Leikhúsmál - 01.06.1997, Blaðsíða 11

Leikhúsmál - 01.06.1997, Blaðsíða 11
LEIKHÚSMÁL Af þeim atvinnuleikhópum sem hér hafa starfab undanfarin ár á „frú Emilía" lengsta sögu od baki. Kirsuberjargaröurinn var sýndur þar 7994. og Þjóðleikhús. Skipting þessi hefur verið að skýrast á allra síðustu árum með tilkomu sjálfstæðra leikhúsa sem eru með fasteignir í rekstri. Loftkastalinn og Möguleikhúsið eru að kaupa sitt húsnæði, Skemmtihúsið er beinlínis byggt sem allsherjar vinnu- stofa/leikhús íyrir leikhúslistamenn, Kaffi- leikhúsið er hluti af stærri eign Hlaðvarpans, Höfðaborgin er með leikhús í rekstri, Baal er með Tjarnarbíó í rekstri og Hermóður og Háðvör er með sitt leikhús í Hafnarfirði í rekstri. En spurt er hvernig eigi að fjármagna þetta vaxandi starf Baal-leikhúsanna. Skoð- un undirritaðs á þessu er sáraeinföld. Það er alveg ljóst að krafa listamanna og almenn- ings er sú að hér sé rekin öflug leiklist at- vinnumanna, sem er viðbót og utan við starf stóru leikhúsanna. Því er eðlilegt að sann- gjarn stuðningur opinberra aðila komi til. Við vitum öll hvað leikhús kostar og það eru til leiðir að meta það hvernig hægt væri að styðja við bakið á Baal-leikhúsunum svo sanngjarnt sé. Hlutverk Baal-leikhúsanna Hafa Baal-leikhúsin einhverju því hlutverki að gegna sem stóru leikhúsin sinna illa eða ekki? Svarið við þessu er auðvitað já. Mér er minnisstætt svar leikhússtjóra, sem þá var nýráðinn, við þeirri spurningu hverjar yrðu hans aðaláherslur hvað verkefnaval varðaði og hverju hann myndi breyta frá tíð fyrir- rennara síns. Hann svaraði því til að verk- efnaval væri eiginlega ekki í hans eða neins annars valdi. Það væri bundið í lögum hvað leikhúsið ætti að sýna! Nú man ég ekki leng- ur hvort leikhússtjórinn bætti við einhverju kómísku úrdráttar-trikki við þessa staðhæf- ingu, en í henni finnum við reyndar sér- stöðu sjálfstæðu leikhúsanna. Stóru leikhús- in starfa eftir ákveðnum lögum, bæði sínum eigin og opinberum, skrifuðum og óskrifuð- um. Þar eru margar deildir með margvísleg hlutverk, margt fólk að störfum með mis- munandi þarfir og áhugamál, stórar og dýr- ar byggingar í rekstri og áhorfendur sem hafa oft fyrirfram ákveðnar væntingar til leikhússins. Leikhúsið verður að sýna fulla og viðurkennda ábyrgð í öllu sínu starfi og verður að keppast við að halda að meira eða minna leyti einhverjum óljósum ,standard‘ gagnvart samfélaginu. Sjálfstæðu leikhúsin eru ekki undir þessa sök seld og hlutverk þeirra í leikhúsflórunni því annað. Vissulega eru áhugamál, áherslur og listræn sýn þessara leikhúsa afar mis- munandi og í húsi þeirra mörg herbergi. Meðan eitt leikhúsanna er kannski með fín- legt og hefðbundið yfirbragð, er annað þekkt fyrir tilraunastarf. Það þ.riðja er kannski með aðaláherslu á að þróa einhverja eina vinnuaðferð, meðan hið fjórða vill sprengja allt sem það sér sem staðnaðar og lífvana venjur. En hvert sem þessi leikhús stefna í listrænu tilliti, þá eiga þau þó öll eitt sameiginlegt: allt sem þau gera er gert á for- sendum og ábyrgð þeirra einstaklinga sem þar starfa hverju sinni. Hóparnir geta hringsnúist kringum naflann á sjálfum sér án tillits til neins annars en þess að þurfa að endingu að bera ábyrgð á útkomunni af þeim snúningi. Og einmitt í þessu getur ver- ið fólginn sá kraftur og það nýjabrum sem leikhúsinu er nauðsynlegt á öllum tímum. Auðvitað munu Baal-leikhúsin, rétt eins og önnur leikhús sunnan Svalbarða, halda áfram að setja upp bæði góðar og slæmar leiksýningar, en hlutverk þeirra verður eftir sem áður að vera vettvangur tilrauna, ögrunar, nýjabrums og umfram allt, áhættu. Lokaorð Það mætti halda lengi áfram að tala um Baal-leikhúsin. Það mætti til dæmis ræða um peningamál frá ýmsum sjónarhornum, Leiklistarráð og úthlutun styrkja frá menntamálaráðuneyti og Reykjavíkurborg, hlutverk þeirra sem vinna mest á vettvangi Baal-leikhúsanna í uppeldi og kennslu í leiklist á vegum grunn- og framhaldsskóla, starf þeirra í þágu áhugaleiklistar á íslandi, gildi og galla á samstarfi Baal-leikhúsanna og stóru leikhúsanna, listrænar áherslur o.s.frv., o.s.frv. Ég ætla hinsvegar að láta staðar numið hér og lýsa eftir vangaveltum annarra um hlutverk og mikilvægi Baal- leikhúsanna, eða bara leikhúsa yfirleitt, í samfélagi okkar. Ifyrstu viku mars 1997 Þórarinn Eyfjörð 11

x

Leikhúsmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.