Fréttablaðið - 22.12.2022, Síða 21

Fréttablaðið - 22.12.2022, Síða 21
Kirkjuklukkur landsins hringja jólin inn klukkan sex á aðfangadagskvöld. Síðastliðin tvö ár hefur fólk haft takmarkaðan aðgang að kirkjunum sínum yfir jólin vegna samkomutak- markana. Nú getur fólk hins vegar sótt fjölbreytta dagskrá í helgihaldi um allt land. „Rík hefð er viðhöfð á fjölmörgum heimilum landsmanna, að fara til kirkju yfir hátíðirnar. Fólk fer í sín fínustu föt og safnast saman í kirkjunum til þess að upplifa hátíðlega stund hvert með öðru, hlusta á falleg og uppbyggjandi orð og tónlist,“ segir Pétur G. Markan, biskupsritari á Biskupsstofu. „Mörgum finnst jólin ekki vera komin fyrr en gengið hefur verið til jólamessu. Þessi hefð er falleg og býður fólki upp á hátíðleika, ró og frið eftir allan ysinn og þysinn á aðventunni. Það að ganga inn í kirkju, hlusta á ljúfa tónlist og sameinast um kærleiksboðskap jólanna er góð leið til að eiga saman gæðastund, það færist helgi yfir og friður fyllir hjörtun. Það er því sérstakt fagnaðarefni að mega nú aftur koma saman í kirkjum yfir hátíðarnar. Yfir hátíðirnar er boðið upp á fjölbreytt helgihald í öllum kirkjum landsins. Á aðfangadags­ kvöld er aftansöngur klukkan 18 frá Dómkirkjunni í útvarpi lands­ manna og víða er einnig boðið upp á miðnæturmessur. Á jóladag og annan dag jóla eru hátíðarguðs­ þjónustur. Á jóladag verður hátíð­ arguðsþjónustunni, sem verður frá Grafarvogskirkju, bæði útvarpað og sjónvarpað á RÚV. Kirkjukórar leggja ríkan metnað í kórastarf sitt og fyrir jólin hefur verið æft af kappi og munu því falleg tónverkum óma í kirkjum um allt land. Fjölbreytilegur hópur tónlistarfólks leggur sitt af mörkum til að skapa hátíðlega stund: Kirkjukórar, barnakórar, gospelkórar, bjöllusveitir, söng­ hópar, organistar, einsöngvarar, hljóðfæraleikarar, svo dæmi séu tekin. Þessi ríka og djúpa hefð, sem meðal annars fær að blómstra á hátíðisdögum jóla, er ekki ein­ göngu viðhöfð hér á Íslandi heldur úti um alla Evrópu og hinn kristna heim. Hefðin sýnir hvað listin er samofin kristinni trú og menn­ ingu. Óhætt er að segja að kirkjan fyll­ ist bæði fögnuði og þakklæti fyrir þessi jól. Jólin sem færðu okkur frelsi til þess að hittast saman á ný og halda hefðir jólanna í heiðri. Þótt líta megi á kirkjuna sem stofnun þá er hún fyrst og fremst fólkið sjálft sem henni tilheyrir og í hana kemur. Samfélag kristins fólks sem kemur saman í kærleika og andlegri einingu. Kirkja er bæn, samhugur og fjölskyldusamfélag. Og kirkjan gleðst og fagnar saman á jólum.“ n Kirkjuklukkur hringja jólin inn Pétur G. Markan biskupsritari segir að hátíðarhöld í kirkjum landsins verði fjölbreytt í ár. Dómkirkjan í Reykjavík. Á aðfangadagskvöld er aftansöngur klukkan 18 í Dómkirkjunni sem verður útvarpað til landsmanna. 24. desember kl. 18:00 Aftansöngur Hannah Ó Connor trompet, Einar Clausen einsöngur. Sr. Petrína Jóhannanesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti Krisztina K. Szklenár Miðnæturmessa kl. 23:00 Matthias Birgir Nardeau obó, Rósalind Gísladóttir einsöngur. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti Krisztina K. Szklenár 25. desember Jóladagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.14.00 Kór Árbæjarkirkju leiðir safnarsöng. Margrét Lára Einarsdóttir og Margrét Helga Kristjánsdóttir einsöngur. Organisti Kristina K. Szklenár. Sr. Petrína Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti Krisztina K. Szklenár 31. desember Gamlársdagur Hátíðarguðsþjónusta kl.17.00 Kór Árbæjarkirkju syngur. Organisti Guðmundu Ómar Óskarsson sr. Þór Haukssonar þjónar fyrir altari og prédikar. 1. janúar 2023 Guðsþjónusta kl.14.00 Kór Árbæjarkirkju syngur.. Organisti Guðmundu Ómar Óskarsson sr. Þór Haukssonar þjónar fyrir altari og prédikar. Hátíðardagskrá Árbæjarkirkju um jólin kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 22. desember 2022 guðsþjónustur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.