Fréttablaðið - 22.12.2022, Side 1
2 7 7 . t ö l u b l a ð 2 2 . á r g a n g u r f rettab lad id . i s F I M M t u D a g u r 2 2 . D e s e M b e r 2 0 2 2
Öðruvísi
mannkynssaga
Skilur sáttur við
læknisstarfið
Menning ➤ 24Tímamót ➤ 16
Opið í dag
9-22
Lengri opnunartími
Nettó verslana
Nánari upplýsingar
á netto.is
reykjavík Formaður borgarráðs,
Einar Þorsteinsson, liggur undir
ámæli eftir ummæli um fagþekk-
ingu Vinjar og undirskriftalista til
að mótmæla niðurskurði borgar-
innar.
„Ummæli Einars eru óheppileg
og vísbending um að hann áttar sig
ekki á mikilvægi félagsmiðstöðvar-
innar,“ segir Margrét Eiríksdóttir,
geðhjúkrunarfræðingur sem starfar
hjá Landspítalanum.
Hún segir að það hafi þurft að
hjálpa starfsmönnum sveitarfélaga
að skilja að gestirnir stýri í raun
starfinu.
Í því ljósi sé varhugavert að halda
að sjálf boðaliðar geti leitt starf
hópsins í Vin á kostnað fagfólks.
Sjá Síðu 4
Sakar Einar um
vanþekkingu
Tæp 27 prósent heimila eru
með óverðtryggð lán á breyti-
legum vöxtum og taka þannig
hækkanir á vöxtum vegna
hækkana Seðlabankans á stýr-
vöxtum á sig af fullum þunga.
gar@frettabladid.is
olafur@frettabladid.is
eFnahagsMál „Þessi stokkur lán-
takenda sem er með lán á breyti-
legum vöxtum er stærri en talað
hefur verið um,“ segir Þorbjörg Sig-
ríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður
Viðreisnar, sem fengið hefur svör frá
Seðlabankanum um samsetningu
fasteignalána í landinu.
Í svörum Seðlabankans segir að
26,9 prósent fasteignalána séu óverð-
tryggð á breytilegum vöxtum.
„Það er ríf lega fjórðungur allra
heimila sem er að taka á sig vaxta-
hækkanir af fullum þunga,“ segir
Þorbjörg. Þá sé 4.451 heimili með
óverðtryggð lán á föstum vöxtum
sem komi til endurskoðunar næsta
árið. Auk þess sé fjöldi heimila með
lán á föstum vöxtum sem komi til
endurskoðunar á árinu 2024.
„Þessar tölur kallast á við svör
sem ég fékk frá viðskiptaráðherra
um daginn um fjölda fyrirtækja
sem gera upp rekstur sinn í öðrum
gjaldmiðli en krónu. Það eru um 250
fyrirtæki,“ segir Þorbjörg. Þau séu til
dæmis í sjávarútvegi og stóriðju.
„Maður fær þá tilfinningu að það
séu tvær þjóðir í þessu landi. Það
sé almenningurinn sem taki á sig
þessar vaxtahækkanir og þá erfið-
leika sem á okkur dynja en að hluti
atvinnulífsins geti valið sér leið fram
hjá krónuhagkerfinu og þeim kostn-
aði sem því fylgir.“
Þorbjörg bendir á að Ísland sé ekki
eitt um að glíma við verðbólgu og
vaxtahækkanir. „En vaxtahækkan-
irnar á Íslandi eru margfaldar á við
það sem þær eru í nágrannaríkjum
og öðrum Evrópuríkjum. Ástæðan er
fyrst og fremst gjaldmiðillinn.“
Að sögn Þorbjargar þarf að upp-
lýsa hvernig þessi hópur lántak-
enda sé samsettur. „Er þetta fyrst
og fremst ungt fólk, þeir sem eru að
kaupa sína fyrstu fasteign?“
Í svari Seðlabankans segir að í
minnisblaði frá 9. nóvember 2022
hafi láðst að nefna hlut séreignar-
sparnaðar í lækkandi greiðslubyrði
heimila.
„Velji lántaki að nýta séreignar-
sparnað sinn til að greiða inn á
höfuðstól lána sinna hefur það vita-
skuld áhrif á greiðslubyrði lánsins og
er að líkindum önnur helsta ástæða
þess að greiðslubyrði lántaka hefur
minnkað,“ bendir Seðlabankinn á. n
Fjórðungur er á breytilegum vöxtum
Það var dimmt og hvasst á Hellisheiðinni í gær, á vetrarsólstöðum og stysta degi ársins, og snjó skóf yfir veginn við Bláfjallaafleggjarann. Nú er daginn farið að lengja. Fréttablaðið/anton brink
Maður fær þá tilfinn-
ingu að það séu tvær
þjóðir í þessu landi.
Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdótt-
ir, þingmaður
Viðreisnar