Hekla - 01.01.1940, Page 12

Hekla - 01.01.1940, Page 12
- 10 - dalur, med hinum fornu leidum til Skagafjardar. Þad er eitthvad tigid vid stadinn, svo hrjóstrugur og óvarinn, sem hann virdist vera, og þad er þetta allt, sem hefir ordid þess valdandi, ad forfedur vorir völdu hann til kaupstefnu. Þad er farid ad halla degi og vid erum ad leggja af stad heim, en þad grípur mig einhver undarleg kennd, og eg bid telpumar ad koma med mér nidur í búdirnar, því ad mig langi til ad sjá búdatóptirnar, sem nú eru girtar og notadar sem tún. Búdirnar hafa stadid í tveimur rödum og gata á milli. Mer finnst eins og eg heyri isinn og há- vadann, þegar höfdingjarnir eru ad koma med vörur sínar, og til kaupa, og skipin ad leggjast vid Pestarklett. Vid snúum nú heim á leid og höfum notid ferdar- innar í rílcum mæli, og eg segi þad satt, ad þetta var eiginlega skemmtilegasti dagurinn á öllu sumrinu. G-udrún iCristjánsdóttir. Skynsamur köttur. Menn álxta ad kettir skilji ekki mannamál,en svo mætti þó virdast, eftir atburdi, sem fyr- ir kom heima hjá mér sídastlidid vor. í húsinu var köttur, sem átti tvo kettlinga. Svo var alltaf verid ad tala xam þad, ad þad mætti til ad fara ad drepa kettlingana, því ad vid vorum ad fara burtu úr húsinu. En einn morg- un, þegar vid komum á fætur, var annar kettlingur- inn horfinn. Vid fórum ad leita ad honum en fundum hann ekki. Seinna um daginn hvarf hinn líka. Svo leitudum vid alls stadar, sem okkur datt í hug, en fundum þá hvergi. En um kvöldid fundust þeir uppi á háalofti. Sunnan vid húsid er stór reynividarhrísla, og hafdi kisa klifrad þar upp med ketllingana í munninum og stokkid med þá inn um glugga, sem var opinn. Þama faldi hún kettlingana sína, og vard þad til þess, ad þeir voru látnir lifa. Ásta Ottesen.

x

Hekla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hekla
https://timarit.is/publication/1756

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.