórum við mæðgurnar í fyrstu aðventuferðina okkar saman. Það er vonandi ný hefð sem verður árleg héðan í frá. Mér finnst nauðsynlegt að reyna að gera sér hlutina eins auðvelda og hægt er í jólaundirbúningnum svo maður nái að njóta sín. Setja sér ekki of stíft prógramm, það þarf ekki að gera allt of mikið af öllu og vera síðan með tárin í augunum, örmagna og uppgefinn þegar hátíðirnar eru búnar. Ég er svo sem alveg sek um að hafa verið þar, hér áður fyrr en ekki lengur, ég hef þroskast, jólagleðin snýst ekki um fullkomnun heldur gleði.“ Þegar kemur að því að setja upp jólin gerir Anna það ekki fyrr en aðventan hefst. „Ekki fyrr en á fyrsta sunnudegi í aðventu eða eftir Jólakaffið. Ég heiti mér því að Jólagleðin snýst um gleði, ekki fullkomnun Toblerone-kökurnar hennar Önnu líta vel út og kitla bragðlaukana. Dásamlegt bollubrauð fyllt með gómsætu Nutella fyrir sælkerana. skreyta minna á hverju ári. En það gengur svona la, la, það læðist alltaf meira og meira inn hjá mér eftir því sem nær dregur jólum. Auðvitað á maður alls konar uppáhaldsskraut sem manni finnst nauðsynlegt að hafa, annars koma ekki jólin. Jóla­ tréð fer upp um 21. desember.“ Gústukökurnar toppurinn Anna á sínar uppáhaldssmákökur sem henni finnst ómissandi að baka á aðventunni og á erfitt með að gera upp á milli. „Ég get ekki sagt bara eina, það er næstum eins og að gera upp á milli barnanna sinna. En ef ég verð þá eru Gústu kökur samt þær sem allar aðrar súkku­ laðibitakökur þurfa að stand ast samanburð við, ég ólst upp við þær hjá mömmu. Þær heita í höfuðið á konu sem hún vann einu sinni með, þær eru toppur. Samt eru alltaf einhverjar sem eru að reyna að taka sæti hennar. Núna eru það nokkrar sem eru að berjast um fyrsta sæti hjá mér, meðal annars Toblerone­ og makadamíukökur sem ég bakaði um daginn.“ Toblerone-kökurnar og bollu brauð með Nutella Hér sviptir Anna hulunni af tveimur dásemdar uppskriftum sem hún mælir með að lesendur prófi á aðventunni. „Eins og ég sagði áðan komu Toblerone­kök­ urnar svo sterkar inn að ég get ekki legið á gleðinni ein. Hvaða Íslend­ ingur elskar ekki Toblerone, þessa yndislegu súkkulaðiþríhyrninga? Makadamíuhnetur eru dásam­ legar, svo kremaðar og mjúkar. Svo er það annað hráefni sem flestir elska líka en það er Nutella. Hér er það notað sem fylling í geggjað bollubrauð, með sítrus­undirtón, svolítið italiano, algjört æði. Fallegt á borði, ljúffengt og mjög auðvelt að baka það. Svo frystist það vel, ef þú vilt gera það fyrir fram er það auðvelt.“ Toblerone- og makadamíukökur 18–20 stykki 1 ½ bolli hveiti 1 bolli haframjöl ½ tsk. salt ½ tsk. matarsódi 250 g Toblerone, gróft saxað 1 bolli léttristaðar makadamíu- hnetur, gróft saxaðar ¾ bollar brætt smjör 1 bolli púðursykur ¼ bolli sykur 2 stór egg 1 tsk. vanilludropar Byrjið á því að hita ofninn í 180°C. Gerið tvær ofnplötur klárar með bökunarpappír. Blandið saman hveiti, haframjöli, salti, matar­ sóda, Toblerone og makadamíu­ hnetum í stóra skál og setjið til hliðar. Hrærið saman smjör, púðursykur og sykur í annarri skál, bætið síðan egginu og vanillu­ dropunum saman við og þeytið. Hellið blöndunni yfir þurrefnin og blandið síðan öllu vel saman. Setjið 1 matskeið af deigi með um það bil 5 sentimetra bili á bökunarplötu, ekki hafa of lítið bil á milli þeirra, þrýstið síðan létt ofan á þær. Bakið í 12–15 mínútur þar til kökurnar eru ljósgylltar og ysti kanturinn byrjaður að verða stökkur, en eru enn mjúkar í miðjunni. Takið af plötunni og setjið á grind til að kólna. Nutella-bollubrauð 400 g sigtað hveiti 80 g sykur 6 g þurrger 1 egg Börkur af 1 sítrónu 50 g smjör brætt 1 ½ dl volg mjólk Nutella eftir smekk Til að pensla með 1 eggjarauða Mjólk eftir smekk Byrjið á því að sigta hveiti í stóra skál, setjið restina af hráefnunum fyrir utan mjólkina út í hveitið og blandið létt saman með fingrun­ um. Bætið mjólkinni út í og hnoðið deigið mjög létt saman í kúlu með höndunum í skálinni. Smyrjið deigkúluna með olíu og setjið plast yfir skálina og látið deigið hefast í 1 klukkustund á volgum stað. Smyrjið 20 sentimetra kringlótt springform vel að innan. Hnoðið deigið upp og skiptið í 10 bita. Formið hvern bita í kringlóttan hring á borðinu og setjið 1 teskeið af Nutella í miðjuna á hverjum deighring og lokið honum svo vel með því að klípa endana saman, setjið síðan kúluna í formið. Allt deigið er klárað á sama hátt og formið fyllt. Látið hefast á volgum stað í 1 klukkustund með plasti yfir. Þeytið eggjarauðu og mjólk saman í litla skál og penslið bollurnar með blöndunni. Hitið ofninn í 180°C með blæstri og bakið í 20–25 mínútur. Látið kólna og síðan er flórsykri drussað yfir. Berið fram með góðum kaffibolla eða heitum tebolla. n Anna Björk er mikill sælkeri og töfrar fram tvær dásamlegar uppskriftir sem eiga vel við á aðventunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Allar nánari upplýsingar um Jólamarkaðinn í Heiðmörk, Jólaskóginn á Hólmsheiði og jólatrjáasölu á Lækjartorgi má finna á heidmork.is 6 kynningarblað A L LT 25. nóvember 2022 FÖSTUDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.