Morgunblaðið - 22.08.2022, Qupperneq 13
AFP/John Wessels
Íbúar Afríkuríkisins Angóla ganga
að kjörborðinu í vikunni til að kjósa
forseta. Joao Lourenco, núverandi
forseti og leiðtogi Frelsisfylking-
arinnar (MPLA), sækist eftir endur-
kjöri en flokkurinn hefur verið við
stjórnvölinn í Angóla síðan landið
fékk sjálfstæði árið 1975.
Þótt almennt sé búist við að
Lourenco nái kjöri hefur vatnað
undan flokknum að undanförnu og
loforð um bættan hag landsmanna
hafa ekki verið efnd. Hefur stuðn-
ingur við Adalberto Costa, leiðtoga
UNITA, sem er stærsti sjórnarand-
stöðuflokkurinn, farið vaxandi.
Um 33 milljónir manna búa í
Angóla, flestir í höfuðborginni Lu-
anda þar sem þessi mynd var tekin
um helgina. Þar af eru um 14 millj-
ónir skráðir kjósendur.
Forseta-
kosningar
í Angóla
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Njótið
sumarsinsHeilbrigðisráðuneytið í Sómalíu
staðfesti í gær að minnst 21 hefði
fallið og 117 særst í árás og umsátri
Al-Shabaab-hryðjuverkahópsins á
Hayat-hótelið í Mogadishu.
Hótelið varð fyrir miklum
skemmdum í árásinni, sem hófst á
föstudagskvöldið þegar sjálfsvígs-
sprengjumaður réðst á inngang hót-
elsins. Gerðu þá hryðjuverkamenn
úr Al-Shabaab-hópnum áhlaup á
hótelið með skotvopnum, en lög-
reglulið borgarinnar sendi þegar í
stað vopnað lið til hótelsins. Tók við
umsátur, sem stóð yfir í um 30
klukkutíma, eða allt þar til síðasti
hryðjuverkamaðurinn var felldur.
Hluti hótelsins hrundi eftir árás-
ina og var óttast að fólk væri grafið
undir rústunum. Öryggissveitir og
björgunarlið fóru í gær yfir rústir
hótelsins, og leituðu þar bæði að eft-
irlifendum og mögulegum gildrum
sem hryðjuverkamennirnir kynnu að
hafa skilið eftir í hótelinu.
Abdi Hassan Mohamed Hijar, lög-
reglustjóri í Mogadishu, sagði í gær
að mestallt mannfallið hefði orðið á
fyrstu stigum árásarinnar, og að tek-
ist hefði að bjarga 106 manns meðan
á umsátrinu stóð. Sagði Hijar að ör-
yggissveitir hefðu þá farið á milli
herbergja til að reyna að bjarga
gestum hótelsins.
Hassan Sheikh Mohamud forseti
Sómalíu tók við embætti í júní síðast-
liðnum, og er þetta stærsta árásin
sem gerð hefur verið frá valdatöku
hans. Mohamud hefur á stefnuskrá
sinni að bæla niður uppreisn Al-
Shabaab-hópsins, en hún hefur stað-
ið yfir í fimmtán ár.
Hópurinn er sagður tengdur Al
Kaída-hryðjuverkasamtökunum, og
hafa bandamenn sómalskra stjórn-
valda, þar á meðal Bandaríkin, Bret-
land og Tyrkland, fordæmt árásina.
Bandaríkjaher felldi fyrr í mánuðin-
um 13 vígamenn samtakanna í loft-
árás.
AFP
Sómalía Lögreglumaður bendir við
hótelið í miðju umsátrinu.
21 látinn eftir
árás á hótel
- Samtökin sögð tengjast Al Kaída
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti
varaði við því í gær að Rússar
gætu gripið til sérstaklega
„grimmilegra“ voðaverka í vikunni
sem nú er að hefjast, þar sem
stefnt er að því að Úkraínumenn
fagni 31 árs sjálfstæðisafmæli sínu
á miðvikudaginn.
Yfirvöld í Kænugarði hafa sett á
samkomubann í vikunni, og borg-
aryfirvöld í Karkív hafa tilkynnt að
útgöngubann verði í gildi á mið-
vikudaginn, þegar sjálfstæðisdag-
ur Úkraínu fer fram. Þá verður
einnig liðið hálft ár frá því að inn-
rás Rússa hófst.
„Rússland gæti reynt að gera
eitthvað sérstaklega ógeðfellt, sér-
staklega grimmt,“ varaði Selenskí
við í ávarpi sínu að kvöldi laugar-
dags og bætti við að eitt af lykil-
markmiðum Rússa væri að niður-
lægja Úkraínumenn og sá fræjum
ótta og átaka meðal þeirra.
„Við verðum að vera nægilega
sterk til að standast allar ögranir,“
sagði Selenskí og hét því að Rúss-
ar myndu fá að gjalda voðaverk sín
í Úkraínu dýru verði.
Dúgín talinn skotmarkið
Ávarp Selenskís kom sama dag
og fréttir bárust frá Moskvu um að
Daría Dúgína, dóttir harðlínu-
mannsins Alexanders Dúgín, hefði
dáið eftir að sprengja sprakk í bif-
reið hennar á þjóðveginum um 40
kílómetrum frá Moskvu.
Dúgín hefur stundum verið kall-
aður „hugmyndafræðingur Pút-
íns“, þar sem hann hefur skrifað
bækur, þar sem kallað er eftir því
meðal annars að Rússland nái alla
leið frá Dyflinni á Írlandi og til
Vladivostok á Kyrrahafsströnd-
inni.
Áhrif Dúgíns á stjórnarstefnuna
hafa þó ekki verið talin mikil og er
því orðum aukið að kalla hann sér-
stakan hugmyndafræðing rúss-
neskra stjórnvalda.
Talið er að Dúgín hafi verið
skotmark þeirra sem sprengdu
upp bifreiðina, Toyota Land Cruis-
er, þar sem hann átti hana, og
Daría mun hafa fengið bílinn lán-
aðan á síðustu stundu áður en
sprengjan sprakk.
Dúgína var blaðamaður og kom
hún fram opinberlega í sjónvarpi
sem sérstakur stuðningsmaður
innrásarinnar. Var hún sett á
svartan lista breskra stjórnvalda í
júlí fyrir að dreifa rangfærslum
um Úkraínustríðið.
Enginn hefur enn lýst yfir
ábyrgð sinni á sprengingunni, en
rússnesk stjórnvöld hafa kennt
Úkraínumönnum um. Stjórnvöld í
Kænugarði hafa hins vegar þver-
tekið fyrir að hafa viljað ráða Dúg-
ín eða dóttur hans af dögum.
Míkhaíló Podolíak ráðgjafi Sel-
enskís sagði það af og frá að Úkra-
ínumenn hefðu staðið að baki
sprenginginni. „Við erum ekki
glæparíki,“ sagði Podolíak.
Óttast grimmileg voðaverk í vikunni
- Úkraínumenn fagna 31 árs sjálfstæðisafmæli á miðvikudaginn - Þá verða einnig sex ár liðin frá upp-
hafi innrásarinnar - Úkraínumenn neita að hafa fellt dóttur rússnesks öfgamanns með bílsprengju
AFP/Rannsóknarnefnd Rússlands
Bílsprengja Rannsóknarmenn á vegum Rannsóknarnefndar Rússlands
skoða hér brak úr bifreiðinni sem Daría Dúgína var á þegar hún var myrt.