Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.12.2022, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Það er engan veginn viðunandi að þessi líflína landsins sé lokuð svo sólar- hringum skipti. Ekki sjá þó allir jarðar- búar fram á gleði- og friðarjól. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Senn líður að jólum og við undirbúum hátíð ljóss og friðar með fjölskyldum okkar og vinum. Við sjáum fram á náðuga daga með góðum mat, fal- legum gjöfum og gefandi samverustundum. Ljós og skreytingar gleðja augað og óskir sumra um jólasnjó sem birtugjafa í svartasta skammdeginu rættust með hvelli. Ekki sjá þó allir jarðarbúar fram á gleði- og friðarjól. Víða geisa átök. Hörmulegar fréttir berast daglega af árásarstríði Rússa í Úkraínu, þjáningum fólks vegna þess og ekki síður vegna kerfisbund- innar eyðileggingar á innviðum á borð við vatns- og raforkukerfi. Sjaldnar berast fréttir frá öðrum átakasvæðum eins og Jemen, Sómalíu, Eþíópíu og Afganistan, þar sem hungursneyð eykur enn á hörmungar almennings. Enn er barist í Sýrlandi og Kúrdar og Palestínumenn heyja á hverjum degi baráttu fyrir tilverurétti sínum. Því miður er þessi upptalning á ófriðarsvæðum og hörmungum ekki tæmandi. Þjóðir heims sóa svimandi fjárhæðum í vopn á ári hverju. Vopn þessi eru síðar notuð til að murka lífið úr saklausu fólki. Kjarnorkuveldin eyða ógnvænlegum upphæðum í að uppfæra kjarnorkuvopna búr sín og sífellt oftar heyrist nefndur möguleikinn á að beita slíkum vopnum í hernaði. Á sama tíma hefur 91 ríki veraldar undirritað sáttmála Sameinuðu þjóðanna um bann við kjarn- orkuvopnum, þar af hafa 68 fullgilt hann. Í þeim fríða f lokki eru þó engin kjarnorkuveldi, ekkert NATO-ríki og ekki Ísland. Frá árinu 1981 hafa íslenskir friðarsinnar komið saman á Þorláksmessu og krafist friðar í heim- inum. Ekkert fangar betur hinn sanna anda jólanna en að taka sér hvíld frá amstri og jólaundirbúningi og ganga saman fyrir kröfunni um frið. Sjáumst skammt fyrir neðan Hlemm klukkan 18 á Þorláks- messu, göngum saman niður Laugaveg á Austurvöll og hlustum á friðarhugvekju. n Göngum til friðar Steinunn Þóra Árnadóttir þingmaður Vinstrihreyf- ingarinnar græns framboðs benediktboas@frettabladid.is Rýnt án veðurguðs Innviðaráðuneytið hefur sett á lagg irn ar hóp sem hef ur það mark- mið að rýna í óveðrið sem gekk yfir landið og varð til þess að loka þurfti Reykjanesbrautinni í tvo daga. Þeir sem munu rýna í stöðuna sem kom upp eru full trú ar frá ráðuneyt inu, Vega gerðinni, al manna vörn um og lög regl unni á Suður nesj um. Athygli vekur að veðurguðirnir eru ekki kallaðir í starfshópinn en miðað við vitleysuna sem gekk á í byrjun vikunnar hefði ekki komið neitt á óvart ef sá stóri þarna uppi hefði verið kallaður til og beðinn um að hætta að blása svona ofboðslegri ofankomu um allar trissur. Ekkert lært Hildur Björnsdóttir, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, bendir á í Fésbókarfærslu að aðstæðurnar sem dúkkuðu upp í höfuðborginni séu alls ekkert einsdæmi. Landið okkar heiti jú Ísland. Hildur bendir á að í upphafi árs hafi sams konar aðstæður birst borgarbúum og starfsmenn vetrarþjónustu borgarinnar hafi lýst sig „fullsadda“ af hringlanda hætti, þekkingar- leysi og virðingar leysi borgaryfir- valda í sinn garð. En viti menn. Ekkert lagaðist. Ætli meirihlutinn í Reykjavík hafi ekki sett á laggirnar starfshóp en hann sé ekki búinn að ljúka vinnu sinni. Það sé því ekkert að frétta, frekar en fyrri daginn, úr Ráðhúsinu og við næsta hvell muni allt lokast á ný. n Langvarandi lokun á mikilvægustu þjóðleið landsmanna er alvarleg áminning á hendur samgönguyfir- völdum. Þau voru ekki búin undir veturinn. Og það var líklega ekki til viðbragðsáætlun sem kom að nokkru gagni þegar allt sat fast. Þetta er úr takti við allan veruleika þjóðar- innar. Ef það er akkúrat eitthvað sem Íslend- ingar hafa vitað fyrir víst um aldir alda er það að fannfergið kemur fyrir rest. Veturinn minnir á sig, oftast með afgerandi hætti – og þá kyngir niður snjó á einni nóttu. Eftir situr ófærðin og innilokun heilu byggðarlaganna. En kannski er einmitt ekkert íslenskara í samanlagðri sögu landsmanna. Þjóðin er og hefur verið teppt vegna veðurs. Og raunar teppt í svo mörgum öðrum skilningi, ef út í það er farið. Látum þó vera hvað fyrri tíða formæður okkar og forfeður þurftu að leggja á sig til að moka sig út úr vandanum. En seinni tíma vís- indi og tækni ættu að hafa skilað einhverjum árangri við að ráða við aðstæður af þessu tagi. Og nægir eru fjármunirnir hjá einni ríkustu og þróuðustu þjóð á kringlu jarðar. En niðurstaðan, þegar næstum fjórðungur er liðinn af nýrri öld, er að yfirvöld í landinu hafa hvorki ráð né tíma til að tryggja sam- göngur á leiðinni á milli höfuðborgarinnar og alþjóðaflugvallarins á einu og sama landshorninu, þótt bæði nákvæmar og ítrek- aðar veðurfréttir hins opinbera hefðu varað við því sem koma skyldi. Það er engan veginn viðunandi að þessi líf lína landsins sé lokuð svo sólarhringum skipti. Og þarf ekki að orðlengja ástæður þess arna. Hér þarf vitaskuld að skoða hvað fór úrskeiðis. Og læra af mistökunum. En eins væri ekki úr vegi að kanna hver ber á end- anum ábyrgðina á klúðrinu, þótt það fari nú raunar svolítið á svig við íslenska pólitík sem ypptir vanalega öxlum þegar axarsköftin eru hennar. Má vera að Vegagerðin á Íslandi sé orðin það fjársvelt að hún ráði ekki lengur við hefðbundinn íslenskan vetrarbyl? Og ef svo er, hvaða pólitík liggur þar að baki? Og getur líka verið að hið opinbera sé einfaldlega farið að reiða sig um of á sjálf boðaliðasam- tök sem bregðast aldrei þegar kallið kemur? Ræður ríkisvaldið ekki lengur við neyðar- stundina? Og svo má auðvitað spyrja í mestu ein- lægni, verður eitthvað breytt í næsta byl? n Bylur og bilun Skoðun FréttaBLaðið 22. desember 2022 FIMMTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.