Fréttablaðið - 21.12.2022, Side 26
Sú staðreynd að mann-
eskjan sem slík er í
rauninni gangandi
myrkraherbergi er held-
ur ekki langt undan.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskulegur faðir minn,
Hjalti Hjaltason
frá Raufarhöfn,
lést laugardaginn 10. desember á
Landspítalanum við Hringbraut.
Útför auglýst síðar.
Guðný Rós Ström Hjaltadóttir og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn,
Bergsveinn Jóhann Gíslason
bóndi Mýrum, Dýrafirði,
lést 16. desember á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Ísafirði.
Útförin verður auglýst síðar.
Elínbjörg Snorradóttir (Lóa)
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Ríkharður Kristjánsson
stýrimaður,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 15. desember á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 12. janúar klukkan 15.
Hjalti Ríkharðsson Magnhildur Erla Halldórsdóttir
Hildur Ríkharðsdóttir Bragi Þór Leifsson
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Jóhann Ríkharðsson Fríða Rut Baldursdóttir
Sigríður Ríkharðsdóttir Jón Gunnar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigrún Clausen
Sólmundarhöfða 5, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, fimmtudaginn
15. desember. Útförin verður auglýst síðar.
Guðfinna Gróa Pétursdóttir
Guðjón Pétur Pétursson María Sigurbjörnsdóttir
Arinbjörn Pétursson
Þorsteinn Gunnar Pétursson Hulda Sigurðardóttir
ömmubörnin
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Svandís Helgadóttir
Háholti 25, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi, mánudaginn 12. desember.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Sigurður Gunnarsson
Gunnar H. Sigurðarson Valgerður Skúladóttir
Auður Sigurðardóttir
Hólmfríður Sigurðardóttir
ömmubörnin og langömmubörnin
Anna Kristín
Gunnlaugsdóttir
Elsku besta og flottasta mamman,
tengdamamman og amman er 70 í dag.
Þessi unga pæja hefur gefið svo mikið af
sér í gegnum lífið og glatt allan heiminn með
nærveru sinni.
Hún mun hygge sig í tilefni dagsins og skála með sínu
besta og góða fólki.
Þín elskandi börn, tengdabörn og barnabörn.
70
ára afmæli
Okkar ástkæri
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Hjalti Páll Þorvarðarson
vélstjóri,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Ísafold þriðjudaginn
13. desember. Útför fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. desember kl. 15.00.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Ísafoldar fyrir
einstaka umönnun og góða viðkynningu.
Þorvarður G. Hjaltason, Guðrún Einarsdóttir,
Hjalti Vigfús Hjaltason,
barnabörn og barnabarnabörn
Haraldur Jónsson myndlistar-
maður vinnur með stefnumót
ljóss og myrkurs á sýningunni
Bráð í Glerhúsinu. Sérstakur
viðburður verður haldinn í dag
á vetrarsólstöðum, stysta degi
ársins.
tsh@frettabladid.is
Haraldur Jónsson sýnir ný verk á sýn-
ingunni Bráð í Glerhúsinu á Vesturgötu.
Verkin eru unnin í keramik, málmflögur,
gúmmí, hljóð og ljós sem fléttast saman
við rýmið í marglaga heild.
„Sýningin heitir Bráð, það orð barst
til mín í ferlinu. Þegar ég er að vinna að
sýningum þá fylgi ég gjarnan innsæinu
og þeim líkamlegu hughrifum sem við-
fangsefnið vekur hjá mér. Titillinn, sem
er eins konar aðgangsorð að sýningunni,
svo við notum stafrænt tungutak, finnst
mér kjarna nokkuð vel inntak sýningar-
innar, bæði tenginguna við ákveðið milli-
bilsástand, umbreytingu eða ummynd-
un, og eins tímatengingin, eitthvað sem
er yfirvofandi,“ segir Haraldur.
Glerhúsið er nýstofnað gallerí staðsett
á Vesturgötu 33b. Að galleríinu stendur
rithöfundurinn og listakonan Kristín
Ómarsdóttir ásamt fleiri aðilum.
„Þetta er bíslag sem tengist húsinu
hennar Kristínar. Hún gerði það upp og
ætlaði að vera með vinnustofu þarna
en svo varð þetta svo fínt eftir endur-
uppbygginguna að hún ákvað að breyta
þessu í sýningarsal,“ segir Haraldur.
Manneskjan er myrkraherbergi
Bráð er önnur sýningin sem er haldin í
Glerhúsinu og segist Haraldur hafa unnið
hana sérstaklega inn í salarkynnin.
„Ég flétta verkin inn í þessar kringum-
stæður og þreifa á staðarandanum. Það
rann upp fyrir mér þegar ég var að setja
verkin inn í rýmið að þetta er í raun og
veru ákveðið myrkraherbergi.“
Eins og myrkraherbergi ljósmyndara?
„Já. Það er glerveggur sem birtan
streymir í gegnum og svo eru þakglugg-
ar, ekki ósvipað og í vél frá árdögum ljós-
myndunar. Sú staðreynd að manneskjan
sem slík er í rauninni gangandi myrkra-
herbergi er heldur ekki langt undan.
Við erum niðamyrk að innan og síðan
streymir birtan inn í gegnum skynfærin,
og þá framkallast allt mögulegt við það
merkilega stefnumót ljóss og myrkurs.“
Hélt sig við náttúrulega lýsingu
Haraldur segist hafa áttað sig á því við
uppsetningu sýningarinnar að galleríið
væri í raun framhald af sömu hugmynd.
Engin lýsing er á sýningunni önnur en
sjálf dagsbirtan sem streymir rólega inn
um glugga og gættir sýningarrýmisins.
„Það er vissulega boðið upp á raf-
magnslýsingu í salnum en þegar ég sá
að það var svo mikið af þessum áhuga-
verðu birtugötum og gáttum inn í rýmið
þá varð það deginum ljósara að halda sig
við náttúrulega lýsingu,“ segir hann.
Eins og í ljósaskiptunum
Bráð er vanalega opin einu sinni í viku,
á sunnudögum á milli klukkan 1 og 5.
„Það er svolítið magnað en þau sem
mæta snemma njóta hennar í dagsbirtu
og síðan eftir því sem líða tekur á daginn
verður myrkrið ágengara og þá einhvern
veginn þenst skynjunin. Þetta er eins og
þegar maður fer á milli staða í ljósaskipt-
unum,“ segir Haraldur.
Í dag verður haldinn sérstakur við-
burður í tilefni vetrarsólstaða og hvetur
Haraldur fólk til að mæta og verða vitni
að ljósaskiptunum á stysta degi ársins.
„Ég ætla að vera með viðburð þegar
öll birtan sem safnast hefur saman inn
í þetta rými yfir sýningartímann mun
hverfa þegar ljósopið lokast á vetrarsól-
stöðum. Þegar það gerist mun lengsta
ljósmyndin verða tekin á Íslandi. Við-
staddir munu um leið finna hvernig hún
framkallast hægt og rólega bak við augu
hvers og eins. Þessi sögulegi atburður
mun eiga sér stað í dag milli þrjú og
fimm, þegar dýpsta myrkrið skellur á,“
segir hann. n
Lengsta ljósmynd sem
tekin hefur verið á Íslandi
Haraldur Jónsson segir manneskjuna í raun vera eins og myrkraherbergi ljósmyndara.
Fréttablaðið/Ernir
arnartomas@frettabladid.is
Jólablót ásatrúarmanna, eitt fjögurra
höfuðblóta, verður haldið í kvöld á
vetrarsólstöðum. Jólin sjálf eiga þykkar
rætur í ásatrú enda eru hátíðarhöldin
sögulega rakin til sólhvarfahátíða heið-
inna manna.
„Jólin eru hluti af okkar heimi enda
var eitt af nöfnum Óðins Jólnir,“ segir
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.
„Þetta hefur yfirleitt verið eitt af okkar
stærstu blótum yfir árið.“
Á fögnuðinum í kvöld mun ása-
trúarfólk gleðjast yfir jólahlaðborði
og ýmsum uppákomum. Hilmar segir
matarhefðirnar í kringum jólin hafa
liðkast til í gegnum árin.
„Sumir eru með meiri áherslu á
hrossakjöt en aðrir, en annars bjóðum
við líka upp á vegan rétti og þetta er allt
saman orðið líbó hjá okkur,“ segir hann.
„Það er enginn píndur til að borða eitt
né neitt – það er engin manndómsvígsla
fólgin í matnum.“
Hilmar segir eitthvað um að fólk
komi utan af landi til að sækja blótið
í Reykjavík, en fólk á landsbyggðinni
blótar þó líka hjá sínum goða.
„Það eru líka jólablót alls staðar um
landið sem eru iðulega vel sótt,“ segir
hann.
Hilmar bindur vonir við að fyrir
hátíðina í kvöld verði hægt að komast
inn í hvelfinguna í hofinu í Öskju-
hlíðinni sem verður vonandi tilbúið á
næstunni.
„Það gengur hægt og bítandi en við
erum alltaf að mjakast áfram. Nú erum
við að athuga með burðarvirkið sem
verður helst tilbúið á næsta ári.“ n
Jólin eru hluti af okkar heimi
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.
TímamóT FréTTabLaðið 21. desember 2022 mIÐVIKUDaGUR