Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 14

Morgunblaðið - 22.08.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kenía getur ekki, enn sem komið er að minnsta kosti, talist fyrirmynd á sviði lýðræðis á heimsvísu. Í Afr- íku, ekki síst gagnvart ná- grönnum sínum, er Kenía þó til fyrirmyndar og hefur tekist að skipta um valdhafa með lýðræð- islegum hætti í nokkur skipti í röð, sem því miður er óvenju- legt í þessum heimshluta. Því verður þó ekki haldið fram að þetta gerist allt með fullkom- lega friðsamlegum hætti, hvað þá óumdeildum, en Kenía virð- ist þó á réttri leið og dómstólar landsins hafa haldið þegar á hefur reynt, sem hefur mikla þýðingu þegar lýðræði og réttarríki eru annars vegar. Þegar niðurstöður lágu fyrir í nýafstöðnum forsetakosn- ingum í Kenía vakti það athygli, að William Ruto, varaforseti landsins, var sagður hafa unnið þær með um 50,5% atkvæða, þrátt fyrir að helsti andstæð- ingur hans, Raila Odinga, hefði fengið óvænta stuðningsyfirlýs- ingu fyrr í sumar frá Uhuru Kenyatta forseta landsins. Kenyatta og Odinga höfðu áður elt grátt silfur saman í for- setakosningunum árið 2013 og 2017, þar sem Kenyatta bar sig- ur úr býtum í bæði skiptin. Árið 2017 kærði Odinga niðurstöðu kosninganna, og ákvað hæsti- réttur landsins að ógilda þær og fyrirskipa nýjar. Odinga ákvað hins vegar að bjóða sig ekki fram í uppkosningunum, en sú ákvörðun virðist hafa markað upphafið að sögulegum sættum á milli hans og Kenyatta, sem hafði misst traust á eigin vara- forseta. Framkvæmd kosninganna að þessu sinni virðist hafa verið að mestu í lagi, en það vekur þó óneitan- lega athygli að fjór- ir af sjö kjörstjórn- armönnum vildu ekki skrifa upp á lokatalninguna, sem færði Ruto sigurinn. Þá höfðu stuðningsmenn Odinga truflað talningu á einum stað, þar sem þeir sökuðu talninga- menn þar um að hafa rangt við og uppþot urðu þegar niður- staðan var tilkynnt. Eftir- litsaðilar hafa þó sagt að þeir telji niðurstöðuna að mestu rétta að þessu sinni, en fjöl- miðlum og mannréttinda- samtökum var í fyrsta sinn gef- ið færi á að fylgjast með. Odinga, sem samkvæmt kynntri niðurstöðu hefur nú tapað fimm forsetakosningum í röð, segist ætla að kæra niður- stöðuna til hæstaréttar lands- ins. Engin leið er að segja til um hvort rétturinn muni ógilda þær líkt og 2017 eða hvernig uppkosning myndi fara. Það skiptir hins vegar miklu fyrir réttarríkið og framþróun lýð- ræðisins í Kenía, ef fylking- arnar fella sig við niðurstöðu réttarins líkt og fyrir fjórum árum. Það hvernig úr spilast skiptir líka miklu utan landamæra Kenía. Landið hefur, þrátt fyrir hörð pólitísk innri átök, um ára- bil verið tákn stöðugleika í þessum heimshluta þar sem blóðug átök eru tíð. Og Kenía hefur unnið með Vesturlöndum, einkum Bandaríkjunum, í bar- áttunni við hryðjuverka- samtökin al Shabaab og al Kaída, en þau hafa látið mjög til sín taka í nágrannaríkinu Sóm- alíu, meðal annars um nýliðna helgi þegar á þriðja tug féllu í árás al Shabaab á hótel í höf- uðborginni Mogadishu. Deilt er um niður- stöðu kosninga en vonandi er lýðræðið á réttri leið} Lýðræðið í Kenía Allt bendir til að Kristrún Frostadóttir þing- maður Samfylking- arinnar verði for- maður flokksins á landsfundi hans í haust. Eftir enn einn kosningaó- sigurinn í borginni ákvað Dagur B. Eggertsson að láta ekki á stuðninginn reyna að þessu sinni. Kristrún segir Samfylk- inguna eiga „að vera leiðandi afl á Íslandi þegar kemur að því að stunda jákvæða pólitík“, sem yrðu mikil umskipti ef gengi eft- ir, sem koma mun í ljós á næst- unni. Hún fann meðal annars að stöðu heilbrigðismála og ann- arra velferðarmála en færði ekki fram aðrar lausnir en að ekki hefði verið vilji til að fjár- magna þessa málaflokka. Þetta er sérkennilegur málflutningur í ljósi þróunar útgjalda málaflokkanna en verður varla túlk- aður á annan hátt en að væntanlegur nýr formaður Samfylkingar- innar vilji fara gamaldags leið skattahækkana og útgjalda- vaxtar til að leysa vandann. Íslensk stjórnmál og Sam- fylkingin sjálf mega vel við því að Samfylkingin nálgist um- ræðuna á nýjan hátt og skilji sig frá systurflokkum sínum sem hafa líkt og Samfylkingin ein- beitt sér að því að hafa ekkert fram að færa nema innantóma neikvæðni. Til að svo megi verða þarf þó hinn nýi frambjóðandi og flokkurinn í heild sinni að leggja fram innihaldsríkari og uppbyggilegri áherslur en fram hafa komið. Eru aukin útgjöld og skattahækkanir nýlunda hjá Samfylkingu?} Verður pólitíkin jákvæðari? N ú eru liðnir nákvæmlega fimm mánuðir frá því að fjármála- ráðherra seldi aftur eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka. 22. mars 2022 var 22,5% hlutur seldur í Íslandsbanka með 2,25 milljarða afslætti til 207 fjárfesta. Salan fór fram með svokölluðu til- boðsfyrirkomulagi sem er sérstaklega miðað að hæfum fagfjárfestum en ekki almennum fjár- festum. Í stuttu máli þýðir það að útboðið er ekki opið og aðgengilegt öllum. Þetta er mikil- vægt. Fljótlega komu í ljós mjög alvarlegar vís- bendingar um að margt hefði farið úrskeiðis í söluferlinu. Á nefndarfundum í kjölfarið kom fram að mismunandi kaupendur hefðu verið skertir mismikið, kaupendur fengu ekki að kaupa eins mikið og þau vildu á því verði sem þau buðu. Eins og þingmaður VG í efnahags- og við- skiptanefnd sagði, þá bjuggust allir við því að það væri verið að selja kjölfestufjárfestum. Kynningarnar fyrir bæði fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd voru þannig. Það var búist við því að það væru lífeyrissjóðir og aðrir stórir aðilar sem myndu kaupa með það að markmiði að verða endanlegir eigendur bankans þegar ríkið losaði sig við afganginn af hlutabréfum sínum í honum. Þótt lífeyr- issjóðir hafi keypt mest í þessu útboði þá fengu þeir minna en þeir buðu og stórum hópi smærri fjárfesta var hleypt inn í söluferlið með afslætti, þar á meðal föður fjármála- ráðherra. Nú hefur fjármálaráðherra sagt að hann hafi ekki vitað að faðir hans væri meðal kaup- enda og viðurkennir hann þar vanrækslu. Í lokuðu útboði verður ráðherra að vita hvort hann sé að selja tengdum aðilum því það er ekki til skýrara dæmi um spillingu en að selja ættingjum ríkiseigur, hvað þá á afslætti. Skortur á þekkingu er engin afsökun, því það er skylda ráðherra að ganga úr skugga um hæfi sitt til þess að taka svona ákvörðun. Ef ráðherra vissi þetta raunverulega ekki vanrækir hann starf sitt. Ef ráðherra vissi að faðir hans var kaupandi er það spilling. Vand- inn er að við komumst örugglega aldrei að því um hvort brotið er að ræða. Annað hvort er það. Hjá því verður ekki komist. Svo mikið er skýrt í stjórnsýslulögum. Við höfum margoft séð ráðherra stíga til hliðar, til dæmis þegar umsækjendur um embætti eru skyldmenni ráðherra. Það gæti aldrei gerst að ráðherra myndi skipa föður sinn sem embættismann og ef það gerð- ist þá væri aldrei hægt að segja að ráðherra hefði bara ekki vitað að hann væri að skipa föður sinn í embætti. Þetta vita allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar. Þetta vita allir þingmenn ríkisstjórnarinnar. Það er alveg klárt að ráðherra er vanhæfur til þess að ráða föður sinn í vinnu og hann er vanhæfur til þess að selja föður sínum ríkiseigur. Það er merkilegt að ríkisstjórnin þurfi einhverja skýrslu til þess að segja það en þannig virkar samtryggingin. Björn Leví Gunnarsson Pistill Að selja ríkiseign Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is N okkur titringur er nú í þýskum stjórnmálum vegna Warburg-málsins svonefnda, en það snýst um möguleg undanskot á fjár- magnstekjuskatti vegna hlutafjár- kaupa árið 2016. Þykir Olaf Scholz Þýskalandskanslari standa höllum fæti vegna málsins, en spurningar hafa vaknað um þátt hans þegar hann var borgarstjóri í Hamborg ár- ið 2016, og hvort hann hafi átt þátt í að koma í veg fyrir að Warburg- bankinn yrði að endurgreiða stjórn- völdum. Málið er hluti af mun stærra hneyksli, sem kennt er við svokölluð Cum-Ex-viðskipti, en það er latína fyrir „með“ og „án“. Nafngiftin felur í sér að viðskipti með hlutabréf voru gerð skömmu fyrir ákveðinn skila- dag, og sóttu bæði kaupendur og seljendur bréfanna um skattaafslátt á arðgreiðslum vegna hlutabréf- anna, jafnvel þótt einungis annar að- ilinn ætti rétt á þeim. Málið er viðamikið og teygir anga sína víða um Evrópu, en um- fangsmikill leki á skjölum árið 2018 sýndi að nokkrir af stærstu bönkum heims höfðu tekið þátt í að nýta sér gloppur í skattareglum nokkurra Evrópuríkja til þess að svíkja um 55 milljarða evra út úr ríkissjóðum þeirra, eða sem nemur um 7.700 milljörðum króna. Hefur nú þegar fjöldi fólks ver- ið sóttur til saka vegna Cum-Ex- hneykslisins, þar á meðal banka- menn, hlutabréfasalar, lögfræðingar og fjármálaráðgjafar. Þá þurfti Warburg-bankinn á endanum að borga til baka tugi milljóna evra, vegna þrýstings frá þýsku ríkis- stjórninni undir stjórn Angelu Merkel. Neitar óeðlilegum afskiptum Þingið í Hamborg rannsakar nú hvers vegna fjármálaeftirlit borg- arinnar ákvað árið 2016 að hætta við tilraun til þess að fá M.M. Warburg- bankann til þess að endurgreiða um 47 milljónir evra sem bankinn hafði fengið með Cum-Ex-viðskiptum sín- um. Scholz var þá borgarstjóri, og hefur hann verið sakaður um að hafa átt þátt í ákvörðuninni um að láta kyrrt liggja. Scholz bar því vitni á föstudag- inn í annað sinn fyrir rannsóknar- nefnd þingsins, og var kanslarinn spurður þar út í ýmsa fundi sem hann hafði átt með forystu bankans sem og fjármálaeftirlitsins á þessum tíma, en hann hafði viðurkennt í fyrri yfirheyrslu að hafa haldið þá fundi. Scholz las í upphafi yfirlýsingu þar sem hann ítrekaði að hann hefði ekki átt neinn þátt í ákvörðuninni um að hætta við að krefja Warburg um endurgreiðslu. Kanslarinn bar hins vegar við minnisleysi þegar hann var spurður út í þrjá fundi sem hann hafði átt með Christian Olear- ius og Max Warburg, helstu hlut- höfum bankans, árin 2016 og 2017. Olearius hafði hins vegar sagt að Scholz hefði ráðlagt sér eftir fyrsta fund þeirra árið 2016 að skrifa bréf til Peters Tschentscher, núver- andi borgarstjóra Hamborgar og þáverandi fjármálaráðherra borgar- innar, og segja þar að það væri óréttlátt ef bankinn yrði að end- urgreiða þær 47 milljónir evra sem hann hafði fengið í skattaafslátt. Minnisglöpin ótrúverðug Kristilegir demókratar, bæði í Hamborg og á landsvísu, hafa átt erfitt með að fella sig við þær skýr- ingar, sem Scholz gaf þingnefndinni á föstudaginn. Þannig sagði Dennis Thering, leiðtogi kristilegra í Ham- borg, að „umfangsmikil minnisglöp“ Scholz væru einfaldlega ótrúverðug og sýndu að kanslarinn hefði engan áhuga á að skýra út þær spurningar sem komið hefðu upp við rannsókn Warburg-málsins. „Hvernig getur hann sagt að engin pólitísk afskipti hafi verið af málinu, ef hann man ekki minnsta hlut af því sem gerð- ist?“ spurði Thering í yfirlýsingu sem hann birti í gær. Thering kallaði þó ekki eftir af- sögn Scholz eða Tschentschers vegna málsins í gær, en sumir af flokksfélögum hans hafa lýst því yfir að þeir telji málið varða afsögn. Þá hafa kristilegir demókratar á Sambandsþingi Þýskalands kallað eftir því að fjármálanefnd þingsins komi saman og haldi sérstakan fund um málið. Mathias Middelberg, varafor- maður þingflokks kristilegra, sagði í gær að efasemdir um trúverðugleika Scholz færu vaxandi með hverjum deginum. „Kanslarinn vill ekki muna neitt stundinni lengur. Á sama tíma koma fram frekari gögn sem gefa til kynna pólitísk afskipti af Warburg- málinu,“ sagði Middelberg í yfirlýs- ingu sinni. Scholz hefur nú þegar mátt þola harða gagnrýni á stuttri kanslaratíð sinni, einkum hvað varðar meinta tregðu hans til þess að senda þunga- vopn og stuðning til Úkraínu. War- burg-málið bætist ofan á þá gagn- rýni, og er hætt við að það muni liggja eins og mara á Scholz, sama hver framvinda rannsóknarinnar verður. Titringur eykst vegna Warburg-málsins AFP/Daniel Bockwoldt Warburg-málið „Olaf Scholz – vitni“ stendur á miða við sætið þar sem Scholz bar vitni fyrir rannsóknarnefnd Hamborgarþingsins á föstudaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.