Fréttablaðið - 22.12.2022, Síða 8
Skotárásir,
kókaín og
manndráp
Mikið var um sakamál árið 2022. Þar má nefna fíkniefnamál,
skotárásir, morð og rannsókn á skipulagningu hryðjuverka. Hér
eru tekin saman helstu sakamál ársins, en miðað er við mál sem
áttu sér alfarið stað á þessu ári. Því falla nokkur úr sem teygja sig
til fyrri ára, en upplýst voru eða rannsökuð á árinu.
jonthor@frettabladid.is
Skotárás í Grafarholti
Aðfaranótt 10. febrúar var skotið á karl og konu í Grafarholti. Karlinn
var skotinn í lærið og konan í kviðinn. Þau lifðu bæði af.
Tveir menn voru handteknir vegna málsins, en samkvæmt úrskurði
Landsréttar var sá sem er grunaður um að hleypa af fyrrverandi
kærasti konunnar og hafði hann ítrekað hótað henni áður.
Hinn maðurinn sem er grunaður í málinu hefur lýst atvikum þannig
að byssumaðurinn hafi beðið hann um að skutla honum á vettvang,
en þar hafi karlinn og konan verið utandyra. Maðurinn á þá að hafa
kallað til konunnar og því næst skotið úr byssu í átt til þeirra. Síðan
hafi þeir keyrt á brott.
Vélbyssur í miðbænum
Aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar tilkynnti maður um skotárás
utandyra í miðbæ Reykjavíkur. Sá sem tilkynnti um málið var þolandi
árásarinnar, en hann var fluttur á slysadeild í kjölfarið. Eitt af fjórum
skotum sem hleypt var af fór í gegnum brjósthol mannsins.
Myndband sem sýndi vopnaða lögreglumenn í bílastæðahúsi í
borginni bregðast við árásinni fór í dreifingu á samfélagsmiðlum, en
þrír menn voru handteknir vegna málsins, enginn þeirra eldri en tví-
tugur. Skotmaðurinn hefur játað brot sín.
Þrívíddarprentað skotvopn var notað í árásinni, en það kom lög-
reglunni á spor þeirra sem grunaðir eru í hryðjuverkamálinu svokall-
aða.
Manndráp í Barðavogi
Fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri fannst látinn í íbúð
sinni í Barðavogi þann 4. júní og í kjölfarið var rúm-
lega tvítugur karlmaður handtekinn vegna þess.
Talið er að maðurinn hafi látist af völdum bar smíða
og að bar efli hafi verið notað.
Í ákæru er manninum unga gefið að sök að hafa
ráðist á manninn, fyrst inni á stigagangi hússins og
síðan utan við húsið, þar sem hann sparkaði í, kýldi
og traðkaði ítrekað á höfði hans og brjóstkassa með
þeim afleiðingum að hann lét lífið.
Greint var frá því að lögreglan hefði að minnsta
kosti verið kölluð til tvisvar að íbúðinni sólarhring-
inn áður en maðurinn fannst látinn þar.
Fyrir dómi hefur maðurinn sem grunaður er í
málinu sagst hafa verið að beita neyðarvörn.
Skotárás í Hafnarfirði
Þann 22. júní skaut maður, af svölum íbúðar sinnar
í Miðvangi í Hafnarfirði, tveimur skotum á kyrr-
stæðan bíl. Í honum voru feðgar á leið í leikskólann,
en sonurinn var einungis sex ára gamall. Skotin
hæfðu þá ekki, en annað skotanna braut þó bílrúðu
og rigndi glerbrotum yfir föðurinn.
Maðurinn var sýknaður í héraðsdómi vegna máls-
ins nú í desember, en þarf þó að sæta öryggisgæslu
á viðeigandi stofnun og greiða feðgunum samtals
1,7 milljónir króna.
Fram hefur komið að maðurinn hafi verið í mjög
slæmu ástandi þegar verknaðurinn var framinn og
hafi framburður hans því verið mjög ruglingslegur.
Hann hafi til að mynda haldið að maðurinn í bílnum
væri glæpamaður sem hann hefði þurft að stöðva
áður en lögreglan kæmi á vettvang.
Stóra kókaínmálið
Kókaínið í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar kom
aldrei til landsins. Efnin voru flutt í timbri í gámi frá
Brasilíu til Hollands, en þar gerðu tollyfirvöld efnin
upptæk. Í staðinn var gerviefnum komið fyrir og
gámurinn fluttur áfram til Íslands, líkt og staðið
hafði til.
Þann 4. ágúst fylgdist lögregla með því þegar
timbrið var fjarlægt úr gámnum af sakborningi
málsins. Síðar sama dag fjarlægði annar sakborn-
ingur efnin úr timbrinu og tók hluta þeirra með sér
áður en hann var handtekinn.
Hinn sakborningurinn var einnig handtekinn
skömmu síðar og sagði í skýrslutöku daginn eftir að
kókaínið hefði verið flutt í gegnum fyrirtæki hans,
en hann sagðist ekki vita hversu mikið efni var í
gámnum. Þá sagðist hann hafa átt að fá 30 milljónir
króna fyrir sinn hlut í málinu. Hann dró það síðar til
baka.
Um var að ræða tæplega hundrað kíló af kóka-
íni sem flytja átti til landsins, sem er það mesta í
Íslandssögunni. Fyrra met var sextán kíló. Eflaust
voru verðmæti efnanna í milljarðatali.
8 Fréttir 22. desember 2022 FIMMTUDAGURFréttablaðiðAnnáll sAkAMál Fréttablaðið 22. desember 2022 FIMMTUDAGUR