Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 2
Þá er viðbúið að ógæfumenn sem þurfa að eiga fyrir næsta skammti fari að stunda svona starfsemi og það blossi upp faraldur. Ásgeir Þórðarson, eldri borgari Gengið úr myrkrinu í ljósið Vetrarsólstöðuganga Píeta-samtakanna fór fram í gær frá Klettagörðum til Skarfagarða. Gengið var til minningar um þá sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Fréttablaðið/Valli Maður sakar annan um svik eftir árás á Laugavegi í vor. Grunar skipulagða glæpa- starfsemi. Galt fyrir svikin með hækkun tryggingagjalda. bth@frettabladid.is LögregLumáL Ásgeir Ebeneser Þórðarson eldri borgari ók niður Laugaveginn 26. apríl síðastliðinn að morgni dags. Hann segist hafa hægt á bifreið sinni til móts við Gilbert úrsmið. Þá hafi hann heyrt blístur ofar í götunni, litið í bak- sýnisspegilinn og séð ungan mann veifandi á rafhlaupahjóli. Ásgeir segist hafa stöðvað bílinn en þá hafi maðurinn haft uppi mik- inn svívirðingaflaum og kýlt hliðar- spegil bílsins úr lið. Hann hafi orðið smeykur en maðurinn hafi hjólað fram fyrir bílinn, rekist á stöpul og fallið af hjólinu í gangstéttina. Ásgeir segist hafa reynt að koma sér burt en ungi maðurinn hafi sprottið upp úr götunni og elt hann með formælingum og fokkmerkj- um. Um síðir losaði Ásgeir sig við manninn og hringdi að sögn strax í lögregluna og gaf skýrslu. „Ég var í mjög miklu uppnámi, þetta var harkaleg árás á mig,“ segir Ásgeir. Síðar kom á daginn að ungi maðurinn á hjólinu hafði líka kært Ásgeir. Hann ber að Ásgeir hafi ekið í veg fyrir sig með þeim afleiðingum að hann féll af hjólinu, slasaðist og braut hjálm. Nokkrum vikum síðar var málið fellt niður af hálfu lögreglu þar sem aðilum bar ekki saman um atvik. Sagan er ekki fullsögð, því hálfu ári síðar, fyrir nokkum vikum, rak Ásgeir augun í að tryggingar hans hjá Sjóvá höfðu hækkað úr 148.000 í 182.400 krónur. Þegar hann leitaði skýringa var svarið að hann hefði valdið manni skaða í umferð. Ásgeir segir að þá hafi ungi mað- urinn náð að sannfæra lögfræðinga- teymi um að hann væri þolandi. Lögfræðiteymi Sjóvár hafi tekið málið einhliða yfir án þess að hafa samband. Ásgeir brást við með því að afla sjálfur vitnisburðar manns sem varð vitni að atvikinu og stað- festir frásögn Ásgeirs. „Tryggingafélagið er enn ekki búið að draga hækkun gjaldanna til baka en ég hef sagt við Sjóvá: Ef þið ætlið að greiða þessum manni bætur fyrir einbeittan brotavilja hans að svíkja út fé með hjálp lög- manna þá er viðbúið að ógæfu- menn sem þurfa að eiga fyrir næsta skammti fari að stunda svona starf- semi og það blossi upp faraldur,“ segir Ásgeir. „Þetta mál hefur valdið mér svefnleysi. Ég er að bíða eftir upp- skurði vegna krabbameins og fæ þá þetta í fangið,“ segir Ásgeir og segist sárt leikinn. Sjóvá virðist líta svo á sem um sé að ræða ágreining um atvik vegna umferðaróhapps. Félagið ræðir ekki einstök mál að sögn Jóhanns Þórs- sonar markaðsstjóra og bregst því ekki við gagnrýni Ásgeirs. Viðbótar- gögn, yfirlýsing nýs vitnis í málinu, eru þó til skoðunar hjá Sjóvá sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins. Grímur Grímsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, segir allmörg mál hafa komið upp er varði tryggingasvik. Þar á meðal sé sviðsetning slysa en hann kannist ekki skipulagða glæpastarfsemi í þeim efnum. n Ásgeir segist fórnarlamb skipulagðra tryggingasvika Ásgeir segist hart leikinn af hálfu svikahrapps og vandar eigin trygginga- félagi ekki heldur kveðjurnar. Fréttablaðið/Ernir kristinnhaukur@frettabladid.is ferðaþjónusta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér saman um stofnun Áfanga- staðastofu. Unnið hefur verið að verkefninu frá því á síðasta ári og verður hún opnuð á því næsta. Áætlað er að stofnfundur verið eigi síðar en 15. mars. Tilgangurinn er að ef la vitund um áfangastaði og allt það sem svæði hafa upp á að bjóða, bæði fyrir ferðamenn og íbúa, að ef la samkeppnishæfni í alþjóðlegri samkeppni, að efla samstarf sveitar- félaganna, að styrkja ferðaþjónust- una eftir Covid-faraldurinn og að stuðla að sátt milli íbúa og atvinnu- lífs um málefni ferðaþjónustunnar. Kostnaður félagsins fyrir næsta ár er áætlaður tæpar 40 milljónir sem skiptist hlutfallslega á sveitarfélögin sex. Félagið verður rekið sem sjálfs- eignarstofnun. n Stofa sem stuðli að sátt íbúa og ferðaþjónustu Sólfarið er vinsæll áfangastaður. lovisa@frettabladid.is HeILBrIgðIsmáL Fjárfestingafélagið Silfurberg hefur stofnað styrktar- sjóð fyrir fagfólk í heilbrigðisþjón- ustu sem hefur lokið klínísku námi og hefur áhuga á að halda áfram námi í fræðum sem tengjast hug- víkkandi efnum. Heildarfjárhæðin er 20 milljónir króna. Sara María Júlíusdóttir er fyrsti Íslendingurinn sem stundar slíkt nám. Hún, ásamt f leirum, heldur ráðstefnu í byrjun næsta árs í Hörpu þar sem fræðimenn víðs vegar úr heiminum kynna sínar rannsóknir. „Ég er í fjögurra ára mastersnámi í Kólumbíu og ætla svo í doktors- nám,“ segir Sara og að í raun virki þessi meðferð á allt sem er að. „Þetta hljómar eins og lygasaga en það sem þessi efni eiga sameiginlegt er að þau styðja við miðtaugakerfið og endurstilla og örva endur- og nýmyndun á tauga- og heilafrum- um og allt sem er að í líkamanum er af því að taugakerfið nær ekki að halda utan um ástandið. Þá brotnar eitthvað, sama hvort það er andlega eða líkamlega,“ segir Sara María. Sækja má um nú þegar en lokað verður fyrir umsóknir 1. október 2023. n nánar á frettabladid.is Styrkja nám um hugvíkkandi efni Sara María er fyrsti Íslendingurinn til að stunda þetta nám. Mynd/aðsEnd 2 Fréttir 22. desember 2022 FIMMTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.