Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000 www.heimsferdir.is
Alicante
Flug aðra leið til
8.900
Flug aðra leið frá
Flugsæti
Fyrsta Menningarnóttin í þrjú ár
var haldin um helgina og eflaust
margur borgarbúinn farinn að
hlakka til að fá að fara niður í
miðbæ til að hlusta á góða tónlist og
hitta vini og vandamenn.
Haldið var í hefðina og hófst dag-
urinn á Reykjavíkurmaraþoninu en
formleg dagskrá hófst svo með
ávarpi Einars Þorsteinssonar for-
seta borgarráðs við Hörpu og var
opnunaratriði í kjölfarið.
Þar mátti sjá tónlistina fljúga af
þaki hússins. Jón Jónsson, tónlist-
armaðurinn kunni, flutti lag á gít-
arinn sinn meðan hann sveif niður
af þakinu og til fólksins fyrir neðan
auk þess sem leikarinn Níels Thib-
aud Girerd brá sér í líki hljómsveit-
arstjóra frá klassíska tímabilinu og
fór sömu leið. Fjöldi annarra atriða
tók við inni í Hörpu, meðal annars
Hringleikur, við tröppurnar í hús-
inu.
Fólk hafði úr mörgu að velja um
alla borg og náði kvöldið ákveðnum
hápunkti við rúsínuna í pylsuend-
anum; sjálfa flugeldasýninguna.
Menningarnótt loksins haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur eftir langt hlé sökum takmarkana
Hangið
og flogið í
Hörpu
Morgunblaðið/Ari Páll
Sirkus Hringleikur sýndi sirkussýningu inni í Hörpu. Brá mörgum ungum áhorfendum í brún þegar þessi lét sig detta úr nokkurra metra hæð.
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Jóhannes Svavar Rúnarsson fram-
kvæmdastjóri Strætó segir að þrátt
fyrir háværa gagnrýni í garð fyrir-
tækisins á samfélagsmiðlum hafi í
heildina gengið vel að ferja fólk nið-
ur í bæ á Menningarnótt. Margir
hverjir kvörtuðu sáran yfir því að
vagnar væru ýmist of fáir, of seinir
eða keyrðu oftar en ekki fram hjá
fólki. Frítt var í vagnana á laug-
ardaginn var, sem er hefð sem Jó-
hannes segir að megi mögulega
yfirfæra á fleiri hátíðisdaga.
„Jú, svona heilt yfir held ég að
þetta hafi gengið bara vel. Það auð-
vitað komu upp tilvik þar sem
vagnarnir voru fullir og gátu ekki
tekið alla farþega, en við reyndum
að sjá til þess að það kæmu auka-
vagnar mjög fljótlega,“ segir Jó-
hannes.
Miðað við reynslu fyrri ára hafi
verið ákveðið að einblína á
ákveðnar leiðir. „Svo voru bara
fleiri leiðir að fyllast þannig að það
tók smátíma að koma aukavagni á.“
Ljóst sé að margir hafi ákveðið að
nýta sér þjónustuna á laugardaginn
var.
Fjöldi fólks var svekktur og furð-
aði sig á því að það sem þeim sýnd-
ust hálftómir vagnar stoppuðu ekki
fyrir fólki heldur keyrðu fram hjá
fullum strætóskýlum. Jóhannes
segir bókað mál að vagnstjórar
myndu ekki gera fólki slíkan óleik.
„Þeir stoppuðu alltaf ef það var
pláss í vögnunum. Það er alveg
bókað mál,“ segir hann og bendir á
að barnavagnar hafi verið margir í
vögnunum.
Jóhannes segir að í raun hafi all-
ur starfskrafturinn sem var í boði
verið kallaður út. „Við vorum í raun
með allan okkar flota úti sem við
gátum mannað.“
Þá áréttar hann að alltaf sé eitt-
hvað sem hægt sé gera betur, og
fyrirtækið muni funda um það í
komandi viku.
Til að mynda hefðu fleiri mátt
nýta sér skutlþjónustu sem fyrir-
tækið var með í Laugardalnum og
niður í bæ. „Strætóar keyrðu stans-
laust þarna á milli og það voru
ennþá pláss á bílastæðunum þar.“
Spurður hvernig næturaksturinn
hafi gengið, nú mánuði eftir að hon-
um var komið á laggirnar að nýju,
segir Jóhannes að eftir því sem
hann best viti hafi hann gengið
ágætlega.
„Þetta er tilraunaverkefni út
september og það verður metið, í
ljósi reynslunnar, hvort ástæða sé
til að halda þessu áfram. Ég veit að
það er mikill vilji til þess.“
Spurður hvers vegna ákveðið
hafi verið á sínum tíma að láta síð-
ustu ferð fara upp úr kl. 3.30, um
klukkustund áður en síðustu
skemmtistöðum er lokað og há-
annatími hefst, segir hann að það
hafi í raun verið meðvituð ákvörð-
un. Lögregla hafi veitt þeim ráð-
gjöf þegar verkefnið fór af stað fyr-
ir nokkrum árum.
„Auðvitað heyrir maður það að
því lengra sem líður á nóttina, því
erfiðara verður ástandið.“
Barnavagnar hafi fyllt vagnana
Morgunblaðið/Valli
Strætó Frítt var í strætó á laugardaginn var vegna Menningarnætur.
- Gengið vel þrátt fyrir gagnrýni - Mikil aðsókn í strætó á Menningarnótt - Allt tiltækt lið kallað út
- Meðvituð ákvörðun að næturstrætó hætti akstri fyrir háannatíma - Staðan verður endurmetin
Mögulegt er að það hlaupi úr
Hafrafellslóni á næstu dögum eða
vikum, lóni sem liggur við vest-
anverðan Langjökul. Yrði það
þriðja hlaupið úr lóninu á þremur
árum.
Kristrún Snorradóttir, sem býr
og rekur veitingastað nær Hvítá,
býst ekki við að hlaupið muni hafa
teljandi áhrif á líf eða starf fólks á
svæðinu.
„Ég varð vitni að flóðinu síðast.
Það náttúrlega drap svolítið af
fiskum og hafði áhrif að því leyti
að það var sandur uppi á eyrum
sem fór svo að fjúka þegar það
þornaði en það hafði engin áhrif á
daglegt líf fólks, þannig séð, held
ég.“
Hún segist ekki áhyggjufull og
kveðst ekki búast við að aðrir séu
það heldur. Flestum túnum sé
borgið, sandfokið sé pirrandi, en
það gangi yfir. „Hún er yfirleitt í
bökkum þarna áin. Það er helst
þarna upp frá þar sem hún færi
yfir eyrar.“
Kristrún segir hlaupið því lík-
legast ekki koma til með að hafa
áhrif á hennar afkomu og senni-
lega ekki annarra á svæðinu held-
ur.
„Þetta hefur engin áhrif á rekst-
urinn hjá mér annað en það að það
koma fúlir túristar og skamma
starfsfólk hjá mér vegna þess að
áin er ekki eins tær og þeir hafa
séð á myndum af svæðinu,“ segir
Kristrún létt í lundu. „Það er auð-
vitað leiðinlegt ef það eru ein-
hverjir fiskar að drepast en þetta
hefur engin áhrif á afkomu neins
held ég. Ekki nema þetta verði
miklu stærra. En lónið er svipað
núna og það var þegar það hljóp í
fyrra.“ ari@mbl.is
Býst ekki við að hlaupið
muni hafa mikil áhrif
- Sandfokið pirrandi en gangi yfir - Svekktir ferðamenn
Ljósmynd/Loftmyndir ehf.
Lón Mynd af lóninu í gærmorgun
sýndi engin merki um hlaup.