Morgunblaðið - 22.08.2022, Síða 9
Ljósmynd/Róbert Daníel Jónsson
Bolafjall Huggulegt sólsetur.
Stefnt er að formlegri opnun útsýn-
ispallsins á Bolafjalli 1. september
næstkomandi. Pallurinn var byggður
utan í fjallinu í fyrra og hefur fólk get-
að nýtt sér hann í sumar eftir að veg-
urinn upp á fjallið var opnaður. Frá
því seint á níunda áratugnum hefur
verið hægt að keyra upp á fjallið á
sumrin og njóta útsýnisins. Í sumar
hefur fólk getað farið upp á Bolafjall
eins og áður en pallurinn hefur ekki
formlega verið tekinn í notkun enda
ekki öllum frágangi lokið á svæðinu.
„1. september er stóri dagurinn.
Það vill svo vel til að þann dag ætlar
ríkisstjórn Íslands að halda ríkis-
stjórnarfund fyrir vestan,“ sagði Jón
Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolung-
arvík, þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í gær. „Þá verður allt tilbúið og
Skipulagsstofnun og Húsnæðismann-
virkjastofnun verða búin að taka
framkvæmdina út.“
Að sögn Jóns Páls eru nú fram-
kvæmdir á Bolafjalli sem tengjast
meðal annars frágangi á svæðinu
nærri pallinum. „Segja má að nú sé
unnið að því að ganga frá öryggisat-
riðum en einnig frágangi á útlitsatrið-
um. Framkvæmdir við bílastæði og
göngustæði sem dæmi. Grindverk var
sett til bráðabirgða og hægt verður að
fjarlægja það þegar búið er að ljúka
öryggismálunum. Þetta snýst aðal-
lega um að tryggja fráganginn við
fjallsbrúnina og pallinn sjálfan. Að
tryggja að ekki verði gat á milli sem
gæti skapað hættu.“
Sprunga kom í eitt glerið á pall-
inum eftir veturinn og verður nú einn-
ig gert við það.
„Veturinn var snjóþungur þarna
uppi og á pallinum voru fimm til sex
metrar af snjó. Ekki var hægt að fá
betra álagspróf. Snjór var einnig al-
veg fremst á pallinum og því lagðist
mikill snjór á fremsta glerið. Það
stóðst álagið og brotnaði ekki. Ein-
ungis kom sprunga í fremra glerið
þrátt fyrir mörg hundruð tonna þrýst-
ing,“ sagði Jón en tvöfalt gler er á
pallinum með filmu á milli. kris@mbl.is
Unnið að frágangi á Bolafjalli
- Stefnt að formlegri opnun útsýnispallsins hinn 1. september - Verða ráðherrarnir viðstaddir?
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
HJÓLAÐU Í SKÓLANN
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
MARLIN5
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
TREK Black
129.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
109.990 kr.
FX2Disc
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Lithium Grey Chrome
114.990 kr.
Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is
Sendum hvert á land sem er fyrir 2.990 (verð fyrir eitt reiðhjól) FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890
Fleiri litir í boði
Þrír voru handteknir og vistaðir í
fangageymslu vegna árásar með
hníf sem átti sér stað um klukkan
hálfþrjú aðfaranótt sunnudags á
Lækjartorgi í miðborg Reykjavík-
ur. Einn þeirra sem handteknir
voru er undir 18 ára aldri. Hinir
tveir eru á nítjánda ári.
Þetta stað-
festir Margeir
Sveinsson
aðstoðar-
yfirlög-
regluþjónn í
samtali við
mbl.is.
Fleiri liggja
undir grun um
að hafa átt sök í
málinu. Fórn-
arlömbin eru
ekki í lífshættu, en annar þeirra
sem ráðist var á liggur inni á
slysadeild til aðhlynningar.
Margeir segir augljóst að
vopnaburður sé meiri hér á landi
en áður, og þá sérstaklega í mið-
bænum.
Bendir hann meðal annars á að
hann hafi ekki lengur tölu á því
hversu margar hnífaárásir hafi átt
sér stað síðastliðið ár.
„Þetta er orðið eitt af því sem
við eigum alltaf von á, en það eru
auðvitað mestu líkurnar á svona
árásum þegar fólk er að djamma.“
Þó nokkrir ofurölvi
Mikill erill var hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu á Menningar-
nótt en fangageymslur voru yfir-
fullar og lögregla þurfti að grípa
til vistunar í fangaklefum
lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði.
Auk hnífstunguárásarinnar
komu fjölmörg mál á borð lögreglu
á sunnudagsnótt en mikið var um
ölvun og fólk í annarlegu ástandi
eftir hátíðahöldin fyrr um daginn.
Þó nokkrir voru handteknir
grunaðir um akstur undir áhrifum
áfengis og fíkniefna. Lögregla ók
einnig heim fólki sem var ofurölvi.
logis@mbl.is
Hnífaárás
á Menn-
ingarnótt
- Tveir stungnir í
miðbænum
Margeir
Sveinsson