Fréttablaðið - 22.12.2022, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Jólin koma
með trénu
Ertu á síðasta snúning eins og fleiri?
Við erum búin að sérvelja öll okkar jólatré,
svo það er fljótlegt og ódýrt að finna
fullkomna jólatréð í BYKO. Svo eigum við
líka seríurnar og skreytingarnar.
SKOÐAÐU
HANDBÓKINA
Yfir 200 hugmyndir
Jólagjafa-
handbók
Stafafura frá Skógræktinni
125-150 CM
4.496
5.995
5.995
6.995
6.995
7.995
7.995
100-150 CM
4.496
Nordmannsþinur
150-175 CM
5.246
150-200 CM
5.246
175-200 CM
5.996
200-250 CM
5.996
25%
AFSLÁTTUR
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Uppáhaldsjólalagið mitt er ekki
jólalag. Þetta er lag sem kom út
árið 1995 og var samið seint um
kvöld þegar hljómsveitarmeð-
limir Radiohead settust niður,
drukknir, bugaðir og þreyttir, við
upptökur á plötunni The Bends.
Lagið varð til þegar söngvarinn,
Thom Yorke, byrjaði að raula
lagstúf, innblásinn eftir tón-
leika með Jeff Buckley heitnum.
Útkoman var eitt fallegasta lag
tónlistarsögunnar, Fake Plastic
Trees, eða gerviplasttré.
Lagið fjallar um erfiðleikana
við að byggja upp raunveruleg
sambönd í heimi sem gengur í
sífellt ríkari mæli út á yfirborð og
gervimennsku. Í upphafi þess er
fjallað um kærustupar: Konu sem
er umkringd hlutum sem ekki
eru raunverulegir og mann sem
er fullur örvæntingar, bugast og
gefst upp. Ást þeirra er sýndarást
úr plasti og ekkert er raunveru-
legt. Sögumaður endar þetta
fallega lag á því að óska sér þess
að hann gæti verið sá sem ástin
hans vildi að hann væri, alltaf og
að eilífu.
Eins og heyra má er lagið eins
langt frá því að vera jólalag og
getur verið. Það er samt djúpur
sannleikur í því sem ég staldra
við og tek sem sannan boðskap
jólanna. Ekki bæta upp tapaðan
tíma með börnunum með dýru
drasli sem þú eyðir óratíma í
að finna. Hættum að fylla líf
okkar og þeirra sem við elskum
af gervihlutum til að fylla upp
í gerviþarfir. Komum fram við
fólkið okkar eins og þetta verði
okkar síðustu jól, því ein jólin
verða þau það.
Sannleikurinn er sá að þegar
þetta allt verður gert upp er það
verðmætasta sem við getum
gefið nokkurri manneskju
tíminn okkar. Gleðileg jól. n
Jólalagaplast
Lengri opnunartími
Nettó verslana
Nánari upplýsingar
á netto.is