Morgunblaðið - 22.08.2022, Síða 1
M Á N U D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 195. tölublað . 110. árgangur .
KANSLARINN
STENDUR
HÖLLUM FÆTI VALUR ÁFRAM
MIKLIR MÖGULEIKAR
TIL VAXTAR FYRIR
BORGARBYGGÐ
MEISTARADEILDIN 27 STEFÁN BRODDI 10SCHOLZ 14
Andrés Magnússon
Inga Þóra Pálsdóttir
Skúli Halldórsson
Tveir létust og einn er lífshættulega særður
eftir skotárás á Blönduósi snemma í gær-
morgun. Þar ruddist maður með haglabyssu
inn á heimili hjóna á sextugsaldri þar í bæn-
um, skaut konuna til bana en særði eigin-
mann hennar lífshættulega. Sonur hjónanna,
sem var þar af tilviljun gestkomandi um
helgina, skarst þá í leikinn og réð árásar-
manninum bana eftir því sem næst verður
komist.
Sonurinn var þar ásamt unnustu sinni og
kornabarni þeirra, en það sakaði ekki. Þau
voru yfirheyrð af lögreglu í gær vegna
dauða árásarmannsins, en voru leyst úr
haldi undir kvöld.
Ekki gerð krafa um gæsluvarðhald
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á
Norðurlandi eystra, sem fer með rannsókn
málsins, fékk maðurinn stöðu sakbornings
en var látinn laus að loknum skýrslutökum,
vettvangsrannsókn og öðrum rannsóknar-
aðgerðum. Ekki þótti ástæða til þess að
gera kröfu um gæsluvarðhald yfir honum.
Lögreglan hefur annars varist allra
frétta, enda málið fjölþætt, málsatvik snúin
og rannsókn stendur enn yfir. Um eitt og
annað hefur þó verið upplýst, annað hefur
komið fram í máli vitna á Blönduósi og öðr-
um heimildum, en af þeim brotum má draga
ályktanir um atburðarásina í stórum drátt-
um.
Eftir því sem næst verður komist átti
málið sér nokkurn aðdraganda. Hjónin sem
urðu fyrir skotárásinni höfðu áður haft árás-
armanninn í vinnu hjá fyrirtæki þar í bæn-
um, sem þau veittu forstöðu. Hann mun
hafa sóst eftir því að fá starfið aftur, en ver-
ið sagt að búið væri að ráða annan í hans
stað.
Stóð til að svipta hann byssuleyfi í dag
Fyrir nokkrum vikum kom árásarmað-
urinn heim til hjónanna og hafði þá í hót-
unum með haglabyssu. Maðurinn átti all-
nokkur skotvopn, var skotveiðimaður,
áhugamaður um skotfimi og með þjálfara-
réttindi á því sviði. Hann var handtekinn
vegna þeirra hótana og vopnalagabrota og
vistaður á geðdeild, en lögregla lagði hald á
öll skotvopn, sem hann var skráður fyrir.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins stóð
til að svipta hann byssuleyfi í dag. Árásar-
maðurinn, sem var 35 ára gamall, fékk
lausn eða leyfi af geðdeild fyrir helgina,
samkvæmt heimildum, sem Morgunblaðinu
hefur ekki tekist að staðfesta. Hann virðist
hafa orðið sér úti um haglabyssu með ein-
hverjum hætti og kom í morgunsárið á
sunnudag að heimili hjónanna. Atburða-
rásin þar er ekki fyllilega ljós, en svo virð-
ist sem hann hafi skotið og banað eiginkon-
unni og síðan skotið eiginmanninn, sem er
lífshættulega særður. Hann mun þó hafa
reynt að bregðast til varnar af veikum
mætti.
Eftir sitja spurningar um hvers vegna
árásarmanninum var hleypt út af geðdeild,
þrátt fyrir að eiga við geðrænan vanda að
etja, en eins beinist rannsókn lögreglu með-
al annars að því hvar og hvernig hann gat
orðið sér úti um skotvopn.
Bæjarbúar eru harmi slegnir og hefur
málið fengið mjög á íbúana. Sorg hvílir yfir
bænum og hafa margir sjáanlega verið í
áfalli. Þá streymdi fólk í Blönduóskirkju í
gærkvöldi þar sem því var boðinn sálrænn
stuðningur.
Morgunblaðið/Hákon
Sorg Íbúar Blönduóss streymdu í kirkju bæjarins í veðurblíðunni í gærkvöldi. Fáninn við kirkjuna var einn þeirra fjölmörgu sem dregnir höfðu verið í hálfa stöng eftir að tíðindi morgunsins bárust.
HARMLEIKUR Í HÚNABYGGÐ
- Tvö látin og einn lífshættulega
særður eftir skotárás á Blönduósi
- Árásarmaðurinn hafði verið vist-
aður á geðdeild eftir fyrri hótanir
- Sonur hjónanna lagði til atlögu
og réð árásarmanninum bana
MNauðungarvistanir… »6
Jón Gunnarsson
dómsmálaráðherra
kveðst ekki geta tjáð
sig um voðaverkið á
Blönduósi að öðru
leyti en því að votta
hlutaðeigandi hlut-
tekningu sína. Ráð-
herra mun fara yfir
málið er snýr að lög-
gæslu og öryggi
borgaranna með
helstu embættismönnum sínum í dag og
kynna ráðstafanir í framhaldi af því.
„Það er margt sem þarf að athuga, svo
sem vistunarúrræði, eftirlit með skotvopn-
um og fleira,“ segir Jón í samtali við Morg-
unblaðið. „Það er tímabært en má ekki ger-
ast í neinu óðagoti.“
Þarf að athuga
vistunarúrræði
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Jón Gunnarsson