Leikhúsmál - 01.06.1997, Page 15

Leikhúsmál - 01.06.1997, Page 15
LEIKHUSMAL Úr leikgeröinni af Birtingi, en í þeirri sýningu nýttist hrátt húsrými gömlu Bæjarútgerbarinnar frábærlega. fengum að setja það hingað inn. Við urðum að láta eins og þetta myndi reddast. Síðan byrjuðum við að rembast hér með tuskur og kústa upp um alla veggi. Allt var þetta upp á von og óvon. Gott ef ekki var skrifað undir leigusamning á ffumsýningardag! Frumsýningin var um miðjan september (’95) - og nú gerðust undur og stórmerki, svolítið ótrúlegt. Leikurinn fékk rífandi gang. Það er ekki oft sem svonalagað gerist hjá leikhópum. Þarna var á ferðinni lítill hópur, ungt fólk. Aðsóknin varð svo mikil að horfði eiginlega til vandræða. Engan hafði órað fyrir þessu. Við þóttumst góð ef þetta gengi fram undir jól. Verkið gekk fram á sumar. Bærinn hafði ekki reiknað með að þurfa að borga húsaleigu til einhverrar frambúðar. Einu jákvœðu fréttirnar úr Hafnarfirði Við vorum komin á kortið. Allir vissu af Hafnarfjarðarleikhúsinu. Við sögðum gjarn- an í gamni að við værum einu jákvæðu frétt- irnar úr Hafnarfirði allt þetta ár. (Það þarf varla að rifja upp hvað gekk þar á í pólitík- inni og víðar, til dæmis klúður og læti út af listahátíð). Fyrir lá munnlegt vilyrði ffá bænum um fyrirgreiðslu við leikhópinn, í það minnsta að við þyrftum ekki að greiða húsaleigu. Fyrir bæjaryfirvöld var það því visst áfall þegar við fengum í fyrra úthlutað 16 millj- ónum króna í rekstrarstyrk frá menntamála- ráðuneytinu og tveggja ára samning. - Þetta var mikill peningur og að sjálfsögðu erfitt fyrir Hafnafjarðarbæ að neita um áffam- haldandi stuðning. Kannski eru menn dálít- ið montnir yfir því sem hér er að gerast. En hitt er erfiðara: að átta sig á að þetta kostar allt peninga. Mikilvœgi agans - Er þetta allt sama fólkið og byrjaði. Eruð þið komin með einhvers konar stjórnskipan? - Kjarninn er þetta fólk sem lék þjóðhá- tíðardagskrána, þeir sem hafa haldið áfram starfi sínu hérna. Við erum náttúrlega félag, en við höfum ekki mjög fastmótað form á því. Það var ákveðið að ég yrði leikhússtjóri en svo tökum við ákvarðanir sameiginlega í öllum veigamestu málum. - Nú varst þú á samningi hjá Þjóðleikhús- inu og nýkjörinn í Þjóðleikhúsráð þegar þetta kom til. Vafðist það ekkert fyrir þér að hverfa burt úr því stapíla umhverfi í þennan slag? - Það var skilyrði fyrir styrkveitingunni að ég hætti í Þjóðleikhúsráði og á samningi við húsið. Þjóðleikhússtjóri og ráðið voru hins vegar svo vinsamleg að veita mér launa- laust frí til þess að geta sinnt þessu. Það hjálpaði manni óneitanlega að taka þessa ákvörðun. Þetta var kærkomið tækifæri fyrir mig að reyna fyrir mér sem leikstjóri. - Stefndirðu að því að fara út í leikstjórn strax og þú fórst í leiklistarskólann? - Já, ég neita því ekki að það var alltaf ofarlega í huga mér. - Ég var með plan, ætl- 15

x

Leikhúsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.