Fréttablaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.12.2022, Blaðsíða 20
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Við erum afar þakklát fyrir góð viðbrögð landsmanna sem hafa tekið búðinni og rúmfötunum okkar opnum örmum. Sérstaklega er gaman að heyra í viðskiptavin- um sem vilja ekki sofa undir neinu öðru en rúmfötum frá okkur. Við sjáum mörg kunnugleg andlit sem koma aftur og aftur og kaupa jóla- gjafir handa allri fjölskyldunni,“ segir Hildur Þórðardóttir versl- unarstjóri. Jólarúmfötin í ár „Í ár ákváðum við að láta fram- leiða fyrir okkur sérstök jóla- rúmföt, bæði í 600 þráða gæðum og líka aðeins ódýrari í 300 þráða gæðum. Þessi 600 þráða eru þau mýkstu sem við höfum fengið í þessum þráðafjölda. Þau eru svört og hvít svo þau passa vel inn í lita- pallettu landsmanna, enda hafa þau fengið góðar móttökur. Þau rjúka út eins og heitar lummur, eða ætti maður að segja pipar- kökur á þessum árstíma?“ spyr Hildur og hlær. „Einnig má nefna Rauðu stráin sem eru fyrir þá sem vilja hafa virkilega jólaleg rúmföt á rúminu sínu. Þau eru 300 þráða og líka sérlega mjúk og vel heppnuð. Mynstrið er jólalegt, því það minnir pínu á snjókorn, en auð- vitað er líka hægt að nota þau aðra hluta ársins. Rúmföt sem heita Desember- blóm hafa selst vel fyrir jólin. Liturinn er aðeins dumbrauðari en Rauðu stráin og blómamynstrið ljóst sem gera þau afar elegant og falleg. Þetta eru ein af uppáhalds- settunum mínum,“ segir Hildur og bætir við: „Það er svo margt fallegt til hjá okkur að fólk fær beinlínis valkvíða.“ Hágæða damaskrúmföt „Það er náttúrulega alltaf klassískt að setja hvítt damask á rúmið. Þá erum til dæmis við með ítalska damaskið. Artu eða Atene mynstr- in eru þá einstaklega falleg. Atene er geometrískt á meðan Artu er hringlaga. Í milliklassanum erum við með 130 ára gamalt mynstur frá Curt Bauer sem við köllum Jósafínu. Þetta er elsta mynstrið frá þeim og þeim finnst eðlilega afar gaman að geta sagst vera með svo gamalt mynstur. Ef fólk vill eitthvað sérlega rómantískt þá eru Ítölsku blómin málið. Efnið er sérstaklega ofið fyrir okkur í fjórum litum, dökk- grátt, ljósgrátt, ljósblátt og föl- bleikt. Það er óhætt að fullyrða að það er enginn annar í heiminum með sömu rúmföt, einmitt vegna þess að efnið er sérstaklega ofið fyrir okkur og saumað í okkar Margrét situr iðin við að sauma dýrindis rúmföt úr ítölsku silkidamaski í fjöl- breyttum og fallegum mynstrum og litum. MyndiR/AðSEndAR Ýmislegt fallegt og jólalegt á rúmið má finna í Rúmföt.is fyrir hátíðirnar. FRéttABLAðið/ERniR Jólarúmfötin í ár koma í 600 og 300 þráða gæðum. Þessi rjúka út eins og ilmandi piparkökur. FRéttABLAðið/ERniR Í Rúmföt.is fást dásamleg rúmföt frá Litáen. Desemberblómamystrið selst einstaklega vel fyrir þessi jól enda fallegt mynstur og liturinn hátíðlegur. Áprentað 600 þráða bómullarsatín, til í mörgum útgáfum. Verð 17.800 kr. Falleg og notaleg rúmföt eru ómissandi í kuldakastinu sem hefur herjað á lands- menn upp á síðkastið. Það er óhætt að fullyrða að það er enginn annar í heim- inum með sömu rúmföt, einmitt vegna þess að efnið er sérstaklega ofið fyrir okkur og saumað í okkar íslensku málum. íslensku málum. Hér er fólk því að fá eitthvað alveg einstakt.“ Að lokum nefnir Hildur 400 þráða klassísk damaskrúmföt. „Þau eru fullkomin fyrir alla sem vilja fá notalega bómullartilfinningu. Þau eru mjúk og frekar mött eftir þvott og kosta ekki nema 13.900 krónur. Við erum með þrjú mynstur: paisley sem Margrét saumakonan okkar kallar pontumynstur, fjaðrir og svo fallegt rósamynstur.“ Ánægðir viðskiptavinir „Aftur og aftur heyri ég frá við- skiptavinum okkar að þeir séu svo ánægðir með rúmfötin hjá okkur að þeir noti hreinlega ekki annað. Um daginn komu hjón á besta aldri inn í búðina sem höfðu keypt áður eitt sett. Núna vildu þau fá annað því þau voru búin að gefa eða henda öllu öðru sem þau áttu. Það eru svona sögur sem ylja okkur um hjartastöðina og fá okkur til að mæta glöð í vinnuna. Við erum jú að selja hágæða rúmföt til að fólki líði vel, eins og mottóið okkar segir.“ n Lengdur opnunartími fram til jóla: 21. des. 11-18.00 22. des. 11-19.00 23. des. 11-19.00 24. des. 11-14.00 2 kynningarblað A L LT 21. desember 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.