Fréttablaðið - 22.12.2022, Qupperneq 4
Mér finnst ótrúlegt að
maðurinn skuli láta
svona út úr sér.
Sanna Magda
lena Mörtudótt
ir, borgarfulltrúi
Sósíalistaflokks
ins
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE
ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
JEEP.IS
PLUG-IN HYBRID
ÓMISSANDI HLUTI
AF FJÖLSKYLDUNNI
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Borgarfulltrúi í minnihlut-
anum segir ótrúlegt að Einar
Þorsteinsson hafi látið út
úr sér að sjálfboðaliðar geti
þjónustað gesti á Vin í stað fag-
fólks. Geðhjúkrunarfræðingur
gagnrýnir einnig ummælin.
bth@frettabladid.is
Reykjavík Formaður borgarráðs,
Einar Þorsteinsson, liggur undir
ámæli eftir ummæli á Fréttavakt-
inni á sjónvarpsstöðinni Hring-
braut.
Einar sagði, eftir að hópur
borgara hafði afhent 4.000 undir-
skriftir til að mótmæla röskun á
starfi Vinjar vegna niðurskurðar
hjá borginni:
„Ég velti því upp, þetta byrjaði
sem sjálf boðaliðaverkefni af hálfu
Rauða krossins, starfsemin í húsinu
er þess eðlis að það þarf ekki endi-
lega fagfólk til þess að sinna því. Ég
velti fyrir mér hvort einhverjir af
þessum 4.000 sem skrifuðu undir
þetta eða Rauði krossinn eða aðrir
sem vilja sinna þessum hópi með
þessum hætti vilji gera það áfram.“
Í júlí 2022 var tilkynnt á vef
Reykjavíkurborgar að borgin hefði
tekið við rekstri Vinjar af Rauða
krossinum eftir 29 ára sögu.
Sigþr úður Erla Arnardóttir,
framkvæmdastjóri þjónustumið-
stöðvarinnar, sagði þegar borgin
tók við rekstrinum að spennandi
tímar væru fram undan. „Við ætlum
að læra af því starfi sem hefur verið
hér og tökum svo eitt skref í einu í
átt að því að ef la það enn frekar,“
sagði hún.
Rúmu ári síðar er Reykjavíkur-
borg á undanhaldi og fullkomin
óvissa nú um framhaldið, notend-
um til ama.
„Mér finnst ótrúlegt að maðurinn
skuli láta svona út úr sér. Hann kast-
ar ábyrgðinni frá sér,“ segir Sanna
Magdalena Mörtudóttir, borgarfull-
trúi Sósíalista. Hún telur ummæli
Einars til marks um vanþekkingu
þeirra sem hafi völdin um framtíð
Vinjar.
Margrét Eiríksdóttir, geðhjúkr-
unarfræðingur sem starfar hjá
Landspítalanum, þekkir mjög vel
til starfsins í Vin.
„Ummæli Einars eru óheppileg
og vísbending um að hann áttar sig
ekki á mikilvægi félagsmiðstöðv-
arinnar, áttar sig ekki á mikilvægi
þess að hafa þjálfað fólk til að starfa
með þessum hópi,“ segir Margrét.
Hún segir Rauða krossinn hafa
stofnað Vin fyrir fólk með geðræn
veikindi af því að engin slík þjón-
usta var fyrir hendi. Starfsreglur
Rauða krossins séu að eiga ekki í
samkeppni við önnur úrræði og
þess vegna sé langsótt að Rauði
krossinn taki aftur við starfinu.
„Svo þróaðist samfélagið og
Rauði krossinn steig úr úr starfinu.
Það var til að eiga ekki í samkeppni
við önnur úrræði,“ segir Margrét.
Hún segir að það hafi þurft að
hjálpa starfsmönnum sveitarfélaga
að skilja að gestirnir stýri í raun
starfinu. Í því ljósi sé varhugavert
að halda að sjálf boðaliðar geti leitt
starf hópsins í Vin á kostnað fag-
fólks.
„Við erum að tala um þjálfun
frekar en menntun,“ segir Margrét.
„Það er allt annað að koma í heim-
sókn á sunnudegi í Vin þegar bara
eru sjálf boðaliðar eða virka daga
þegar starfsmannahópurinn er á
staðnum,“ segir Margrét. n
Ummæli formanns borgarráðs sögð
afleit og til marks um vanþekkingu
Kári Auðar
Svansson er í
hópi gesta hjá
Vin. Hann segir
að mjög myndi
fjölga á geð
deildum ef Vin
yrði lokað.
fréttablaðið/
anton brink
gar@frettabladid.is
fjölmiðlaR Vefsíðan Kjarninn og
fréttamiðillinn Stundin verða sam-
einuð nú um áramótin undir nýju
nafni sem enn hefur ekki verið
opinberað. Að sögn aðstandenda
miðlanna verður haldið uppi fjöl-
miðlun á vefnum auk þess sem
gefið verður út blað á prenti tvisvar
í mánuði.
Rekstur Stundarinnar og Kjarn-
ans hefur byggst á ólíkum tekju-
módelum. Kjarninn hefur tekjur af
auglýsingum og frá styrktaraðilum
þar sem ríkið er langfyrirferðarmest
með 14,5 milljóna króna framlag á
þessu ári. Stundin fær 22,3 milljóna
króna styrk úr ríkissjóði á þessu ári
en tekjur miðilsins að stærstu leyti
eru reistar á sölu áskrifta og aug-
lýsinga.
Tekjur Stundarinnar samkvæmt
ársreikningi fyrir árið 2021 námu
233,9 milljónum króna.
Ársreikning Kjarnans fyrir 2021
er ekki að finna á vef Ríkisskatt-
stjóra þótt honum virðist hafa verið
skilað þangað fyrir fjórum vikum.
Tekjur fyrirtækisins árið 2020 námu
hins vegar 77,9 milljónum króna. n
Kjarnanum og
Stundinni steypt
saman í eitt félag
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, rit
stjóri Stundarinnar, og Jón Trausti
Reynisson framkvæmdastjóri.
fréttablaðið/Ernir
kristinnhaukur@frettabladid.is
stjóRnsýsla Halla Signý Kristjáns-
dóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, segist ekki geta stutt sam-
einingu héraðsdómstólanna líkt og
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra
hefur boðað. Starfshópur skilaði
nýlega skýrslu um málið og hyggst
Jón leggja fram frumvarp.
Stefnt er að því að til verði einn
dómstóll, Héraðsdómur, í stað átta
með yfirstjórn í Reykjavík. Þar sem
dómstólarnir eru núna verði starfs-
stöðvar með lögbundinn starfs-
mannafjölda. Með þessu fengist
svigrúm til að nýta mannauð betur
og dómstigið yrði styrkt.
„Sporin hræða í þessa átt. Þegar
verið er að sameina svona stofn-
anir,“ segir Halla. „Þetta eru háleit
markmið og fín en af hverju er ekki
hægt að gera þetta innan núverandi
kerfis? Að styrkja héraðsdómstól-
Leggst gegn áætlun ráðherra um sameiningu héraðsdómstóla
Halla Signý
Kristjánsdóttir,
þingmaður
Framsóknar
flokksins
ana og fjölga starfsfólki.“ En Halla
kemur frá Vestfjörðum þar sem hér-
aðsdómurinn er nú þegar fámennur
og veikur.
Nefnir hún að þetta mál sé sam-
bærilegt og áætlun Jóns um sam-
einingu sýslumannsembætta, sem
frumvarp liggur fyrir um. Býst hún
við því að lögregluembættin séu
næst á dagskrá. Verið sé að fækka
löglærðu starfsfólki og sérfræðing-
um á starfsstöðvunum.
„Ég sé ekki hvernig á að færa
verkefni út á land þegar það er búið
að fækka sérfræðingum þar,“ segir
hún og óttast að þetta nýja kerfi
nagi starfsstöðvarnar að innan.
„Það er verið að færa valdið á eina
einingu.“
Telur Halla vel hægt að ná
fram markmiðum um ef lingu og
mönnun landsbyggðarinnar innan
núverandi kerfis og einungis það
geti hún stutt. n
4 Fréttir 22. desember 2022 FIMMTUDAGURFréttablaðið