Fréttablaðið - 21.12.2022, Síða 4

Fréttablaðið - 21.12.2022, Síða 4
Við verðum að sýna mennsku. Sigríður Arnardóttir, mótmælandi lokunar í Vin N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði Komið og skoðið úrvalið bth@frettabladid.is Reykjavík Einar Þorsteinsson, for- maður borgarráðs, segist ekki geta lofað að hópur notenda með geð- raskanir í Vin við Hverfisgötu fái áfram að starfa óbreyttur í athvarfi sínu. Einar sagði að lokinni afhendingu 4.000 undirskrifta í gær að það væri þó ekki útilokað að Rauði krossinn tæki aftur við verkefninu. Borgin hyggst spara 50 milljónir króna með breytingunum. Það er afar lág fjárhæð miðað við skaðann sem hlytist af ákvörðun borgar- innar, að sögn Sigríðar Arnardóttur sem var í hópi þeirra sem afhentu undirskriftirnar í Ráðhúsinu í gær. Notendur þjónustunnar segja að sparnaðurinn færi fyrir lítið og telja að komum á geðdeildir myndi fjölga mjög ef Vin verður lokað. Sigríður lýsir því sem gríðarlegum vonbrigðum að formaður borgarráðs geti ekki lofað að athvarfið verði látið í friði. „Við verðum að sýna mennsku, við getum ekki gengið svona hart fram gagnvart þeim sem síst skyldi,“ segir Sigríður. Félagsleg einangrun sé lífshættuleg og það hafi tekið langan tíma fyrir þá sem nýti sér nú þjónustu Vinjar að fara út úr húsi og koma sér þangað. „Þetta er ekki eins og að skipta um kaffihús, þessi hópur á mjög erfitt með breytingar, hann hefur í Vin myndað vináttu og skapað traust innbyrðis,“ segir Sigríður. n Lýsir vonbrigðum með svör borgarinnar benediktboas@frettabladid.is ÁRboRg Bæjarráð Árborgar hefur ákveðið að sameina þrjá starfshópa sem koma að einstaka málefnum leik- og grunnskóla í sveitarfélag- inu. Í bænum voru þrír starfshópar að vinna að því sama: nefnd vegna uppbyggingar á framtíðarskólahús- næði á Eyrarbakka, starfshópur um frekari uppbyggingu grunnskóla á Selfossi og faghópur um leikskóla- mál. Þessir þrír verða sameinaðir í einn sameinaðan starfshóp um framtíð- aruppbyggingu leik- og grunnskóla í Sveitarfélaginu Árborg. n Þrír starfshópar í sama málinu olafur@frettabladid.is FeRÐaLÖg Margir Íslendingar verða á faraldsfæti yfir hátíðarnar. Ferða- hegðun Íslendinga hefur breyst og sífellt f leiri ferðast með einungis handfarangur. Jólin eru hjá mörgum tími hefða og jafnvel þó að fólk haldi upp á þau í fjarlægum löndum vill það oft fá sín jól, ekki síst þegar kemur að jólamatnum. Fréttablaðið kannaði lauslega hver staðan er varðandi flutning á mat- vælum í flugi, annars vegar í innrit- uðum farangri og hins vegar í hand- farangri um borð í farþegarými. Samkvæmt heimasíðu Matvæla- stofnunar er almenna reglan sú að innan Evrópska efnahagssvæðisins er heimilt að taka matvæli sem inni- halda dýraafurðir til einkaneyslu milli landa. Reglur um mat í farangri flugfarþega Niðursoðnar grænar baunir fá ekki að vera í handfarangri. Til Bandaríkjanna má fara með allt að 22,6 kíló af lambakjöti, sem verður að vera í neytendapakkn- ingum og merkt með auðkennis- merki. Einnig er leyfilegt að hafa lítið magn af fiski (hráum, frystum, þurrkuðum, reyktum, soðnum eða niðursoðnum). Mikilvægt er að gefa öll matvæli upp í tolli, annars getur það varðað háum fésektum. Víða eru strangar reglur um inn- f lutning ávaxta og grænmetis og sums staðar, eins og til dæmis í Bandaríkjunum, bannað með öllu. Hvað handfarangurinn varðar gilda almennar öryggisreglur um það hvað má fara um borð og hvað ekki. Flugfélög hafa sínar reglur um stærð og þyngd handfarangurs. Alveg ljóst er að þeir sem ferðast aðeins með handfarangur fá ekki Ora-grænar baunir með jólasteik- inni sinni. Öryggisreglur banna þær í handfarangri vegna þess að í þeim eru meira en 100 millilítrar af vökva. n Einn starfshópurinn fjallaði um leik- skólamál á Eyrarbakka. Verð vörukörfunnar Kr ón an N et tó H ag ka up H ei m ka up 45.023 40.062 37.41835.887 kristinnpall@frettabladid.is ísaFjaRÐaRbæR Hafnarstjórn Ísa- fjarðarbæjar tók vel í tillögu um að koma upp fljótandi gufubaði í Ísa- fjarðarhöfn þegar erindið var tekið fyrir að nýju í vikunni. Eftir að hafa heyrt kynningu á verkefninu var hafnarstjóra falið að greina kostnað vegna mögulegrar aðkomu hafnar- innar. Eins og Fréttablaðið fjallaði um á dögunum fer fjögurra manna hópur fyrir tillögunni og vill reisa fljótandi gufubað í Ísafjarðarhöfn líkt og hefur notið vinsælda í Skandinavíu. Gauti Geirsson, einn af forsvars- mönnum hópsins, telur að heildar- kostnaðurinn sé undir 25 milljónum en aðeins eitt gufubað er í bænum. „Það kom tillaga um að staðsetja þetta við skútuhöfnina sem er skemmtilegt svæði. Það myndi koma með nýtt aðdráttarafl í höfnina og auka lífið í miðbænum. Uppleggið er að þetta sé opið allan ársins hring, bæði fyrir heimamenn og ferða- menn,“ sagði Gauti á sínum tíma. n Hafnarstjórn tók vel í fljótandi sánu Matarkarfan er ódýrust í Krónunni en dýrust í Heim- kaupum samkvæmt könnun sem Veritabus gerði í vefversl- unum með matvöru í síðustu viku. Svo virðist sem verð- bólga í desember verði minni en greiningardeildir hafa spáð. olafur@frettabladid.is NeyTeNDUR Samk væmt ný rri könnun Veritabus er matarkarfa vefverslana ódýrust í Krónunni en dýrust í Heimkaup. Einnig var varð kannað hjá Hagkaupum og Nettó. Bónus er ekki með vefverslun og því ekki með í könnuninni en í almennum verðkönnunum mælist verðlag jafnan lægst í Bónus. Verð á 108 vörum var kannað, auk þess sem gerð var körfukönnun með 66 ólíkum vörum. Einnig var skoðað hvaða breyting hefur orðið innbyrð- is milli verslana frá september 2021. Frá verðkönnun ASÍ í október hefur minnst hækkun orðið í Hag- kaupum, 0,22 prósent, því næst í Krónunni, 1,1 prósent, Nettó hafði hækkað um 2,81 prósent og Heim- kaup um 4,09 prósent. Vegið meðal- tal hækkunar er 1,44 prósent. Jafnframt var gerð körfukönnun með 66 ólíkum vörum og Krónan er með ódýrustu körfuna. Munar ríflega 25 prósentum á verði Krón- unnar og Heimkaupa, en dýrasta karfan var í Heimkaupum. Ef skoðuð er þróun á innbyrðis- stöðu frá því í september 2021 sést að hlutfallslegt verð, miðað við meðaltal markaðar, hefur lækkað í Nettó, Krónunni og Hagkaupum en hækkað verulega í Heimkaupum. Í september 2021 var verðlag Heim- kaupa eilítið lægra en í Hagkaupum. Nú er verðlag í Heimkaupum hins vegar 11 prósentum hærra. Fram kemur að í ágúst síðastliðn- um, eftir að verð í Krónunni hækk- aði talsvert milli mánaða, var Nettó ódýrasta verslunin í mælingunni. Þá munaði líka mjög litlu á verði í Nettó, Krónunni og Hagkaupum. Krónan hefur síðan endurheimt sæti sitt sem ódýrasta vefverslunin. Á morgun birtir Hagstofan vísi- tölu neysluverðs fyrir desember. Greiningardeildir bæði Íslands- banka og Landsbankans búast við bakslagi í hjöðnun verðbólgu nú og að ársverðbólgan mælist 9,6 prósent og hækki milli mánaða. Veritabus reiknar með að Hag- stofan mæli minni verðhækkanir en greiningardeildir búast við og að árshækkun vísitölunnar muni mælast 9,6 prósent. Samkvæmt mælingum Veritabus ætti vísi- talan að hækka um 0,21 prósent milli mánaða, sem jafngildir 9,1 prósents árshækkun. Greinendur Veritabus telja engu að síður að Hag- stofan muni mæla 9,3-9,4 prósenta verðbólgu. Ástæða þessa sé meðal annars mismunandi tímasetningar verðmælinga innan mánaðar. Í gær birtist samræmd vísitala neysluverðs og samkvæmt henni er þriðja minnsta verðbólga í Evr- ópu hér á landi. Einungis í Sviss og á Spáni er verðbólgan lægri. Árs- hækkun samræmdu vísitölunnar mældist 7 prósent á Íslandi. n Heimkaup dýrust í matvöru Verð matvöru hefur hækkað mest í Heimkaupum frá því í september 2021 en verðbólgan virðist vera farin að hjaðna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 4 Fréttir 21. desember 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.