Leikhúsmál - 01.06.1997, Blaðsíða 3

Leikhúsmál - 01.06.1997, Blaðsíða 3
LEIKHÚSMÁL Frá ritnefnd / slenskt leikhús missti mikið við fráfall Bríetar Héðinsdóttur nú í haust. Þetta rit var eitt af hennar áhugamálum og má segja að hún hafi ýtt því úr vör. Fáir voru betur til þess fallnir. Hún hafði góða yfirsýn yfir málefni leikhúss, hér og víðar. Hún hafði unnið við allar helstu leiklistarstofnanir landsins, atvinnuleik- húsin þrjú, óperuna, útvarp og sjónvarp, sem leikari og leikstjóri. Auk þess samdi hún leikgerðir af nokkrum öndvegisskáldritum okkar. Hún var á sínum tíma einn af frumherjum tilraunaleikhúss hér á landi, meðan Gríma var og hét. Sem góður leikstjóri kunni hún að fá fólk til þess að vinna, sýna hvað í því býr. Það kom sér vel þegar afla þurfti efnis í þetta málgagn leiklistarinnar, enda hefur margur leikhúsmaðurinn sest við skriftir fyrir hennar orð og hingað til hefur meira fallið til af frambærilegu efni en rúmast í ritinu. Vonandi er að sá áhugi vaki enn og fólk sjái ástæðu til þess að fjalla um margvísleg málefni leikhússins. En stærð rits sem þessa takmarkast vitaskuld af praktískum ástæðum. Það er því stórt skarð fyrir skildi við útgáfu Leikhúsmála við fráfall okkar ágæta forgöngumanns, Bríetar Héðinsdóttur. Hún var svo sem margir vissu kona ein- örð, fjölgáfuð og hafði ríkan metnað fyrir hönd íslenskrar leiklistar, þar með talið þessa rits. Sá sess sem hún skipaði við útgáfuna verður því vandsetinn. Stjórn Félags íslenskra leikara ákvað þó að áfram skyldi haldið og jafnframt er óbreytt samvinna við Leikstjórafélagið um útgáfuna. Á aðalfundi FÍL þann 17. mars síðastliðinn voru kosnir tveir fulltrúar félagsins í ritnefndina til tveggja ára og einn til vara, en leikstjórafélagið á einn fulltrúa í nefndinni. í þessu fjórða hefti Leikhúsmála er með ýmsum hætti fjallað um starf og að- stæður atvinnuleikhópanna. En gróskan á þeim vettvangi hefur verið með ólík- indum. Leikhús spretta upp á hinum ólíklegustu stöðum og margar áhugaverðar sýningar hafa litið dagsins ljós hjá leikhópunum, þrátt fyrir augljósa fjárhagslega annmarka. Þetta tölublað nýtur raunar að nokkru fyrninga frá fyrra hefti. Má þar nefna seinni hluta greinar Nönnu Ólafsdóttur um rússneska ballettinn. Ritnefnd elur með sér þá von að leikhúsfólk sjái til þess að útgáfa Leikhúsmála haldi áfram af þeim metnaði sem lagt var upp með undir forystu Bríetar Héðins- dóttur hvað varðar efni og alla gerð. Forsíðumynd: Hilmar Jónsson leikstjóri. Ljósmynd: Lárus Karl Efnisyfirlit Leikárið framundan 4 Hvað er á döfinni? 6 Horft til framtíðar 7 Styrkirtil atvinnuleikhópa 7 Söngleikir og sumarleikhús 8 Bandalag sjálfstæðra atvinnuleikhúsa, Baal 10 Möguleikhús - barnaleikhús 12 Urðum að láta eins og þetta myndi reddast 14 Leikaraljóð 18 Um starf leikmynda- og búningahöfundar 19 Munið þið ...? 22 Noel Coward og önnur séní 23 „Þau dönsuðu eins og dansað er í Paradís" 27 Mylsna 31 LEIKHÚSMÁL Útgefandi: Félag íslenskra leikara Ritnefnd: Bergljót Arnalds leikari, Hávar Sigurjónsson leikstjóri, Jón Hjartarson leikari Varamaður: Pétur Eggerz Pétursson leikari Útlit og umbrot: Sigurþór Jakobsson Prentvinnsla: Prenthönnun ehf. Forsíðumynd: Hilmar Jónsson 3

x

Leikhúsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.