Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2022, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 21.12.2022, Qupperneq 16
n Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Frá degi til dags En á sama tíma eru hátíðarnar líka erfið og sterk áminning um þau sem ekki eru hér. Úkraínu- menn voru því vísvitandi sveltir í pólitískum tilgangi. ULLARJAKKI NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN ÚR ÍSLENSKRI ULL 28.990,- Á árunum 1932 til 1933 olli alræðisstjórn Stal- íns hungursneyð í Úkraínu sem dró milljónir Úkraínumanna til dauða. Hungursneyðin var bein afleiðing þvingaðrar stefnu Sovétríkjanna um samyrkjubúskap, auk þess sem svelti var kerfisbundið beitt sem refsingu, meðal annars ef bændur gátu ekki afhent tilskilið magn búvöru. Svæðin sem urðu verst úti í þessum aðgerðum voru girt af til að koma í veg fyrir að hungraðir íbúar gætu f lúið milli svæða og til að koma í veg fyrir f lutning matvæla til svæðanna. Markmið sovéskra stjórnvalda með sveltinu var enn fremur að bæla niður úkraínska þjóðarvitund. Úkraínumenn voru því vísvitandi sveltir í pólitískum tilgangi. Þótt Rússar hafi alla tíð neitað að um hópmorð (e. genocide) hafi verið að ræða er ljóst að hungurs- neyðin stemmir við skilgreiningu hennar. Af þeim sökum hef ég, ásamt hópi alþingismanna úr öllum flokkum, lagt fram tillögu til þingsályktunar um hungursneyðina í Úkraínu. Með tillögunni er lagt til að Alþingi álykti að hungursneyðin í Úkraínu sem stóð yfir frá 1932 til 1933 hafi verið hópmorð. Með því bregðumst við þingmenn við ákalli Úkraínu um að ríki heimsins lýsi yfir að Holodomor hafi verið hópmorð. Fjölmörg ríki hafa þegar brugðist við ákallinu. Með þessu færi Holo- domor á lista yfir ómannúðlega glæpi alræðisríkja gegn mannkyni sem útrýmdu milljónum manna á fyrri hluta 20. aldar. Það er mat okkar þingmannanna sem stöndum að tillögunni að mikilvægt sé að senda skýr skilaboð um þessa hörmulegu atburði í mann- kynssögunni og vekja á þeim athygli til að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Annað eins hefur nú gerst. Slík skilaboð um voðaverk fyrri tíma geta sömuleiðis styrkt viðleitni alþjóðasamfélagsins til að tryggja framgang og vernd grundvallarmann- réttinda og frelsis um allan heim. Og auðvitað er innrás Rússlands í Úkraínu alveg sérstakt tilefni til að samþykkja þetta núna. Sporin hræða svo sannarlega. n Hópmorð í Úkraínu Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálf- stæðisflokksins benediktboas@frettabladid.is Ekkert til en samt nóg Reykjavíkurborg hefur samið þannig við verktaka sem sinna snjómokstri að á tilteknu tíma- bili fái þeir greitt fyrir hvern dag, hvort sem þeir þurfa að sinna þjónustu eða ekki. Það er ekkert eðlilega góður samningur fyrir alla nema íbúa borgarinnar því loksins þegar snjór birtist var eitthvað lítið um mokstur og allir sátu fastir. Borgin er rekin eins og hún eigi óútfyllta ávísun sem er ekki vænlegt til árangurs því þessi óútfyllta ávísun er ekkert til. Borgin skuldar tugi milljarða og þarf að skera niður víðast hvar. Samt eru svona samningar gerðir þar sem bónusgreiðsla berst ef það snjóar. Hversu galið er það? Hálfur milljarður Samningarnir sem verktakar gerðu fóru 500 milljónir yfir áætlun síðasta vetur. Það snjóaði í janúar og febrúar en annars var borgin auð. Borgarbúar hafa kvartað sáran sé tekið mið af Facebook og margir eru orðnir sérfræðingar að sunnan í snjó- mokstri. Yfirleitt er það raka- laus vitleysa sem sögð er á þeim ágæta miðli og fáfróðir vaða þar oft uppi með ótrúlegasta bull. En þegar reksturinn og samning- arnir eru orðnir svona, er ekki bara fínt að hlusta á vitleysuna? Það getur ekki orðið mikið verra, eða hvað? n Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is Jólin og áramótin eru ein besta áminningin um það hvað við eigum. Hverja við eigum og hvað okkur finnst gott við líf okkar. Þessar hátíðir eru tíminn þar sem við lítum yfir farinn veg. Á það hverju við áork- uðum á liðnu ári og jafnvel hverju ástvinir okkar hafa áorkað. Ég lít yfir árið og sé hvað stelpan mín er allt í einu orðin stór og öll ævintýrin sem við upplifðum, fjölskyldan. Um áramót er svo gaman að krossa í kassa og hugsa sér markmið fyrir næsta ár. En á sama tíma eru hátíðarnar líka erfið og sterk áminning um þau sem ekki eru hér. Um þau sem fengu ekki að klára að krossa í kassana sína. Sem kannski fóru of snemma eða skyndilega. Sama hvernig þau fóru þá er þetta, fyrir þau sem missa, yfirleitt sá tími þar sem hugurinn hverfur til þessa fólks oftar en aðra daga. Hugurinn hverfur til stundanna sem var stolið og til þeirra stunda sem maður átti, og fær ekki aftur. Það hefur verið svo gleðilegt undanfarin ár að sjá meiri umræðu um sorgina og tilfinningarnar sem henni fylgja. Um það sem má og það sem er í boði fyrir fólk sem syrgir. Það er svo misjafnt hvað hjálpar fólki í gegnum þessar tilfinningar en ég má til með að mæla með ráðum frá Sorgar- miðstöðinni sem gott er að taka til sín um hátíðarnar. Ráðin er að finna í bækl- ingnum Jólin og sorgin. Þar eru ráð eins og að hreinlega bara vera til staðar. Að bjóðast til þess að sinna einhverju ákveðnu verk- efni, ekki bara til að hjálpa. Ef fólk breytir plönum eða vill ekki taka þátt, sýndu því skilning. Bjóddu samt fólki að vera með, en ekki taka það nærri þér ef þú færð neitun. Sorgin er svo skrítin. Hún einhvern veginn er alltaf þarna. En svo magnast hún upp við þessar aðstæður. Það er allt svo gott og gleðilegt en sorgin er þarna líka og minnir á sig þegar maður síst býst við því. Það eru þrír dagar til jóla og á sama tíma og hún minnir á sig, minni ég mig á það að sama hvað ég geri þá koma jólin. Ég verð hér að upplifa þau, enn og aftur, með þeim sem ég elska mest. Ég er alveg svakalega þakklát en á sama tíma þá er ég alveg svakalega sorgmædd. Það skilja þau sem hafa misst og þessi pistill vonandi hjálpar þeim sem ekki hafa gert það til að gera það sama. Gleðilega hátíð! n Krossað í kassa Skoðun Fréttablaðið 21. desember 2022 MIðVIkuDAGuR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.