Fréttablaðið - 22.12.2022, Page 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 22. desember 2022
Jólabörn í leikfangalandi
Þegar jólin nálgast bregða vinkonurnar Tinna Björt Guðjónsdóttir og Telma Haraldsdóttir á
leik og stilla upp jólaþema fyrir framan linsuna og útbúa sannkallað jólaland. 2
Það getur tekið heilan dag að setja upp fyrir svona myndatöku. Mikilvægt er að passa alla litla hluti. „Þetta liggur allt saman í smáatriðunum,“ segir Tinna.
Krambúðin er hin jólalegasta og rauði jólaliturinn er í forgrunni. MYNDIR /AÐSENDAR
Það er um að gera að nota jóla-
pappírinn aftur að ári. MYND/GETTY
gummih@frettabladid.is
Það eru til nokkur góð ráð fyrir
þá sem eru að fara að pakka inn
jólagjöfum en eflaust eru margir í
þeim sporum í dag. Það er um að
gera að nota það sem til er á heim-
ilinu, eins og til dæmis teikningar
og málverk barna, plaköt, tímarita-
pappír og dagblaðapappír.
Maskínupappír er líka góð leið
til að nota við að pakka inn jóla-
gjöfunum sem og bréfpokarnir
sem eiga það til að safnast upp á
heimilinu eftir allar búðarferð-
irnar. Það er hægt búa til fallegt
jólaföndur á þá með því að mála á
pokana.
Notaðar gjafir líka góðar
Það er líka um að gera að ganga vel
frá pappírnum sem gjafirnar okkar
voru í og nota hann til pakka inn
gjöfum um næstu jól.
Þeir sem eru flinkir að sauma
gætu útbúið poka sem hægt er að
skella utan um gjöfina og þá er
hægt að nálgast jólatextíl í nytja-
mörkuðum landsins og nýta hann
sem fjölnota jólagjafapappír.
Notaðar gjafir eru líka góðar
gjafir og það á ekki síst við um
gjafir til barna. Þau eru ekki að
hugsa um umbúðir, skilamiða eða
verðmiða svo það er vel til þess
fallið að leyfa heilum leikföngum
og bókum að finna sér ný heimili
um jólin. n
HEIMIlD: UMHvERfISSTofNUN
Endurnýtum
pappír fyrir gjafir
HEILAÞOKA?
Fæst í helstu apótekum - www.celsus.is
AUKIN ORKA
OG FÓKUS